Hoppa yfir valmynd
3. maí 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 212/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 3. maí 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 212/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020065

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. febrúar 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. febrúar 2018, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. útlendingalaga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar, hvað varðar brottvísun og endurkomubann, verði felld úr gildi, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 104. mgr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 6. febrúar 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 8. febrúar 2018 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 9. febrúar 2018, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var ofangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 9. febrúar 2018. Að ósk kæranda var veittur frekari rökstuðningur fyrir ákvörðun Útlendingastofnunar með bréfi stofnunarinnar, dags. 20. febrúar 2018. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 7. mars 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann verði fyrir hótunum og áreiti af hálfu óþekktra einstaklinga í heimaríki vegna hvarfs föður hans. Þá verði hann fyrir ofbeldi og áreiti lögreglu sem geti ekki og vilji ekki veita honum vernd.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu með vísan til 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Var kæranda ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 101. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi og fjölskylda hans séu upprunalega frá […]. Faðir kæranda hafi verið háttsettur bæði í […] ríkisstjórninni og […] hernum. Kærandi hafi flúið ásamt fjölskyldu sinni til höfuðborgar […] í kjölfar erfiðleika tengdum föður hans. Stuttu eftir komuna til […] hafi faðir kæranda verið numinn á brott, líklega af lögreglu eða öðrum yfirvöldum. Í kjölfarið hafi móðir kæranda tilkynnt brotthvarf föður kæranda til lögreglunnar sem hafi ekkert aðhafst í málinu. Þar sem lögreglan hafi neitað að rannsaka mál föður kæranda hafi móðir kæranda hótað lögreglunni að fara með málið í fjölmiðla. Í kjölfarið hafi kæranda og fjölskyldu hans borist hótanir í gegnum síma um að fjölskyldumeðlimir muni hljóta sömu örlög og faðir kæranda ef þau hafi samband við fjölmiðla. Árið […] hafi kæranda verið haldið á lögreglustöð í u.þ.b. sex klukkustundir þar sem hann hafi fengið slæma meðferð, m.a. hafi hann höfuðkúpubrotnað. […] Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun þann 8. febrúar 2018 hafi komið fram að kæranda hafi verið haldið í nokkur skipti til viðbótar á lögreglustöð, þ.e. tvisvar árið […] og einu sinni í desember […]. Jafnframt hafi kærandi fengið hótanir í gegnum síma.

Í greinargerð kæranda er fjallað almennt um aðstæður í […] og stöðu mannréttinda þar í landi. Í því sambandi vísar kærandi til fjölda skýrslna og gagna, þ. á m. skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar fyrir árið 2016 en þar komi fram að verulegir annmarkar séu á réttarkerfinu m.a. þrýstingur á dómstóla landsins í tilteknum málum, vafasamar skipanir á dómurum, ósamræmi í viðbrögðum yfirvalda í tengslum við ofbeldi eða misnotkun og ófullnægjandi sakamálarannsóknir. Í skýrslunni komi jafnframt fram að þrátt fyrir að spilling opinberra aðila sé refsiverð samkvæmt […] lögum þá fyrirfinnist hún enn þá í stjórnkerfinu. Erfitt sé að koma auga á spillingu innan stjórnkerfisins þar sem hún felist ekki einungis í greiðslu fés heldur einnig í loforðum um atkvæði eða upplýsingar. Þá komi fram í skýrslu OSAC fyrir árið 2017 að þrátt fyrir að framfarir hafi orðið hjá […] yfirvöldum í löggæslumálum þá sé mikið verk óunnið. […] Skilvirkni lögreglu sé háð því að nægu fjármagni sé veitt til hennar, sem hafi ekki verið gert, jafnframt sem þjálfun lögreglumanna sé misgóð. Kærandi telji að hann geti hvorki leitað lögregluverndar í heimaríki né fengið vernd hjá stjórnvöldum. Í skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar fyrir árið 2016 komi jafnframt fram að eiginleg stjórnvöld, sem berjist fyrir sjálfstæði […], standi utan hins […] stjórnkerfis og njóti stuðnings mörg þúsund […] hermanna og landamæravarða sem hafi haldið til á svæðinu síðan stríðsátök hafi brotist út árið […]. Mikill fjöldi íbúa […] hafi þurft að flýja átakasvæðið árið […] þegar stríðsátökin hafi staðið sem hæst. […]

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í lögskýringargögnum komi fram að með almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með erfiðum félagslegum aðstæðum sé m.a. vísað í að einstaklingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki. Þá skuli fara fram heildarmat á öllum aðstæðum í máli áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé veitt. Kærandi óttist að hann muni verða fyrir frekara líkamlegu ofbeldi af hálfu lögreglunnar eða settur í varðhald verði honum gert að snúa aftur til […]. Þá óttist kærandi jafnframt einstaklinga sem hafi numið föður hans á brott. Kærandi telji að hvorki lögregla né yfirvöld í heimaríki geti verndað sig, enda sé það lögreglan sem hafi beitt kæranda ofbeldi. Þá sé kærandi í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, enda hafi hann orðið fyrir illri meðferð af hálfu lögregluyfirvalda. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til læknisvottorðs sem fylgi með gögnum máls en þar komi fram að kærandi glími við mikla andlega erfiðleika, s.s. kvíða og svefnleysi. Af þessu telur kærandi ljóst að veita skuli honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða vegna erfiðra almennra aðstæðna, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi gerir athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar í máli hans og telur hann að stofnunin hafi ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Nánari rökstuðningur ákvörðunar Útlendingastofnunar hafi borist talsmanni kæranda þann 20. febrúar sl., en þann sama dag hafi kærandi verið fluttur úr landi í lögreglufylgd. Hafi kærandi því ekki fengið tækifæri til að kynna sér rökstuðning stofnunarinnar áður en hann hafi verið fluttur úr landi. Í nánari rökstuðningi ákvörðunar Útlendingastofnunar greini stofnunin frá misræmi í framburði kæranda en stofnuninni hafi láðst að spyrja kæranda út í umrætt misræmi. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi borið að hafa samband við hann þegar í ljós hafi komið að stofnuninni vantaði upplýsingar. Í ákvörðuninni sé greint frá því að frásögn kæranda hafi verið óljós er sneri að tímasetningu á brotthvarfi föður hans. Kærandi vill taka fram að gera megi ráð fyrir að hann hafi orðið fyrir áfalli þegar hann hafi verið beittur ofbeldi á lögreglustöð í […], því sé ekki ólíklegt að hann þjáist af áfallastreituröskun vegna atburðarins og því eðlilegt að minni kæranda sé gloppótt. Þá komi jafnframt fram í rökstuðningi ákvörðunar Útlendingastofnunar að stofnunin hafi talið ljóst að það væri búið að eiga við dagsetningarnar á læknisvottorðinu sem kærandi hafi lagt fram við meðferð málsins hjá stofnuninni. Kærandi mótmælir því og telur að Útlendingastofnun hafi borið að spyrja kæranda út í þetta eða vekja athygli hans á þessu við meðferð málsins hjá stofnuninni. Vegna alls framangreinds telur kærandi að brotið hafi verið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun.

Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar hvað varðar brottvísun og endurkomubann verði felld úr gildi. Í greinargerð er ferli málsins hjá stofnuninni varðandi beitingu brottvísunar og endurkomubanns rakið. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi verið óheimilt að ákveða að kæranda skyldi ekki veittur frestur til að hverfa brott af landinu með vísan til b-liðar 2. mgr. 104. gr. og 101. gr. laga um útlendinga og meta umsókn hans bersýnilega tilhæfulausa. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi í úrskurð kærunefndar í máli KNU17090052 þar sem fram komi að til þess að til greina komi að veita umsækjendum styttri eða engan frest til þess að yfirgefa landið sjálfviljugir þurfi tilhæfuleysi umsóknar að blasa við stjórnvöldum, ekki sé nægjanlegt að umsóknin sé tilhæfulaus heldur verði hún að vera bersýnilega tilhæfulaus. Víða sé stuðst við þá grunnhugmynd að umsókn geti eingöngu talist bersýnilega tilhæfulaus ef umsækjandi ber fyrir sig atvik sem ekki geta kallað á vernd, s.s. efnahagslegar eða félagslegar aðstæður. Við mat á bersýnilegu tilhæfuleysi skuli skoða m.a. hvort ljóst sé við fyrstu sýn að málsástæður umsækjanda varði ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taki til né geti aðstæður umsækjanda fallið undir 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Enn fremur hafi stofnuninni verið óheimilt að ákvarða kæranda brottvísun með vísan til 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá hafi ákvörðun Útlendingastofnunar um endurkomubann kæranda verið í andstöðu við 1. mgr. 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Jafnframt hafi Útlendingastofnun brotið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með því að fella niður frest kæranda til þess að yfirgefa landið sjálfviljugur, enda sé sú ráðstöfun verulega íþyngjandi úrræði.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki framvísað neinu til að sanna á sér deili. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki sannað með fullnægjandi hætti hver hann væri. Yrði því leyst úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats. Að teknu tilliti til frásagnar kæranda og að virtu trúverðugleikamati var það mat Útlendingastofnunar að ekki yrði talin þörf á að leggja fyrir kæranda tungumála- og staðháttapróf og rétt væri að leggja til grundvallar að kærandi væri frá […]. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefur tilefni til að draga í efa mat Útlendingastofnunar á þjóðerni kæranda og verður því lagt til grundvallar að hann sé […] ríkisborgari. Að öðru leyti er óljóst hver kærandi sé.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í […] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

[…]

[…]

Í ofangreindum gögnum kemur fram að stjórnarskrá […] kveði á um jafnrétti allra fyrir lögunum og mismunun á grundvelli kynþáttar, litarháttar, tungumáls, kyns, trúar- og lífsskoðana, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu eða tengsla, uppruna, búsetu eða efnahagslegrar stöðu sé refsiverð skv. refsilöggjöf landsins. Umboðsmaður […]hafi verið starfandi í […] frá árinu […]. Umboðsmaðurinn hafi eftirlit með mannréttindum og frelsi borgaranna í […] innan lögsögu ríkisins. […]

[…]

[…] Þá veiti […] stjórnvöld þeim sem þurfi á að halda nauðsynlega aðstoð í formi fjárhagsaðstoðar auk þess að tryggja að þeir geti fengið heilbrigðisþjónustu, húsnæði auk starfsþjálfunar og menntunar. Ekki verður séð af framangreindum gögnum að einstaklingar af […] uppruna verði almennt fyrir ofsóknum eða ofbeldi sem byggist á uppruna þeirra. Þvert á móti sé talið að einstaklingar af […] uppruna hafi almennt aðlagast vel […] samfélagi.

Þá kemur fram í ofangreindum gögnum að spilling sé þó nokkur í […] stjórnkerfinu. Yfirvöld hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu og hafi miklar framfarir átt sér stað á undanförnum árum, […]. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2016 kemur jafnframt fram að engar tilkynningar hafi borist um refsileysi í málum er varði aðila sem fari með löggæslu á árinu en þó hafi embætti umboðsmanns í landinu borist nokkrar kvartanir varðandi óhóflega beitingu valds af hálfu lögreglu. Þá beri stjórnvöldum að taka allar tilkynningar um misferli lögreglu til skoðunar og geti aðili sem telji að brotið sé á réttindum sínum kært til æðra stjórnvalds eða farið með mál sitt fyrir dómstóla. […]

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Eins og að framan greinir kveðst kærandi óttast einstaklinga sem hafi rænt föður hans vegna fyrrum stöðu hans innan […] ríkisstjórnarinnar og […] hersins. Móðir kæranda hafi leitað til lögreglu í heimaríki kæranda en hún hafi ekkert aðhafst í málinu. Eftir að móðir kæranda hafi hótað lögreglunni að fara með málið í fjölmiðla hafi fjölskyldu kæranda borist hótanir. Kærandi kveðst þá óttast að hann muni verða fyrir frekara líkamlegu ofbeldi af hálfu lögreglu í heimaríki, jafnframt sem kærandi óttist að hann verði að nýju settur í varðhald á lögreglustöð í heimaríki verði honum gert að snúa þangað aftur.

Kærandi hefur lagt fram læknisvottorð ásamt þýskri þýðingu þess, en af lestri þýðingarinnar virðist sem læknisvottorðið sé útgefið 2015. Í þýðingu skjalsins kemur m.a. fram að móðir kæranda hafi greint lækninum frá því að kærandi hafi verið í haldi lögreglunnar í um sex klukkustundir. Svör kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 8. febrúar 2018 voru bæði stutt og almenns eðlis og gat hann að mati kærunefndar ekki gert með skýrum hætti grein fyrir af hverju lögreglan hafi ítrekað áreitt hann, haldið honum á lögreglustöðinni og beitt hann ofbeldi, þrátt fyrir spurningar stofnunarinnar. Að mati kærunefndar gat kærandi heldur ekki gert með skýrum hætti grein fyrir starfi föður síns eða stjórnmálaskoðunum hans. Í ljósi framangreindra upplýsinga um heimaríki kæranda og endurrits af framburði hans hjá Útlendingastofnun fellst kærunefnd á það með Útlendingastofnun að sá hluti framburðar kæranda sem lýtur að stöðu föður kæranda innan […] stjórnkerfisins og áreiti lögreglu í hans garð vegna föður hans sé ótrúverðugur. Verður því ekki byggt á því við úrlausn málsins.

Að mati kærunefndar er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi hafi þurft að þola einhvers konar áreiti af hálfu lögreglunnar eða annarra aðila í heimaríki. Þó er það mat kærunefndar að kærandi hafi raunhæfan möguleika á að leita réttar síns í heimaríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna að kerfi sé til staðar í […] sem þeir geti leitað til sem telji sig hafa verið beitta órétti af lögreglu. Hægt sé m.a. að leita til sérstakrar stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og embættis umboðsmanns í landinu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursrík þó svo að úrbóta sé enn þörf varðandi sjálfstæði þeirra stofnana sem að þeim koma. Þá benda gögn og skýrslur sem kærunefnd hefur skoðað ekki til þess að einstaklingar frá […] séu í hættu á að verða fyrir alvarlegri mismunun eða ofbeldi í […] vegna uppruna síns.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og uppfylli því ekki skilyrði ákvæðisins fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali við Útlendingastofnun þann 8. febrúar 2018 kvaðst kærandi ekki vera við góða andlega heilsu. Kærandi lagði fram [...] læknisvottorð máli sínu til stuðnings, ásamt þýskri þýðingu þess. Í viðtalinu hafi kærandi greint frá því að í læknisvottorðinu komi fram að hann sé taugaóstyrkur og kvíðinn. Í þýskri þýðingu á ofangreindu læknisvottorði, sem eins og áður segir virðist vera útgefið 2015 kemur fram að kærandi hafi með hjálp móður sinnar leitað til heilsugæslustöðvar. Móðir kæranda hafi komið með kæranda þar sem hann sé kvíðinn. Telji móðir kæranda að vanlíðan hans tengist tilteknu atviki sem hafi átt sér stað á lögreglustöð þar sem kæranda hafi verið haldið í um sex klukkustundir. Í lýsingu læknis komi m.a. fram að kærandi hafi verið æstur og átt í erfiðleikum með að tala. Frekari gögn um heilsufar kæranda hafa ekki verið lögð fram við meðferð málsins.

Þó að kærunefnd dragi ekki í efa að kærandi eigi við andleg veikindi að stríða er það niðurstaða kærunefndar, með tilliti til mats á trúverðugleika á frásögn kæranda og framangreindra gagna um heilbrigðisaðstæður í […] að fullnægjandi aðstoð sé til staðar í heimaríki hans. Í framangreindum gögnum um aðstæður í […] kemur fram að allir íbúar landsins eigi rétt á heilbrigðisþjónustu. Þá benda gögn málsins jafnframt til þess að almennt viðgangist ekki mismunun í […] heilbrigðiskerfinu.

Kærunefnd telur með vísan til framangreinds og á grundvelli heildstæðs mats á aðstæðum kæranda að hann geti fengið aðstoð stjórnvalda í heimaríki vegna heilsufarskvilla hans. Er það niðurstaða kærunefndar m.t.t. upplýsinga um heimaríki kæranda og gagna málsins að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Rannsóknarregla stjórnsýslulaga

Líkt og áður segir gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Hafi kærandi verið fluttur úr landi sama dag og talsmaður hans hafi fengið nánari rökstuðning Útlendingastofnunar afhentan. Kærandi hafi því ekki fengið tækifæri til að kynna sér rökstuðning stofnunarinnar áður en hann hafi þurft að snúa aftur til heimaríkis. Í greinargerð kæranda kemur þá fram að kærandi telji að Útlendingastofnun hafi í rökstuðningi sínum brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga með því að m.a. staðhæfa í ákvörðun sinni að átt hafi verið við dagsetningar á læknisvottorði sem kærandi lagði fram án þess að spyrja kæranda út í þetta atriði eða vekja athygli hans á þessu við meðferð málsins hjá stofnuninni. Stofnunin hafi jafnframt haldið því fram í ákvörðun sinni að kærandi hafi verið óljós í sambandi við brotthvarf föður hans og ekki hafi verið litið til þess að á sama tíma hafi kærandi orðið fyrir miklu áfalli sem geti skýrt gloppótt minni hans. Í rökstuðningi ákvörðunar Útlendingastofnunar greini stofnunin frá misræmi í framburði kæranda en jafnframt komi fram að stofnuninni hafi láðst að spyrja kæranda út í þetta tiltekna misræmi. Hafi Útlendingastofnun borið að hafa samband við kæranda þegar í ljós hafi komið að stofnuninni hafi vantað upplýsingar.

Vegna athugasemdar kæranda tekur kærunefnd fram að Útlendingastofnun er heimilt á grundvelli 21. gr. stjórnsýslulaga og 1. mgr. 48. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. reglugerð nr. 775/2017, að taka ákvörðun án samhliða rökstuðnings en kærandi átti rétt á að fá eftirfarandi rökstuðning ákvörðunarinnar skv. 1. málsl. 2. mgr. 48. gr. reglugerðarinnar og 2. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Þá kveður 2. málsl. 2. mgr. 48. gr. reglugerðarinnar á um að beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun skal bera fram innan 14 daga frá því að aðila var tilkynnt ákvörðunin og skal stjórnvald svara henni innan 14 daga frá því að hún berst, sbr. 3. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga frestar kæra ekki réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar um að útlendingur skuli yfirgefa landið í þeim tilvikum þegar Útlendingastofnun hefur metið umsókn hans bersýnilega tilhæfulausa og hann kemur frá ríki sem er á lista stofnunarinnar yfir örugg upprunaríki sbr. b-lið 1. mgr. og 2. mgr. 29. gr. sömu laga. Kæranda var birt ákvörðun Útlendingastofnunar í máli sínu án frekari rökstuðnings þann 9. febrúar 2018 og við birtinguna óskaði kærandi eftir frekari rökstuðningi. Þann 20. febrúar 2018 barst talsmanni kæranda frekari rökstuðningur Útlendingastofnunar og barst sá rökstuðningur innan þeirra tímamarka sem kveðið er á um í 2. málsl. 2. mgr. 48. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Með vísan til framangreinds og þar sem kæra frestaði ekki réttaráhrifum ákvörðunar í máli kæranda, sbr. 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd ekki unnt að byggja á öðru en að íslenskum stjórnvöldum hafi ekki verið óheimilt að framkvæma ákvörðun Útlendingastofnunar með flutningi kæranda úr landi áður en hann fékk tækifæri til að kynna sér nánari rökstuðning Útlendingastofnunar.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Samkvæmt 2. mgr. 28. gr. laga um útlendinga skal haga viðtali við umsækjanda um alþjóðlega vernd með þeim hætti að sem mestar líkur séu á að aðstæður sem geta haft þýðingu fyrir umsókn umsækjanda upplýsist. Í slíku viðtali skal Útlendingastofnun gæta þess hvort taka þurfi sérstakt tillit til umsækjanda vegna persónulegra aðstæðna hans. Í greinargerð kæranda kemur líkt og áður segir fram gagnrýni á að kærandi hafi ekki verið spurður út í misræmi í framburði hans í viðtali við Útlendingastofnun. Þá komi fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að ljóst sé að mati stofnunarinnar að búið sé að eiga við dagsetningarnar á læknisvottorðinu sem kærandi lagði fram við meðferð málsins hjá stofnuninni. Kærandi hafi ekki fengið tækifæri til að mótmæla þessu mati. Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins og er það mat nefndarinnar að í viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun hafi komið fram nauðsynlegar upplýsingar til að hægt væri að taka afstöðu til umsóknar hans og komast að réttri niðurstöðu. Þá hefur kæranda gefist færi á að bæta við frekari athugasemdum í greinargerð til kærunefndar. Kærunefnd áréttar að það er á ábyrgð talsmanns að hafa fyrirsvar í máli og að halda uppi samskiptum við kæranda óháð því hvort hann sé staddur á landinu eða ekki. Að mati kærunefndar hefur ekkert komið fram í málinu sem bendir til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um aðstæður í heimaríki kæranda þegar Útlendingastofnun tók ákvörðun í málinu. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur farið yfir þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og að ekki sé að öðru leyti tilefni til að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá stofnuninni.

Frávísun, brottvísun og endurkomubann

Með vísan til atvika málsins tekur kærunefnd undir forsendur Útlendingastofnunar varðandi frávísun kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. til hliðsjónar 2. málsl. 3. mgr. 42. gr. reglugerðar nr. 540/2017.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og ákvarðað endurkomubann, sbr. 2. tölul. b-liðar 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Ástæða þess er að Útlendingastofnun mat umsókn kæranda bersýnilega tilhæfulausa í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga en ákvæðið veitir stjórnvöldum heimild til að fella niður frest sem að jafnaði er veittur útlendingi til að yfirgefa landið sjálfviljugur í kjölfar ákvörðunar um að yfirgefa landið í þeim tilvikum þegar umsókn útlendings um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd telst bersýnilega tilhæfulaus eða hann hefur vísvitandi gefið misvísandi eða rangar upplýsingar við umsókn.

Lög um útlendinga skilgreina ekki hvað felist í orðalaginu „bersýnilega tilhæfulaus“ í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Við túlkun ákvæðisins telur kærunefnd að líta verði til þess að orðið tilhæfulaus lýsir einhverju sem byggir ekki á staðreyndum eða á ekki við rök að styðjast. Þá leiðir af orðalagi ákvæðisins að tilhæfuleysi umsóknar þarf að vera bersýnilegt, þ.e. blasa við stjórnvaldi við skoðun málsins. Með vísan til orðalags ákvæðisins og til samræmis við ákvæði tilskipunar 2008/115/EB um brottvísun útlendinga í ólögmætri dvöl telur kærunefnd að umsókn um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus í skilningi b-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna ef eftirfarandi tilvik eiga einkum við þegar:

a) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda varða ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til,

b) ljóst er, við fyrstu sýn, að málsástæður umsækjanda séu ekki þess eðlis eða nái ekki því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita umsækjenda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, og

c) frekara mat og gagnaöflun, þar með talið viðtal við umsækjanda, hafi ekki breytt ofangreindu upphaflegu mati.

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi þurft að þola hótanir og áreiti í heimaríki af hálfu einstaklinga sem hann kveður tengjast hvarfi föður hans. Þá hafi kærandi orðið fyrir ofbeldi og áreiti af hálfu lögreglu í heimaríki. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var frásögn kæranda að mestu metin ótrúverðug. Tók kærunefnd undir mat stofnunarinnar og lagði til grundvallar að yrði kærandi fyrir áreiti í heimaríki gæti hann leitað til yfirvalda til að leita réttar síns. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað viðgangist þá ekki kerfisbundnar ofsóknir í […] gegn einstaklingum af […] uppruna. Það er mat kærunefndar, að teknu tilliti til trúverðugleika frásagnar hans, gagna um heimaríki kæranda og aðstæður hans þar, að það hafi frá upphafi málsmeðferðarinnar verið bersýnilegt að málsástæður hans vörðuðu ekki þá þætti sem 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga taka til. Enn fremur hafi verið bersýnilegt að aðrar aðstæður í heimaríki kæranda séu ekki þess eðlis eða nái því alvarleikastigi að þær gætu leitt til þeirrar niðurstöðu að heimilt væri að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í þessu sambandi lítur kærunefnd til þess að orðalag 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um að aðili þurfi að sýna fram á ríka þörf á vernd og tekur mat stjórnvalda á tilhæfuleysi slíkra umsókna mið af þeirri ábyrgð sem lögð er á aðila að þessu leyti. Þá er einnig ljóst að frekara mat og gagnaöflun hafi ekki breytt ofangreindu mati.

Að mati kærunefndar eru líkur á því að ákvörðun um niðurfellingu frests hafi varnaðaráhrif sem þjóni því markmiði að stuðla að fækkun bersýnilega tilhæfulausra umsókna frá öruggum upprunaríkjum. Fyrir liggur mat Útlendingastofnunar á því að framangreindu markmiði verði ekki náð með öðru og vægara móti. Kærunefnd telur sig ekki hafa forsendur til að draga í efa þetta mat að svo stöddu. Er það því mat kærunefndar að 12. gr. stjórnsýslulaga standi því ekki í vegi að kæranda verði ekki veittur frestur til að yfirgefa landið. Þá fær kærunefnd ekki séð að 1. mgr. 31. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna komi í veg fyrir að framangreindu úrræði verði beitt í máli kæranda.

Með vísan til framangreinds er fallist á það mat Útlendingastofnunar að umsókn kæranda um dvalarleyfi eða alþjóðlega vernd sé bersýnilega tilhæfulaus, sbr. b-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, og heimilt að veita kæranda ekki frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

Eins og að framan greinir hefur kæranda verið vísað frá landinu og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar hér á landi. Þá hefur kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að fella niður frest til að kærandi geti yfirgefið landið sjálfviljugur. Liggur því fyrir að kærandi dvelst ólöglega í landinu, sbr. a-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, og er því heimilt að brottvísa honum.

Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga skal ekki ákveða brottvísun ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Kærandi kom hingað til lands einn síns liðs og sótti um alþjóðlega vernd þann 6. febrúar 2018. Kærandi kveðst í greinargerð vera í hættu í heimaríki. Þá hafi hann jafnframt lagt fram umsókn sína um alþjóðlega vernd í góðri trú um tilefni hennar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 8. febrúar 2018 kom fram að kærandi telji að það sé ósanngjarnt að beita hann endurkomubanni þar sem hann sé frá […] en ekki […]. Það er mat kærunefndar, í ljósi grundvallar brottvísunar kæranda og með vísan til umfjöllunar kærunefndar um aðstæður í heimaríki kæranda, að ótti kæranda við hótanir í heimaríki, erfiðleikar sem tengjast takmörkunum á ferðum vegna endurkomubanns og góð trú kæranda um réttmæti umsóknar hans um vernd vegi ekki nægilega þungt til að talið verði að brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun í máli hans. Þá var kærandi spurður út í sérstök tengsl við Ísland eða önnur Schengen-ríki og kvaðst kærandi ekki hafa slík tengsl. Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kæranda eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Er ákvörðun Útlendingastofnunar er varðar brottvísun og endurkomubann því staðfest.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum