Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 180/2021 Úrskurður 16. desember 2021

Mál nr. 180/2021                  Millinafn:       Vest

 

Hinn 16. desember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 180/2021 en erindið barst nefndinni 6. desember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Vest er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla eða kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga um mannanöfn. Nafnið Vest uppfyllir þannig ákvæði fyrrnefndra laga um millinöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Vest er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum