Hoppa yfir valmynd
6. maí 2021 Utanríkisráðuneytið

UNICEF sendir hjálpargögn til Indlands vegna COVID-19

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Hörmulegt ástand á Indlandi ætti að hringja viðvörunarbjöllum hjá okkur öllum,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hún bendir á að hjálpi heimsbyggðin ekki Indlandi núna dreifist áhrifin um svæðið í kring og síðan heiminn allan og sýni sig í auknum dauðsföllum og stökkbreytingum veirunnar.

UNICEF segir í frétt að úttbreiðsla COVID-19 á Indlandi hafi verið stjórnlaus frá því önnur bylgja faraldursins hófst í febrúar.  „Dauðsföll á hverjum sólarhring skipta þúsundum og spítalar eru löngu orðnir yfirfullir og geta ekki tekið við fleiri sjúklingum. Afleiðingar faraldursins eru skelfilegar fyrir börn í landinu sem hafa misst foreldra og fjölskyldumeðlimi og komast ekki undir læknishendur ef þau veikjast. Óttast er að á Indlandi verði flest dauðsföll barna undir fimm ára vegna raskana á heilbrigðisþjónustu í landinu ef ekki er brugðist við,“ segir í fréttinni.

UNICEF og samstarfsaðilar vinna í kappi við tímann við að tryggja öryggi barna og fjölskyldna þeirra. UNICEF er með svæðisskrifstofur á 14 stöðum víðsvegar um Indland og hefur útvegað nauðsynleg sjúkragögn, súrefnisbirgðir, yfir tvær milljónir andlitsgrímur, 85 vélar til að skima fyrir veirunni og búnað til súrefnisframleiðslu á spítölum. Auk þess er áhersla lögð á fræðslu um smitvarnir og að styðja uppbyggingu heilbrigðiskerfisins til þess að hægt sé að sinna börnum og mæðrum sem þurfa þjónustu á borð við mæðra- og ungbarnavernd. UNICEF styður auk þess stjórnvöld á Indlandi við að skipuleggja bólusetningaráætlanir til þess að tryggja að bóluefnum gegn COVID-19 verði útdeilt jafnt til allra íbúa landsins.

Brýnna aðgerða er þörf á Indlandi og því kallar UNICEF eftir auknum stuðningi til þess að útvega og koma  lífsnauðsynlega búnaði og hjálpargögnum til íbúa Indlands.

Neyðarsjóður UNICEF nýtist í að bregðast við þegar hættuástand skapast eins og á Indlandi, og hægt er að styðja með frjálsu framlagi hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum