Hoppa yfir valmynd
26. maí 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 76/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 76/2015

Fimmtudaginn 26. maí 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 30. nóvember 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. september 2015, um að staðfesta fyrri ákvörðun, dags. 2. september 2015, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur samtals að fjárhæð 22.799 kr. að meðtöldu álagi.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 1. júlí 2014 og var umsóknin samþykkt. Kærandi óskaði eftir því, þann 2. júní 2015, að vera afskráður af atvinnuleysisskrá. Samkvæmt tilkynningu frá kæranda hóf hann störf hjá B frá og með 1. júní 2015. Með bréfi, dags. 12. ágúst 2015, var kæranda tilkynnt að við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að hann hefði haft tekjur frá B að fjárhæð 126.034 kr. í maí 2015 án þess að gera grein fyrir þeim á sama tíma og hann hafi þegið atvinnuleysisbætur. Þá var óskað eftir skýringum kæranda á framangreindum tekjum. Með tölvupósti sama dag barst Vinnumálastofnun launaseðill frá B fyrir maímánuð 2015. Starfsmaður Vinnumálastofnunar greindi frá því að kærandi hafi ekki vitað hvort hann fengi greitt fyrir vinnu sína í maí þar sem hann hafi verið til reynslu hjá fyrirtækinu eftir að hann hafi lokið [...].

Með bréfi, dags. 2. september 2015, var kæranda tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hann skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hann hafi verið að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna. Þá var kærandi krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, samtals að fjárhæð 22.799 kr. með 15% álagi á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Samkvæmt samskiptasögu kæranda hjá Vinnumálastofnun mætti hann á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þann 3. september 2015 í kjölfar birtingar ákvörðunarinnar. Óskaði hann eftir því að mál hans yrði tekið fyrir að nýju og var mál hans í kjölfarið tekið fyrir aftur. Var kæranda tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun með bréfi, dags. 17. september 2015. Kærandi óskaði eftir því þann 28. september 2015 að Vinnumálastofnun rökstyddi ákvörðun sína. Rökstuðningur var sendur kæranda með bréfi, dags. 13. október 2015.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 30. nóvember 2015. Með bréfi, dags. 1. desember 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 12. janúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. janúar 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru eru ekki settar fram sérstakar kröfur, en af málatilbúnaði kæranda má ráða að hann krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Kærandi segir að hann hafi fengið tilboð frá B um að skoða aðstæður varðandi starf [...] félagsins í lok maí 2015. Hann hafi ekki verið kominn með réttindi sem [...] en hafi verið boðið að skoða aðstæður. Mánudaginn 25. maí 2015 hafi hann tekið sína fyrstu vakt og daginn eftir hafi hann komið á skrifstofu Vinnumálastofnunar á C og tilkynnt að verið væri að kynna fyrir honum starf sem honum stæði mögulega til boða. Honum hafi verið tjáð að hann ætti að láta vita þegar eitthvað væri komið á hreint. Dagana 27., 28. og 29. maí hafi hann verið í kynningu og þegar hann hafi fengið [...] sín 1. júní hafi honum verið boðið starfið. Hann hafi verið óviss hvort hann fengi greidd laun fyrir þennan reynslutíma, meðal annars vegna þess að hann hafi engin réttindi haft og hafi því ekki verið að vinna [...]. Hann hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um starfið þann 2. júní 2015 og óskað eftir afskráningu frá 1. júní sama árs.

Hann hafi fengið launaseðil fyrir maí, júní og júlí í einu lagi í lok júlí og þá fyrst hafi hann áttað sig á að hann hafi fengið greidd laun fyrir þá daga sem hann vann í maí 2015. Í framhaldi hafi hann fengið bréf frá Vinnumálastofnun 12. ágúst 2015 um að ofgreiðsla atvinnuleysistrygginga hafi átt sér stað þar sem hann hafi starfað samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og honum láðst að tilkynna það. Hann hafi endurgreitt ofgreiddar atvinnuleysisbætur um leið og mögulegt hafi verið.

Þegar hann hafi síðan sótt um atvinnuleysisbætur, eftir að ráðningartími hans hjá B hafði runnið sitt skeið haustið 2015, hafi honum verið tilkynnt að hann ætti ekki rétt til bóta fyrr en hann hefði starfað á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti tólf mánuði.

Kærandi segir að það sé með ólíkindum að honum sé gerð sú refsing sem raunin sé í hinni kærðu ákvörðun þegar ekki sé ágreiningur milli hans og starfsmanns Vinnumálastofnunar um þau samskipti sem þeir hafi átt í lok maí 2015. Þá hafi ekki verið véfengt að hann hafi ekki átt von á að fá greidd laun fyrir þann tíma sem hann hafi verið á reynslu hjá fyrrgreindu félagi áður en hann hafi fengið [...] sín viðurkennd. Það að fyrirtækið hafi greitt laun fyrir umrædda daga hafi komið sér í opna skjöldu og þegar í ljós hafi komið að hann hafi fengið greidd laun samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta hafi hann umsvifalaust endurgreitt ofgreiddar bætur. Telji hann vera langsótt að hann myndi meðvitað reyna svíkja út atvinnuleysisbætur í fjóra daga í ljósi þess hvað sé í húfi fyrir sig.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að rétt sé að taka fram að kærandi hafi endurgreitt Vinnumálastofnun ofgreiddar atvinnuleysistryggingar fyrir það tímabil sem hann hafi verið við vinnu hjá B. Kærandi virðist ekki gera kröfu um að fá greiddar atvinnuleysistryggingar fyrir það tímabil í kæru sinni til nefndarinnar. Mál þetta lúti því að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim, sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun, hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Í málinu sé óumdeilt að kærandi hafi starfað hjá B sem [...] í maí 2015. Á sama tíma hafi hann þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Kærandi segist ekki hafi vitað hvort hann fengi greitt fyrir störf sín. Ekki verði fallist á að þær skýringar kæranda teljist gildar. Það hafi ekki áhrif á skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna um vinnu sína að hann telji óvíst hvort eða hvenær hann fái greidd laun fyrir störf sín. Sá sem taki að sér vinnu beri að tilkynna um slíkt til Vinnumálastofnunar, enda sé hann ekki í virkri atvinnuleit þann tíma sem hann sinni störfum.

Af hálfu Vinnumálastofnunar kemur jafnframt fram að kærandi segist einnig hafa tilkynnt um þessa vinnu sína á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Engar upplýsingar úr tölvukerfi stofnunarinnar eða gögn sem kærandi hafi fært fram í máli þessu bendi til þess að kærandi hafi tilkynnt um vinnu sína í maí 2015. Af samskiptasögu kæranda við Vinnumálastofnun verði ekki ráðið að hann hafi leitað til stofnunarinnar í maí 2015. Þá bendi stofnunin á að kærandi hafi haft samband við stofnunina þann 2. júní 2015 og óskað eftir því að fá skattkort sitt afhent og að vera afskráður frá og með 1. júní 2015. Það liggi fyrir að kærandi hafi hafið störf hjá B þann 25. maí 2015. Því sé ekki unnt að fallast á að kærandi hafi í umrætt sinn tilkynnt um vinnu sína með fullnægjandi hætti. Kæranda hafi augljóslega verið ljóst hvenær hann hafi hafið störf en kærandi hafi kosið í tilkynningu sinni til Vinnumálastofnunar að láta ógert að upplýsa um raunverulegan upphafsdag vinnu sinnar.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn sinnt störfum á innlendum vinnumarkaði án þess að tilkynna um vinnu sína. Í ljósi þeirrar skyldu, sem hvíli á atvinnuleitendum til að tilkynna stofnuninni um tekjur og skýrrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina. Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistrygginga.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Af gögnum málsins verður ráðið að hin kærða ákvörðun sé byggð á 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2547/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hann hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð á fullnægjandi hátt áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 17. september 2015, í máli A, um að staðfesta fyrri ákvörðun, dags. 2. september 2015, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.


F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum