Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 402/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 7. júlí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 402/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060085

 

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. apríl 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Ekvador (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. apríl 2023, þess efnis að synja beiðni kæranda um skipun tiltekins talsmanns í tengslum við umsókn hans um alþjóðlega vernd.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um skipun talsmanns verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

II.      Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 9. febrúar 2022. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 312/2022, dags. 24. ágúst 2022, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. júní 2022, um að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Hinn 31. ágúst 2022 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var synjað af kærunefnd 9. september 2022 með úrskurði nr. 367/2022. Hinn 15. febrúar 2023 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku á úrskurði nefndarinnar. Fallist var á beiðni kæranda um endurupptöku 15. mars 2023 með úrskurði nr. 140/2023 og var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

Með tölvubréfi til Útlendingastofnunar, dags. 20. mars 2023, óskaði kærandi eftir viðtalsboðun og skipun talsmanns á vegum nafngreindrar lögmannstofu, með vísan til úrskurðar kærunefndar þess efnis að umsókn hans skyldi tekin til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 11. apríl 2023 ásamt tilteknum talsmanni sínum en beiðni hans um skipun talsmannsins var synjað með vísan til 4. mgr. 42. gr. reglugerðar nr. 540/2017, með síðari breytingum. Hinn 12. apríl 2023 óskaði kærandi eftir rökstuðning Útlendingastofnunar á ákvörðun sinni. Hinn 25. apríl 2023 barst kæranda rökstuðningur Útlendingastofnunar. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 28. apríl 2023. Greinargerð kæranda barst sama dag ásamt fylgigögnum.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi gerir margvíslegar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun og krefst þess að hún verði felld úr gildi. Kærandi byggir á því að ákvörðun Útlendingastofnunar brjóti í bága við meginreglur stjórnsýsluréttar, einkum jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og réttmætis- og lögmætisreglu stjórnsýsluréttar. Þá telur kærandi að túlkun Útlendingastofnunar á 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga hafi verið ábótavant og að sá ágalli sé verulegur og varði ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar.

Kærandi vísar til þess að málið varði skipun talsmanns í tengslum við nýja málsmeðferð hjá Útlendingastofnun þegar skipunartíma fyrri talsmanns sé lokið. Úrskurður kæranda hafi verið kveðinn upp 24. ágúst 2022. Kærandi hafi upphaflega leitað til nafngreindrar lögmannsstofu 23. júní 2022. Mál kæranda hafi verið endurupptekið ári síðar með úrskurði kærunefndar nr. 140/2023, dags. 15. mars 2023. Fyrrum talsmaður kæranda hafi ekki haft afskipti af kæranda frá 23. júní 2022. Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga eigi umsækjandi um alþjóðlega vernd rétt á að Útlendingastofnun skipi honum löglærðan talsmann við meðferð máls hjá stjórnvöldum. Í ákvæðinu sé sérstaklega tekið fram að sá réttur haldist við kærumeðferð. Skipunartími talsmanna sé því afmarkaður og ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda liggi fyrir, enda sé ekki kveðið á um hagsmunagæslu eftir mögulega kærumeðferð. Ekki sé hægt að túlka framangreint ákvæði með þeim hætti að skipun sé varanleg og haldist komi málið til meðferðar síðar. Hafi það verið áætlun löggjafans hefði verið hægt að kveða sérstaklega á um það í ákvæðinu, líkt og gert hafi verið í tengslum við mögulega kærumeðferð. Að mati kæranda sé ótækt af hálfu Útlendingastofnunar að túlka framangreint ákvæði með íþyngjandi hætti, þvert á hefðbundin lögskýringarsjónarmið. Kærandi vísar til þess að raunin sé sú að umsækjendur um alþjóðlega vernd leiti gjarnan til annarra lögmanna eftir kærumeðferð, aðallega vegna þess að fyrrum talsmaður hafi ekki áhuga á að sinna hagsmunagæslu eftir að skipun lýkur og greiðslur þá ekki lengur tryggðar úr ríkissjóði. Leiti umsækjandi til annars lögmanns sem taki við hagsmunagæslu og fái mál umsækjanda endurupptekið eða vísað til nýrrar meðferðar sé langsótt að ætla að málefnalegt sé að skipa fyrrum talsmann að nýju, enda þurfi samkvæmt skýrum ákvæðum laganna að skipa talsmann við nýja málsmeðferð. Liggi þá beinast við að skipa þann talsmann sem hafi trúnaðarsamband við umsækjanda þegar máli sé vísað til nýrrar meðferðar. Þá geti 30. gr. laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga, um réttaráhrif þess að skipta um talsmann eðli máls samkvæmt ekki átti við um framangreind tilvik, enda hafi kærandi ekki skipaðan talsmann þegar beiðni um nýja skipun barst Útlendingastofnun. Framangreindar aðstæður séu eðlisólíkar þeim aðstæðum sem getið sé til um í 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga, þegar umsækjandi vill skipta um talsmann á meðan mál hans er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum.

Kærandi byggir á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn 11. gr. stjórnsýslulaga, þar sem fjöldi annarra umsækjenda um alþjóðlega vernd hafi fengið skipaðan þann talsmann sem hafi sinnt máli þeirra, annað hvort þegar mál þeirra voru endurupptekin hjá Útlendingastofnun eða kærunefnd útlendingamála, þegar úrskurður var felldur úr gildi af dómstólum eða þegar haft hafi verið samband við Útlendingastofnun og tilkynnt um hagsmunagæslu áður en annar talsmaður hafi verið skipaður. Kærandi vísar til þess að venjuhelguð framkvæmd hafi myndast hjá Útlendingastofnun um skipun við slík tilefni og að það feli í sér brot á jafnræðisreglu ef kærandi fái ekki skipaðan talsmann samkvæmt sömu framkvæmd. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til 84 mála þar sem skipun hafi verið veitt í kjölfar viðtals. Málin eigi það sameiginlegt að hafa hlotið nýja meðferð hjá Útlendingastofnun og annar talsmaður hafi verið skipaður en sá sem sinnt hafi viðkomandi umsækjanda í tengslum við fyrri málsmeðferð. Um sé að ræða stjórnsýsluvenju og framkvæmd sem ekki verði litið fram hjá. Almennur tölvupóstur frá Útlendingastofnun til talsmanna 10. febrúar 2023, þar sem vísað var til 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga og almennra og óljósra leiðbeininga á vefsíðu Útlendingastofnunnar, geti ekki réttlætt breytta framkvæmd að þessu leyti.

Kærandi vísar jafnframt til umfjöllunar á vefsíðu Útlendingastofnunar um nýja málsmeðferð eftir úrskurð kærunefndar útlendingamála þess efnis að stofnunin leitist við að skipa sama talsmann og skipaður hafi verið við fyrri málsmeðferð, til að tryggja trúnaðarsamband og veita umsækjanda vandaða og góða þjónustu. Ekki verði séð að talsmaður sem hafi verið skipaður á fyrri stigum hafi meiri þekkingu eða ríkara trúnaðarsamband en talsmaður sem hafi sinnt málinu í lengri tíma og hafi nýlegri þekkingu á málavöxtum. Þá komi fram að stofnunin muni „leitast“ við að skipa sama talsmann og var skipaður við fyrri málsmeðferð sem gefi til kynna að mat skuli fara fram. Kærandi vísar til þess að um sé að ræða matskennda stjórnvaldsákvörðun. Brot gegn stjórnsýslureglunni um skyldubundið mat teljist vera verulegur efnisannmarki sem leiði til ógildingar. Kærandi vísar til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar, rökstuðningur hennar og mótmæli feli í sér óskýrar leiðbeiningar hvað varði skipun talsmanna samkvæmt hinni nýju túlkun stofnunarinnar. Þá vísar kærandi til þess að Umboðsmaður Alþingis hafi fjallað um þær sérstöku reglur sem gildi þegar stjórnsýsluframkvæmd er breytt og áþekka áherslu sé að finna í dómi Hæstaréttar nr. 151/2010 frá 11. nóvember 2010. Að minnsta kosti 20 aðrir umsækjendur hafi fengið talsmann skipaðan að eigin ósk við nýja málsmeðferð hjá Útlendingastofnun eftir að umræddur tölvupóstur hafi verið sendur talsmönnum 10. febrúar 2023. Kærandi hafi haft réttmætar væntingar til þess að hljóta sambærilega málsmeðferð og fá talsmann sinn skipaðan.

Kærandi vísar til þess sem fram komi í rökstuðningi Útlendingastofnunar um að stofnunin túlki framangreind ákvæði með þeim hætti að stofnunin sjái alfarið um skipan talsmanna í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi vísar til þess að sú staðreynd sé óumdeild en stofnunin hafi tekið upp nýja túlkun þess efnis að hafi umsækjandi á einhverjum tímapunkti kosið sér annan talsmann þá geti ekki undir nokkrum kringumstæðum komið til skipunar samkvæmt 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Í rökstuðningi stofnunarinnar sé vísað til þess að ekki sé hægt að líta svo á að úrskurður kærunefndar, þess efnis að mál kæranda skuli tekið til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun, skuli leiða til þess að stofnuninni sé skylt að skipa umsækjanda þann talsmann sem hann hefur sérstaklega óskað eftir þegar honum hafi áður verið skipaður annar talsmaður af hálfu stofnunarinnar. Kærandi telji túlkun og afstöðu Útlendingastofnunar ómálefnalega og ólögmæta. Afstaða stofnunarinnar feli í sér óhagræði og skerðingu á réttaröryggi sem gangi í berhögg við yfirlýst markmið stofnunarinnar um vandaða þjónustu og að stofnunin sé að standa vörð um trúnaðarsambönd milli umsækjenda og talsmanna þeirra. Þá vísar kærandi til þess að sjónarmið stofnunarinnar um jafna úthlutun mála milli talsmanna sé ómálefnalegt. Stofnunin hafi ekki birt neinar reglur um úthlutun mála og framkvæmdin sé ógagnsæ. Talsmannaþjónusta sé ekki útboðsskyld en hafi í för með sér auknar kröfur um gegnsæi og endurskoðun. Kærandi byggir jafnframt á því að Útlendingastofnun hafi ekki hagað skýringum á ákvæði laga um útlendinga og tilheyrandi reglugerð í samræmi við réttmætisreglu stjórnsýsluréttar heldur þvert á móti og án rökstuðnings kosið skýringarkost sem ekki verði skýrlega ráðinn af ákvæðunum og er íþyngjandi fyrir kæranda sem ákvörðunin beinist að.

Kærandi áréttar að ákvörðun Útlendingastofnunar feli í sér grundvallarbreytingu á stjórnsýsluframkvæmd og einungis sé heimilt að breyta stjórnsýsluframkvæmd með lögum eða eftir ströngum skilyrðum stjórnsýsluréttarins. Stjórnsýsluframkvæmd sem lengi hafi tíðkast verði ekki breytt svo að íþyngjandi sé á þeim grunni einum að málefnalegar aðstæður búi að baki, heldur verði að taka slíka ákvörðun á formlegan hátt og kynna hana þannig að allir þeir sem breytingin varði geti gætt hagsmuna sinna, m.a. til að tryggja jafnræði þeirra sem hin breytta stjórnsýsluframkvæmd taki til. Kærandi vísar til þess að í fyrsta lagi hafi engin lagagrundvöllur verið fyrir því að breyta umræddri stjórnsýsluframkvæmd. Í öðru lagi sé ljóst að stefnubreyting Útlendingastofnunar, sem byggist á því markmiði að gæta jafnræðis á milli talsmanna í tengslum við úthlutun mála, sé ekki málefnalegt sjónarmið. Í þriðja lagi hafi umrædd breyting ekki verið kynnt með almennum hætti.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Kæruheimild samkvæmt 7. gr. laga um útlendinga

Mál þetta á sér uppruna í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 11. apríl 2023, þess efnis að beiðni kæranda um skipun tiltekins talsmanns væri hafnað með vísan til 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga þar sem honum hafi áður verið skipaður talsmaður. Hinn 12. apríl 2023 óskaði kærandi eftir rökstuðningi Útlendingastofnunar á ákvörðun sinni og 25. apríl 2023 barst kæranda rökstuðningur stofnunarinnar. Í rökstuðningi kemur m.a. fram að ákvörðun Útlendingastofnunar sé kæranleg til dómsmálaráðuneytisins samkvæmt almennri kæruheimild stjórnsýslulaga, sbr. 1. mgr. 26. gr. laganna. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála 28. apríl 2023.

Mál þetta er kært til kærunefndar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga en þar kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar og lögreglunnar samkvæmt lögunum er heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi hafi verið tilkynnt um ákvörðunina.

Ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um skipun talsmanns lýtur að mati kærunefndar að réttindum hans og skyldum og telst því stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd bendir á að allar takmarkanir á kæruheimildum, sem meðal annars er ætlað að tryggja réttaröryggi borgaranna, verður að skýra þröngt, sbr. t.d. álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 577/1992. Ákvörðun stofnunarinnar lýtur að rétti kæranda til fá skipaðan talsmann skv. 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga. Verður því að mati kærunefndar litið svo á að um sé að ræða kæranlega stjórnvaldsákvörðun í skilningi 7. gr. laga um útlendinga. Verður hinni kærðu ákvörðun því ekki vísað frá.

Ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á skipun tiltekins talsmanns

Hinn 11. apríl 2023 mætti kærandi til viðtals hjá Útlendingastofnun ásamt fulltrúa frá nafngreindri lögmannsstofu, sem einnig er skráður á talsmannalista Útlendingastofnunar. Í upphafi viðtalsins var kæranda tilkynnt að umræddur fulltrúi yrði ekki skipaður talsmaður í máli kæranda, með vísan til 4. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, þar sem kæranda hafi áður verið skipaður talsmaður við fyrri málsmeðferð hjá Útlendingastofnun. Í rökstuðningi Útlendingastofnunar, dags. 25. apríl 2023, kemur m.a. fram að úrskurður kærunefndar útlendingamála, þess efnis að mál kæranda skuli tekið til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun, leiði ekki til þess að stofnuninni sé skylt að skipa umsækjendum um aljóðlega vernd þann talsmann sem þeir hafi sérstaklega óskað eftir að kæmi að málum þeirra þegar stofnunin hafið áður skipað annan talsmann. Þá beri 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga ekki með sér að kostnaður fyrir réttaraðstoð skuli greiðast úr ríkissjóði í þeim tilvikum þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi afþakkað réttaraðstoð sem Útlendingastofnun hefur þegar útvegað og sérstaklega leitað á náðir annars talsmanns. Kærandi telur að með þessari ákvörðun hafi Útlendingastofnun brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar, einkum jafnræðis-, réttmætis og lögmætisreglu stjórnsýsluréttar. Þá sé túlkun Útlendingastofnunar á ákvæði 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga jafnframt verulega ábótavant og varði ógildingu á ákvörðun stofnunarinnar.

Fram kemur í ákvæði 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga að umsækjandi um alþjóðlega vernd eigi rétt á að Útlendingastofnun skipi honum talsmann við meðferð máls hans hjá stjórnvöldum. Sá réttur haldist við mögulega kærumeðferð. Talsmaðurinn skuli vera lögfræðingur með þekkingu á málum er lúta að alþjóðlegri vernd og flóttafólki. Þá er að finna almenna reglugerðarheimild í 6. mgr. 30. gr. laga um útlendinga. Í 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga kemur fram að kostnaður vegna réttaraðstoðar við útlendinga skv. 1. og 2. mgr. greiðist úr ríkissjóði og aðeins sé greitt úr ríkissjóði fyrir þjónustu talsmanns þegar hann hafi verið skipaður. Kjósi útlendingur að velja sér annan talsmann en honum er skipaður skuli hann sjálfur greiða kostnað vegna starfa hans.

Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga heldur Útlendingastofnun utan um skráningu lögfræðinga sem óska eftir því við stofnunina að vera skráðir á lista stofnunarinnar yfir talsmenn. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Útlendingastofnunar skal í umsókn sýna fram á að viðkomandi uppfylli framangreind hæfisskilyrði 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga til að sinna hlutverki talsmanns. Uppfylli lögfræðingur hæfisskilyrði fari nafn hans á lista með skráðum talsmönnum. Ferlið sé svo með þeim hætti að stofnunin hafi samband við lögfræðing af listanum og boði hann til þess að vera viðstaddur viðtal stofnunarinnar við tiltekinn umsækjanda um alþjóðlega vernd. Þegar mætt sé til viðtals skuli undirrita skipunarbréf og þar með hefjist skipunartími talsmanns. Skipun talsmanns ljúki svo við endanlega niðurstöðu stjórnvalds, með ákvörðun Útlendingastofnunar eða eftir atvikum úrskurði kærunefndar útlendingamála. Kveði úrskurður á um að mál skuli sent til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun fari fram ný skipun talsmanns í samræmi við 30. gr. laga um útlendinga. Á vef íslenskra stjórnvalda kemur þá jafnframt fram að þegar kærunefnd útlendingamála fallist á beiðni um endurupptöku og sendir mál umsækjanda til nýrrar málsmeðferðar hjá Útlendingastofnun leitist stofnunin við að skipa sama talsmann og skipaður hafi verið við fyrri málsmeðferð. Það sé gert til að tryggja það trúnaðarsamband sem skapast hafi milli umsækjanda og talsmanns á fyrri stigum. Þá sé einnig horft til þess að sá talsmaður sem skipaður hafi verið upphaflega þekki mál umsækjanda vel og geti þannig tryggt umsækjanda vandaða og góða þjónustu.

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda skipaður talsmaður við upphaf fyrri málsmeðferðar hans, líkt og fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda, dags. 9. júní 2022. Sá talsmaður fór með hagsmunagæslu fyrir kæranda við fyrri meðferð umsóknar hans um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun og við kærumeðferð hjá kærunefnd útlendingamála. Talsmenn eru ekki skipaðir vegna annarra mála sem kunna að hefjast að frumkvæði aðila af öðrum ástæðum, s.s. vegna beiðna um frestun réttaráhrifa, endurupptöku eða vegna endurtekinna umsókna. Lögmaður kæranda sem sá um hagsmunagæslu við meðferð beiðna hans um endurupptöku fyrir kærunefnd útlendingamála var því ekki skipaður af Útlendingastofnun. Þegar kærunefnd féllst á beiðni kæranda um endurupptöku, felldi ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og gerði stofnuninni að taka mál kæranda til efnismeðferðar hófst að nýju málsmeðferð hjá stjórnvöldum vegna umsóknar hans um alþjóðlega vernd og átti kærandi rétt á að honum yrði skipaður talsmaður að nýju.

Lög um útlendinga og reglugerð um útlendinga kveða ekki skýrt á um hvernig haga skuli skipun talsmanna í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í athugasemdum með 30. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga kemur fram að tilgangur ákvæðisins sé að tryggja rétt umsækjanda og að sjónarmið hans komist á framfæri á öllum stigum málsins en jafnframt að málsmeðferð sé skilvirk. Talsmaður er sá sem talar máli umsækjanda um alþjóðlega vernd hér á landi og annast hagsmunagæslu fyrir hann við meðferð máls gagnvart íslenskum stjórnvöldum meðan mál hans er til meðferðar hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Draga má þá ályktun að markmið löggjafarinnar sé að talsmaður sé fulltrúi umsækjanda um alþjóðlega vernd og eigi að veita honum liðsinni, sbr. jafnframt 2. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Kærunefnd telur það í samræmi við markmið og tilgang laga um útlendinga að umsækjanda sé gefinn kostur á að óska eftir tilteknum talsmanni við upphaf málsmeðferðar áður en honum er skipaður talsmaður og að við skipun skuli að jafnaði virða ósk umsækjanda, sé það mögulegt og í samræmi við hagsmuni hans, svo fremi sem talsmaður uppfyllir skilyrði 30. gr. laga um útlendinga.

Þegar málsmeðferð umsækjanda er hafin og umsækjanda hefur verið skipaður talsmaður í samræmi við 30. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd hins vegar, m.t.t. sjónarmiða um skilvirkni málsmeðferðar umsækjenda um alþjóðlega vernd, að umsækjandi kunni aðeins að eiga þess kost að velja sér annan talsmann en honum er skipaður í samræmi við 4. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga, og þá á eigin kostnað.

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga hefst réttur umsækjanda um alþjóðlega vernd til að fá skipaðan talsmann við umsókn hans um alþjóðlega vernd og helst við mögulega kærumeðferð. Þegar mál kæranda var sent til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun með úrskurði kærunefndar 15. mars 2023 hófst ný málsmeðferð. Þrátt fyrir að Útlendingastofnun hafi tjáð kæranda í viðtali 11. apríl 2023 að honum hafi áður verið skipaður talsmaður og því komi ekki til skipunar talsmanns að nýju tekur kærunefnd sérstaklega fram að kærandi átti rétt á að fá skipaðan talsmann á ný við efnismeðferð máls hans hjá stofnunninni, sbr. 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga. Kærandi óskaði eftir því með tölvupósti 20. mars 2023 að fá skipaðan tiltekinn talsmann við upphaf efnismeðferðar umsóknar hans um alþjóðlega vernd. Að teknu tilliti til framangreinds, einkum markmiðs laga um útlendinga og þess að ekki er kveðið skýrt á um skipan talsmanna í lögunum eða reglugerð um útlendinga, telur kærunefnd að það hefði verið í samræmi við ákvæði 30. gr. laga um útlendinga og sjónarmið sem búa að baki ákvæðinu að sú skipun tæki mið af óskum kæranda.

Í framkvæmd virðist Útlendingastofnun hafa stundum skipað umsækjanda þann talsmann sem umsækjandinn óskaði eftir. Í samræmi við framangreint ber að gæta þessa við meðferð allra mála á lægra stjórnsýslustigi en ef ekki kemur fram sérstök beiðni skal fylgt almennu verklagi við val á talsmönnum. Kærunefnd ítrekar að gætt sé að framangreindu við upphaf málsmeðferðar enda leiða skilvirknissjónarmið til þess að umsækjandi um alþjóðlega vernd getur ekki óskað eftir nýjum skipuðum talsmanni í miðri málsmeðferð. Þetta á þó ekki við ef ljóst þykir að talsmaðurinn sinnir ekki störfum sínum í samræmi við skyldur sínar.

Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka málið til meðferðar á ný.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Útlendingastofnun skal taka beiðni kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate of Immigration shall re-examine the applicant’s request.

 

f.h. kærunefndar útlendingamála

 

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, settur varaformaður

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum