Hoppa yfir valmynd
7. maí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 167/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 167/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU20030013 og KNU20040018

Beiðni [...] og barns hennar um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 69/2020, dags. 27. febrúar 2020, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. september 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn einstaklings sem kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi) um alþjóðlega vernd og vísa henni frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 2. mars 2020. Þann 9. mars 2020 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Þann 8. apríl 2020 leiðbeindi kærunefnd kæranda, með vísan til þeirrar stöðu sem uppi sé vegna Covid-19 faraldursins, að óska eftir endurupptöku máls hennar hjá nefndinni. Þann 15. apríl 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins.

Beiðni kæranda um endurupptöku byggir á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til tölvupósts, dags. 8. apríl sl., sem formaður kærunefndar útlendingamála sendi talsmanni hennar þar sem kærandi telji að fram hafi komið að til stæði að endurskoða og eftir atvikum endurupptaka mál kæranda vegna heimsfaraldurs Covid-19. Kærandi óskar eftir því að kærunefnd felli ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og leggi fyrir stofnunina að taka umsókn hennar til efnismeðferðar.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kæranda og barns hennar þann 27. febrúar 2020. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærandi hefði slík tengsl við landið að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Til stuðnings kröfu um endurupptöku vísar kærandi m.a. til tölvupósts frá formanni kærunefndar útlendingamála, dags. 8. apríl 2020, þar sem fram hafi komið að til stæði að endurskoða og eftir atvikum endurupptaka mál kæranda vegna heimsfaraldurs Covid-19.

Við úrlausn málsins hefur kærunefnd litið til hinna sérstöku aðstæðna sem eru uppi í ljósi Covid-19 faraldursins, þeirra erfiðleika sem Ítalía hefur glímt við vegna hans, þeirra áhrifa sem hann kann að hafa á aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu og þeirrar óvissu sem ríkir um framhaldið. Þá hefur kærunefnd jafnframt litið til forsendna úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 69/2020 og málsins í heild. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að aðstæður á Ítalíu hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli kæranda og barns hennar var kveðinn upp, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd fellst því á beiðni kæranda um endurupptöku máls hennar og barns hennar.

Í ljósi þess að endurupptökubeiðni kæranda og barns hennar hefur verið samþykkt leiðir það til þess að úrskurður kærunefndar nr. 69/2020 hefur fallið úr gildi. Hefur það því ekki þýðingu fyrir mál kæranda að taka upphaflega beiðni hennar um frestun réttaráhrifa, dags. 9. mars 2020, á umræddum úrskurði til úrlausnar og er henni hér með vísað frá.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá koma fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra eða annars fjölskyldumeðlims sem hefur það á framfæri sínu skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman. Við það mat beri meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 24. júní 2019. Barn kæranda er fætt hér á landi þann [...]. Kærandi hefur m.a. greint frá andlegri vanlíðan og bágum aðstæðum sínum á Ítalíu. Í úrskurði kærunefndar í máli kæranda og barns hennar, dags. 27. febrúar 2020, byggði kærunefnd á því að ekki væru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem lægju fyrir um aðstæður á Ítalíu og gagna í málinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi og barn hennar gætu leitað sér fullnægjandi þjónustu á Ítalíu í samræmi við þarfir sínar, þ. á m. heilbrigðisþjónustu.

Frá því að kærunefnd útlendingamála úrskurðaði í máli kæranda og barns hennar þann 27. febrúar 2020 hafa aðstæður breyst verulega í viðtökuríkinu með tilkomu Covid-19 faraldursins. Ljóst er að faraldurinn mun hafa verulegar neikvæðar efnahagslegar afleiðingar sem og neikvæð áhrif á innviði ríkisins. Að mati kæruefndar er getur þetta leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ. á m. heilbrigðisþjónustu.

Þá liggur fyrir að vegna útbreiðslu Covid-19 faraldursins hafa mörg ríki, þ.m.t. viðtökuríkið, sett á ferðatakmarkanir og mörg hver lokað tímabundið fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en óvíst er hvenær opnað verði aftur fyrir endursendingar.

Í ljósi þeirra áskorana sem viðtökuríkið hefur glímt við um nokkurt skeið í tengslum við aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að innviðum og lagalegum réttindum og með vísan til þeirra erfiðleika sem ætla má að Covid-19 faraldurinn leiði til í ríkinu telur kærunefnd, að svo stöddu, að ástæða sé til að ætla að ekki sé um að ræða svo tímabundið ástand að hjá því verði litið.

Að mati kærunefndar mæla því sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með því að mál kæranda og barns hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, m.a. með vísan til samverkandi áhrifa stöðu kæranda og barns hennar í viðtökuríki, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Ítalíu og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiðir að öðru leyti.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á, og í ljósi heildarmats á aðstæðum kæranda og barns hennar, að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og barns hennar og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar og barns hennar.Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa er vísað frá.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barns hennar til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of her case is granted.The appellant‘s request to suspend legal effects is dismissed.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s and her child‘s application for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Árni Helgason                                                                      Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum