Hoppa yfir valmynd
10. desember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 421/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. desember 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 421/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20110005

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 3. nóvember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. október 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi, í fyrsta lagi með vísan til 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Í öðru lagi krefst kærandi þess að umsóknin verði tekin til efnismeðferðar með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í þriðja lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 42. gr. laganna og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. júní 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann 6. júlí 2020 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þá kom þar fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi þann 11. október 2019. Við meðferð málsins framvísaði kærandi grísku flóttamannavegabréfi með gildistíma til 23. desember 2024. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 15. september 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 19. október 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 20. október 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 3. nóvember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 12. nóvember 2020 ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótargögn frá kæranda þann 26. og 27. nóvember 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og athygli hans vakin á því að yfirgæfi hann ekki landið innan frests væri heimilt að brottvísa honum. Í brottvísun fælist bann við komu til landsins síðar og endurkomubann skyldi að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til viðtals hans hjá Útlendingastofnun og greinargerðar hans til Útlendingastofnunar. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi dvalið í um eitt og hálft ár í Grikklandi og hafi aðstæður þar verið afar slæmar. Kærandi hafi fengið lága framfærslu og húsnæði í þá 11 mánuði sem hann hafi verið umsækjandi um alþjóðlega vernd þar í landi en eftir veitingu hennar hafi hann misst allan stuðning. Kærandi hafi m.a. reynt að afla upplýsinga um sameiningu við fjölskyldumeðlimi sína þar sem kona hans og ung börn séu enn í [...]. Jafnvel þó að hann hefði fengið aðstoð við að fá þau til Grikklands myndi kærandi ekki bjóða þeim í svo óboðlegar aðstæður. Engin aðlögun hafi verið í boði, félagsaðstoð eða aðstoð við atvinnuleit. Kærandi hafi lýst atviki þar sem hann hafi verið í atvinnuleit en orðið fyrir ofbeldi af hendi hóps Grikkja sem hafi viljað meina honum inngöngu í þorp þar sem kærandi ætlaði sér að sækja um starf. Eftir árásina hafi hann þurft að leita á sjúkrahús og rætt í kjölfarið við lögreglu sem hafi ekki aðhafst í máli hans. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu vegna skorts á sjúkratryggingu. Kærandi hafi þurft á aðstoð að halda vegna brunasára á fótum og höndum eftir sprengingu í [...]. Hann hafi ekki fengið tíma hjá heilbrigðisyfirvöldum og aðeins verið afhent verkjalyf.

Í greinargerð sinni til kærunefndar vísar kærandi til þess að andlegri heilsu hans hafi hrakað mikið eftir að hann hafi fengið neikvæða niðurstöðu á umsókn sinni hjá Útlendingastofnun. Kærandi hafi miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni í heimaríki en nýlega hafi eiginkona hans og börn orðið fyrir árás á [...]. Kærandi telur sig hafa verið vísað á bráðaþjónustu geðsviðs en þegar hann kom þangað hafi ekki verið hægt að ræða við kæranda um andlega erfiðleika hans nema að undangenginni skimun vegna kvefeinkenna. Í heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. nóvember 2020, komi fram að kærandi hafi greint frá því að hann sofi illa, hrökkvi auðveldlega upp, upplifi minnkaða matarlyst og mikla streitu.

Í greinargerð kæranda er vísað til fylgiskjals með greinargerð hans til Útlendingastofnunar um almennar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi. Þar er m.a. fjallað um takmarkað aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks að húsnæði, félagslegri aðstoð, heilbrigðisþjónustu og atvinnu með vísan til skýrslna alþjóðlegra stofnana og mannréttindasamtaka. Þá er einnig fjallað um hve algengir hatursglæpir og fordómar séu gagnvart flóttafólki, þ. á m. af hálfu lögreglunnar þar í landi.

Kærandi gerir nokkrar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun, þ. á m. við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Kærandi gerir athugasemd við umfjöllun stofnunarinnar um aðgengi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði. Vísi kærandi til þess að þrátt fyrir að flóttafólk hafi lagalegan rétt til jafns við gríska ríkisborgara til félagslegrar aðstoðar sé raunin önnur og standi flóttafólk frammi fyrir alvarlegri mismunun þar í landi á því sviði. Kærandi vísar máli sínu til stuðnings til skýrslu Asylum Information Database (AIDA) og fleiri heimilda. Heimildirnar beri með sér að skortur sé á húsnæði fyrir flóttafólk og sé flóttafólki nær ómögulegt að sækja sér fjárhagsaðstoð frá gríska ríkinu. Þá sé nær ómögulegt fyrir flóttafólk að uppfylla kröfur stjórnvalda fyrir félagslegri aðstoð, þ. á m. kröfur um skattnúmer, kennitölu og bankareikning fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Þá gerir kærandi athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að í dvalarleyfi einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd felist óhindraður aðgangur að atvinnumarkaði landsins. Kærandi bendir á að heimildir bendi til hins gagnstæða auk þess sem kærandi hafi greint frá því að hafa orðið fyrir líkamsárás af hendi grískra ríkisborgara þegar hann hafi verið á leið sinni að sækja um starf. Erfiðleikar við útgáfu skattnúmera, skráningu á atvinnuleysisskrá og tafir innan grísku stjórnsýslunnar hindri sérstaklega flóttafólk við leit að atvinnu. Þá leiði fyrrgreint einnig til þess að fólk leiti í ólöglega vinnu við slæmar aðstæður. Kærandi gerir jafnframt athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar um aðgengi kæranda að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að hann hafi í viðtali hjá stofnuninni greint frá því að hann hafi ekki haft slíkan aðgang þar sem hann hafi ekki haft heilbrigðistryggingu. Kærandi vísar til þess að raunverulegt aðgengi flóttafólks að heilbrigðiskerfinu sé verulega takmarkað vegna gríðarlegs niðurskurðar síðustu ár. Sumarið 2019 hafi félags- og vinnumálaráðherra Grikklands tekið þá ákvörðun að stöðva útgáfu kennitala til m.a. umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks. Þá telur kærandi að það álag sem sé á grískt heilbrigðiskerfi vegna Covid-19 faraldursins muni síður en svo hafa jákvæð áhrif á þá þjónustu sem standi flóttafólki til boða þar í landi. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þær aðgerðir sem gríska ríkið hafi gripið til við að stemma stigu við kynþáttafordómum og mismunun í Grikklandi og vísar til heimilda í því sambandi sem beri með sér að ofbeldi og hatursglæpir gagnvart flóttafólki séu algengir í Grikklandi. Þá sé ofbeldi af hálfu lögreglunnar gagnvart flóttafólki jafnframt áhyggjuefni og hafi gríski umboðsmaðurinn fellt sumt af því ofbeldi undir pyndingar. Kærandi vísar þar með fullyrðingum Útlendingastofnunar á bug um að hann geti leitað á náðir lögreglu eða annarra yfirvalda telji hann á sér brotið. Loks vísi kærandi til þess að í hinni kærðu ákvörðun sé það mat stofnunarinnar að réttindi flóttafólks séu tryggð með lagasetningu en stofnunin kjósi að líta alfarið framhjá þeirri framkvæmd sem viðgangist hjá grískum stjórnvöldum.

Varðandi kröfur kæranda og málsástæður er vísað til greinargerðar hans til Útlendingastofnunar. Í fyrsta lagi gerir kærandi kröfu um efnismeðferð á grundvelli jafnræðisreglu og þess að ekki séu lagaskilyrði fyrir því að víkja frá nýlegum fordæmum kærunefndar útlendingamála um að mál þeirra sem hér sæki um alþjóðlega vernd eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi hljóti efnismeðferð. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí 2020 þar sem það hafi verið mat kærunefndar að sérstakar ástæður mæltu með því að mál kæranda yrði tekið til efnismeðferðar hér á landi, m.a. með vísan til samverkandi áhrifa stöðu kæranda í viðtökuríki, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiði að öðru leyti. Kærandi telur að af stöðu og hlutverki kærunefndar leiði það að úrskurðir nefndarinnar séu bindandi fordæmi fyrir Útlendingastofnun. Í málinu liggi fyrir nýlegt, skýrt og bindandi fordæmi. Þá bendi kærandi á ummæli í fyrrgreindum úrskurði um stöðu kæranda í viðtökuríki og þær áskoranir sem viðtökuríkið hafi glímt við um nokkurt skeið í tengslum við aðgengi þeirra sem njóta alþjóðlegrar verndar að innviðum og lagalegum réttindum. Kærandi heldur því fram að ekkert hafi breyst til batnaðar frá því að fyrrgreindur úrskurður féll varðandi stöðu flóttafólks í Grikklandi eða varðandi áhrif Covid-19 sem hrundið gæti fordæmisgefandi gildi hans. Ástandi sé enn fordæmalaust eins og komist hafi verið að orði í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins um breytt mat Útlendingastofnunar vegna Covid-19. Skýrslur, fréttaflutningur og aðrar heimildir beri með sér að aðstæður flóttafólks í Grikklandi hafi einungis versnað, mismunun og fordómar hafi jafnvel aukist. Kærandi vísar til þess að engar breytingar hafi verið gerðar á þeim lögum eða reglum sem við eiga frá framangreindum úrskurði kærunefndar. Kærandi telji að á þessum grunni séu hvorki forsendur né lagaskilyrði til staðar fyrir því að víkja frá fordæmi kærunefndar útlendingamála og að Útlendingastofnun verði að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í þessu sambandi vísar kærandi til þess í greinargerð sinni til kærunefndar að þó svo að grískt hagkerfi nái sér að einhverju leyti á strik aftur sé ekki hægt að líta framhjá því að líklegra sé en ekki að Grikkland, sem og önnur ríki, verði mun lengur að glíma við afleiðingar faraldursins. Verði því ekki séð að hægt verði að tryggja umsækjendum um alþjóðlega vernd eða flóttafólki réttindi sín og aðgengi að innviðum á annan eða betri hátt en áður en heimsfaraldur Covid-19 hafi skollið á. Kærandi telji að orðalag í fyrrgreindum úrskurði kærunefndar sé ekki bundið við að Covid-19 sé algjörlega óþekktur faraldur heldur sé um samtvinnun að ræða á því bága aðgengi sem flóttafólk hafi að innviðum og lagalegum réttindum í Grikklandi um langt skeið við það ástand sem ríkti og ríki enn vegna heimsfaraldursins. Þá telji kærandi ljóst að staða þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi sé umtalsvert verri en þeirra sem séu umsækjendur um alþjóðlega vernd. Líkt og frásögn kæranda hafi borið með sér hafi staða kæranda farið versnandi eftir að hann fékk vernd í landinu.

Krafa kæranda er í öðru lagi byggð á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og þær afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, auk þess að meta hvort kærandi sé einstaklingur í viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga. Með tilliti til frásagnar hans af dvöl sinni í Grikklandi og með vísan til framangreindra heimilda um aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi sé ljóst að kærandi muni verða fyrir alvarlegri mismunun þar í landi, sbr. 32. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Um mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísi kærandi til úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 í stjórnsýslumálum nr. KNU17080037 og nr. KNU17070049, og úrskurða frá 24. október 2017 í stjórnsýslumálum nr. KNU17080006 og nr. KNU17070041. Í tilgreindum úrskurðum hafi verið lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna og telji kærandi málin sambærileg máli hans. Kærandi vísar til þess að hann hafi búið við óviðunandi aðstæður í Grikklandi þar sem hann hafi eftir verndarveitingu hvorki fengið húsnæði né framfærslu frá yfirvöldum eða viðunandi aðgang að heilbrigðisþjónustu eða atvinnumarkaði og sé frásögn hans í samræmi við heimildir. Þá mótmæli kærandi því mati Útlendingastofnunar að upptalning á fordæmum kærunefndar útlendingamála er varða mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, eigi ekki við þar sem um önnur upprunaríki sé að ræða í málunum. Kærandi vísar til þess að heildrænt mat þurfi að fara fram á aðstæðum kæranda, byggt á reglugerðarákvæðinu og því sem sé nefnt þar í dæmaskyni. Sé einsýnt að samskonar mat þurfi að fara fram á því hvort kærandi eigi raunverulegan möguleika á því að sækja sér réttindi sín og lífsnauðsynlega þjónustu. Kærandi telji ljóst að ekki hafi farið fram heildstætt mat á raunverulegum aðstæðum kæranda og hvetji hann nefndina til að vanda rökstuðning sinn og taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda við mat á mögulegri endursendingu kæranda til Grikklands.

Kærandi byggir í þriðja lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem kærandi njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement eða bann við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu eða líkur séu á að það muni sæta pyndingum eða ómannúðlegri meðferð, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Einnig sé kveðið á um regluna í 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna og 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Lýsingar kæranda á aðstæðum sínum í Grikklandi komi heim og saman við opinberar heimildir um aðstæður þar í landi, m.a. varðandi atvinnu, húsnæði, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Með vísan til þess verði að telja að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi ákvörðunin brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Íslenskum stjórnvöldum beri því skylda að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga.

Í fjórða lagi gerir kærandi kröfu um efnismeðferð á þeim grundvelli að ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja honum um efnismeðferð hér á landi sé brot á jafnræðisreglu. Vísar kærandi til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi þróað aðferðafræði sem greini ólögmæta mismunun sem slíka. Vísi kærandi til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar en öðru gegni um einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd. Núgildandi lög um útlendinga geri ekki greinarmun á því hvort einstaklingur falli undir a- eða c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þegar komi að því að meta sérstakar ástæður. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til dóma Evrópudómstólsins. Kærandi vísar til þess að í viðtökuríki hafi hann ekki haft aðgengi að húsnæði, heilbrigðisþjónustu eða félagslegri þjónustu. Samkvæmt 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar skuli því taka umsókn hans til efnismeðferðar til samræmis við það sem sé gert þegar einstaklingar heyri undir Dyflinnarreglugerðina.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019;
  • 2019 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the world (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 26. nóvember 2020) og
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 30. nóvember 2020).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu undir sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig getur verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hefur útgáfa kennitalna (AMKA) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi fengu allir umsækjendur um alþjóðlega vernd svokallað AMKA eða kennitölu (g. Αριθμός Μητρώου Κοινωνικής Ασφάλισης) sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 breyttust skilyrði fyrir útgáfu kennitalna (AMKA) og fá umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin ákveðin heilbrigðisþjónustunúmer (g. Προσωρινός Αριθμός Ασφάλισης και Υγειονομικής Περίθαλψης Αλλοδαπού) sem er tímabundið úrræði, meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fá útgefið kennitölu (AMKA) sem telst varanlegt úrræði. Þegar umsækjandi hlýtur alþjóðlega vernd í Grikklandi verður heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hlýtur dvalarleyfi. Einstaklingar geta þá í kjölfarið sótt um kennitölu (AMKA) í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um kennitölu (AMKA) þurfa einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði uppá gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði eru í Grikklandi eru t.d. bætur fyrir fjölskyldur (e. Family allowance) en skilyrði fyrir slíkum bótum er að sýnt sé fram á tíu ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veita grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk (g. Κοινωνικό Επίδομα Αλληλεγγύης, KEA). Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfa m.a. að hafa kennitölu, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Samkvæmt framangreindri skýrslu er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá eru engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði í reynd. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki er þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi er hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga ásamt erfiðleikum við að fá skattnúmerið útgefið dregur úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Samkvæmt rannsókn frá 2018 hafi þeir flóttamenn sem hafi verið með atvinnu þar í landi venjulega verið í óskráðu starfi sem leiðir m.a. til þess að þeir hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur reiða sig á dreifingu matvæla, muna og fjárhagsaðstoð við grunnþörfum sínum. Þetta leiðir oft til þess að einstaklingar fari út í ólöglega tekjuöflun sem hindrar þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer (g. Αριθμός Φορολογικού Μητρώου, AFM), hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers er grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega á Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið er forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Þar sem umsóknarferlið fer einungis fram á grísku geta umsækjendur leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála fyrr á árinu fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þarf að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir skv. lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku tungumáli. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjá um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu lengdist töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó þurfi enn frekari aðgerðir. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2019 kemur fram að dæmi eru um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur eru ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsakar meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar eru á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla er tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Í fyrrnefndri skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi geta sótt um fjölskyldusameiningu. Þá kemur fram að einstaklingur sem ekki er í hjúskap en sannanlega er í sambandi með einstaklingi sem hlotið hefur alþjóðlega vernd á rétt á fjölskyldusameiningu en færa þarf sönnur fyrir sambandinu. Þá má einnig ráða af framangreindum skýrslum að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir skorður á möguleikum einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til fjölskyldusameiningar í Grikklandi. Kemur þar m.a. fram að samkvæmt grískum lögum eiga einstaklingar sem hlotið hafa viðbótarvernd í Grikklandi ekki rétt á fjölskyldusameiningu og þá eru ýmsar hömlur fyrir þá sem eru með réttarstöðu flóttamanns, m.a. vegna langs afgreiðslutíma umsókna, kröfu stjórnvalda til framlagningar gagna og erfiðleika við útgáfu vegabréfsáritana fyrir fjölskyldumeðlimi þegar umsókn hefur verið samþykkt.

Í skýrslu ECRE kemur fram að handhöfum alþjóðlegrar verndar á Grikklandi sé veitt dvalarleyfi til þriggja ára. Þá fá einstaklingar sem hafa hlotið viðbótarvernd, dvalarleyfi til eins árs sem sé hægt að framlengja að þeim tíma loknum til tveggja ára og sama gildir um þá sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna. Þá kemur fram að umsókn um framlengingu dvalarleyfis skuli fara fram ekki seinna en 30 dögum áður en leyfið rennur út. Þrátt fyrir að umsókn um endurnýjun dvalarleyfis berist of seint kemur fram að það eitt og sér hafi ekki í för með sér að umsókninni verði synjað. Frá árinu 2017 hefur umsókn um endurnýjun farið fram í gegnum tölvupóst. Þeir einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru ólæsir hafa því mætt hindrunum við að fá endurnýjun á dvalarleyfum sínum. Þá kemur fram í skýrslunni að yfirleitt taki um einn og hálfan mánuð að fá dvalarleyfi endurnýjað þó dæmi séu um að endurnýjun hafi tekið um sex mánuði. Við endurnýjun fer fram skoðun á sakaskrá einstaklingsins. Ef dvalarleyfi rennur út á meðan einstaklingur bíður eftir endurnýjun á hann rétt á að fá útgefið vottorð sem gefur til kynna að hann hafi sótt um endurnýjun og er gilt í fjóra mánuði. Dæmi eru þó um að handhafar slíks vottorðs hafi átt í erfiðleikum með að nálgast tiltekin félagsleg réttindi eins og fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Þá sé vinnumálastofnun Grikklands (Manpower Employment Organization (OAED)) gjarnan treg til að taka á móti slíkum vottorðum þar sem vottorðin eru m.a. án myndar af einstaklingnum og ekki vatnsmerkt.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að andleg og líkamleg heilsa hans væri fín en hann fyndi fyrir verkjum í fótum eftir að mótorhjól hans hafi sprungið nálægt honum í tengslum við átök í heimaríki.

Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram gögn um heilsufar frá Göngudeild sóttvarna, bráðamóttöku geðdeildar Landspítala og heilsugæslunni Efstaleiti og í Keflavík. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 29. júlí 2020, kemur fram að kærandi sé almennt hraustur. Þá hafi kærandi leitað á heilsugæslu Keflavíkur vegna brunasára á fæti og il sem væru fimm ára gömul og hafi fengið ávísað kremi vegna þess, sbr. samskiptaseðill heilsugæslunnar í Keflavík, dags. 28. september 2020. Samkvæmt gögnum frá bráðaþjónustu geðsviðs Landspítalans, dags. 22. október 2020, hafi kærandi leitað á bráðamóttöku geðdeildar þar sem hann hugðist óska eftir að ræða við geðlækni en ekki hafi verið unnt að ræða við hann án undangenginnar skimunar fyrir Covid-19 vegna kvefeinkenna kæranda. Samkvæmt samskiptaseðli Göngudeildar sóttvarna hefur kærandi notið þjónustu sálfræðings hér á landi. Í samskiptaseðli Göngudeildar sóttvarna, dags. 23. nóvember 2020, kemur fram að kæranda líði mjög illa og hafi greint frá því að faðir hans og frændi væru látnir úr Covid-19 og vegna sprengjuárása í heimaríki færu börn hans ekki í skólann. Þá hafi kærandi verið með mikinn kvíða. Samkvæmt gögnum frá heilsugæslunni Efstaleiti, dags. 26. nóvember 2020, hafi kærandi leitað á heilsugæsluna vegna höfuðverks bakvið vinstra auga, dofa í andliti og niður vinstri hendi og fótlegg. Kærandi kvað þessi einkenni hafa gert vart við sig af og til frá árinu 2014 en hann tengi þau við andlegt álag og kvíða. Þá hafi kærandi einnig greint frá því að hann sofi illa. Fram kemur að kærandi hafi fengið ávísað tilteknum lyfjum og beiðni fyrir sjúkraþjálfun vegna vöðvabólgu í herðum og hálsi og að muni halda áfram sálfræðimeðferð á vegum Útlendingastofnunar.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 26. nóvember 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögn um heilsufar þá 26. og 27. nóvember sl. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, en m.a. hafa heilsufarsvandamál hans verið rakin sem og sú aðstoð sem hann hefur fengið hér á landi. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa ekki notið heilbrigðisaðstoðar í Grikklandi þar sem hann hafi ekki haft sjúkratryggingu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Grikklandi áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærandi hefur þá m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans þar sem hann hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Grikklandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu að einhverju leyti lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi.

Kærunefnd vill þá árétta að líkt og að framan greinir, og fram kom m.a. í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051, virðast vera ýmsar hindranir á möguleikum flóttamanna til þess að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en númerið er, líkt og áður hefur komið fram, nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd geti mætt ýmsum hindrunum við umsókn og útgáfu skattnúmers þá bendi gögn og skýrslur um Grikkland ekki til þess að það sé þeim ómögulegt. Þá telur kærunefnd það sama eiga við um útgáfu kennitalna (AMKA) til flóttamanna, sem veitir þeim m.a. aðgang að heilbrigðisþjónustu í landinu. Í fyrrgreindum málum var það m.a. mat nefndarinnar að í ljósi aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi, og þeirrar stöðu sem uppi var á þeim tíma vegna átaka við landamærin og fordæmalausrar stöðu vegna Covid-19 faraldursins, að ástæða hafi verið til að ætla að foreldrar með börn á framfæri sínu væru í verri aðstöðu en áður til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldu sinni og verða sér úti um húsnæði, og þar með tryggja grunnþarfir barnanna. Í því máli sem hér er til meðferðar, er kærandi almennt heilbrigður og vinnufær karlmaður sem kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hann þarf á að halda í viðtökuríki, þ. á m. afla sér skattnúmers og kennitölu, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann óttist um öryggi sitt í Grikklandi og að hann hafi orðið fyrir ofbeldi þegar hann hugðist sækja um atvinnu þar í landi. Af framangreindum gögnum má ráða að flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann sjái ekki fram á að geta sameinast fjölskyldu sinni í viðtökuríki. Samkvæmt gögnum málsins hafa einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi möguleika á fjölskyldusameiningu þar í landi að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Kærunefnd telur að ekkert bendi til þess að skilyrðin fyrir fjölskyldusameiningu í Grikklandi séu í ósamræmi við regluverk Evrópusambandsins, sbr. tilskipun nr. 2003/86/EC frá 22. september 2003 um fjölskyldusameiningu. Af framangreindum gögnum verður ráðið að kærandi geti sótt um fjölskyldusameiningu á grundvelli alþjóðlegrar verndar sinnar í Grikklandi, þó svo að kærandi þurfi að yfirstíga ákveðnar hindranir til þess. Að mati kærunefndar er ekki unnt að líta svo á að reglur um fjölskyldusameiningu í Grikklandi eða framkvæmd þeirra séu þess eðlis að litið verði svo á að kærandi eigi erfitt uppdráttar af þeim sökum.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og mörg hver á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Samkvæmt upplýsingasíðu John Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu hefur nýgengi Covid-19 smita í Grikklandi minnkað undanfarnar vikur eftir nokkuð öran vöxt fram yfir miðjan nóvember. Yfirvöld í Grikklandi hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, útgöngubanni á ákveðnum tíma dags, grímuskyldu á almenningsstöðum, vinnustöðum og almenningssamgöngum, banni við að ferðast innanlands nema vegna sérstakra ástæðna, landamæraskimun og sóttkví. Til að ábyrgjast málsmeðferð og þjónustu til umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa yfirvöld útlendingamála (e. Asylum Service Offices) í Grikklandi opnað rafrænan vettvang þar sem einstaklingar eiga þess kost að sækja um vernd. Hyggjast einstaklingar sækja um vernd þurfa þeir að bóka viðtal í gegnum forritið Skype. Skipulögð viðtöl við umsækjendur um alþjóðlega vernd fara þó fram með venjubundnum hætti og hafa aðrar ráðstafanir verið gerðar í tengslum við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, þ. á m. viðkvæmra einstaklinga og umsókna um fjölskyldusameiningu. Jafnframt hafa stjórnvöld framlengt gildistíma á útrunnum dvalarleyfisskírteinum sjálfkrafa en ný dvalarleyfisskírteini er hægt að sækja með því að panta tíma fyrirfram hjá yfirvöldum útlendingamála. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna aðstoðað grísk stjórnvöld í baráttunni við veiruna, m.a. með því að veita aðstoð til flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd í landinu. Hefur stofnunin m.a. veitt viðeigandi stuðning svo flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisstofnunum og annarri þjónustu. Þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað núna í haust í Grikklandi hefur kærunefnd ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að allar líkur eru á því að Lyfjastofnun Evrópu samþykki á næstu vikum notkun á nokkrum tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að bólusetning hefjist í janúar í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að það ástand sem nú ríki, sem kærunefnd hefur ekki forsendur til að telja annað en tímabundið, komi til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Grikklands geti ekki eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.Þá er það jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU19110026 frá 20. maí sl., telur kærunefnd að þrátt fyrir að um sama viðtökuríki sé að ræða sé ekki unnt að jafna aðstæðum kæranda í þessu máli við stöðu kæranda í framangreindu máli. Í niðurstöðu úrskurðar kærunefndar í framangreindum úrskurði kemur m.a. fram að nefndin telji að neikvæðar afleiðingar Covid-19 faraldursins geti leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd í Grikklandi. Var umsókn kæranda m.a. af þeirri ástæðu tekin til efnismeðferðar hér á landi. Á þeim tímapunkti sem framangreindur úrskurður var kveðinn upp ríkti mikil óvissa í heiminum um hver áhrif Covid-19 faraldursins yrðu á innviði ríkja og réttindi og aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Jafnframt bárust fréttir af erfiðleikum grískra stjórnvalda við að ná tökum á aðstæðum. Sú óvissa var grundvallarforsenda þeirrar niðurstöðu kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar. Þá leit kærunefnd einnig til þeirrar framkvæmdar stofnunarinnar að taka sambærileg mál til efnismeðferðar á þessum tíma af þessum sömu ástæðum.

Kærunefnd telur að verulega hafi dregið úr óvissu sem til staðar var í maí sl. m.a. um áhrif faraldursins á innviði viðtökuríkisins og hefur kærunefnd hér að framan lagt einstaklingsbundið mat á væntanlegar aðstæður kæranda í viðtökuríkinu í samræmi við stöðu mála þar í landi eins og þær horfa við nú um stundir. Þó að faraldurinn hafi verið í uppsveiflu í Grikklandi fyrr í haust, eins og í flestum öðrum Evrópuríkjum, þá benda gögn ekki til þess að faraldurinn hafi haft þau áhrif þar í landi sem áður var talin hætta á. Kærunefnd telur með vísan til þeirra skýrslna og gagna sem nefndin hefur kynnt sér að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum vegna Covid-19 faraldursins þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá lítur kærunefnd jafnframt til þess að með tilkomu bóluefnis sjái nú fyrir endann á þeim aðstæðum sem ríkt hafa undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins, hér á landi sem og annars staðar, þ. á m. í Grikklandi. Það er því mat kærunefndar að sú óvissa sem ríkti í vor og leiddi til þess að umsóknir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi voru teknar til efnismeðferðar sé ekki lengur til staðar og því sé ekki um sérstakar ástæður að ræða í málinu í skilningi. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar í málum nr. KNU17080037 og KNU17070049 frá 10. október 2017 og úrskurða KNU17080006 og KNU17070041 frá 24. október 2017, tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda er ekki um sömu viðtökuríki að ræða auk þess sem aðstæður þeirra séu einnig ólíkar að öðru leyti. Þá eru þessir úrskurðir kveðnir upp áður en reglugerð um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017 tók gildi, en eins og áður hefur verið vikið að setti sú reglugerð tiltekin viðmið í dæmaskyni um beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af þeim sökum er fordæmisgildi þessara úrskurða enn takmarkaðra.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 15. september 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 26. júní 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á verði ákvörðun um að hann verði sendur til annars ríkis framfylgt þurfi að ná mjög háu alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn sé frelsissviptur, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væri bersýnilega tilhæfulaus.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Reglur stjórnsýsluréttar og athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar og mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans.

Kærandi gerir athugasemd við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu skv. 1. mgr. Skilgreining á stöðu skv. 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Jafnframt er ljóst að fyrir utan tilvísun til sérstaklegrar viðkvæmrar stöðu fylgdarlausra barna í 6. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er hvergi vikið að réttaráhrifum þess að einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu á grundvelli 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu og er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna athugasemdar kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi telji að íslenskum stjórnvöldum sé skylt, skv. 11. gr. stjórnsýslulaga og 65. gr. stjórnarskrárinnar, að taka umsókn hans til efnismeðferðar. Í því sambandi vísar kærandi til nýlegra dóma Evrópudómstólsins sem hann telur að hafi fordæmisgildi í málinu, en talsmaður kæranda telur að dómurinn hafi slegið því föstu að ekki sé heimilt að mismuna einstaklingum eftir því hvort viðkomandi hafi hlotið alþjóðlega vernd eða sé enn í umsóknarferli ef aðstæður sem þeirra bíða í viðtökuríki séu viðlíka slæmar.

Kærunefnd hefur áður fjallað um ofangreinda málsástæðu í úrskurði nr. KNU19110024, dags. 17. febrúar 2020. Í úrskurðinum var tekið fram að í umræddum dómum Evrópudómstólsins, í máli Jawo gegn Þýskalandi, nr. C-163/17 og sameinuðum málum Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, nr. C-297/17, C-318/17, C-319/17 og C-438/17, reyndi m.a. á túlkun á 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins (ESB) um grundvallarréttindi. Þátttaka Íslands í Dyflinnarsamstarfinu byggir á þátttöku í Schengen-samstarfinu, sbr. Brussel-samninginn sem fullgiltur var að hálfu Íslands þann 26. maí 2000, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Ísland er ekki aðili að ESB né aðili að sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þá hefur Dyflinnarreglugerðin (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 604/2013) ekki verið innleidd í íslensk lög að undanskildum ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga og er skuldbinding íslenska ríkisins í Dyflinnarsamstarfinu fyrst og fremst af þjóðaréttarlegum toga. Þrátt fyrir framangreint hafa íslensk stjórnvöld og dómstólar þó í framkvæmd vísað að einhverju leyti til dóma Evrópudómstólsins við túlkun á ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar í því skyni að tryggja einsleitna framkvæmd reglugerðarinnar. Slík sjónarmið eiga hins vegar ekki við í máli kæranda enda hefur hann hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi og því reynir ekki á beitingu ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar í málinu. Þá er Ísland líkt og áður greinir ekki aðili að sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og hefur tilvísun kæranda í framangreinda dóma, sem varða að stóru leyti túlkun á 4. gr. sáttmálans, því takmarkaða eða enga beina þýðingu fyrir íslenskan rétt. Þá er Ísland ekki aðili að sameiginlega evrópska hæliskerfinu (Common European Asylum System, CEAS) sem byggist fyrst og fremst á tilskipunum Evrópusambandsins um málsmeðferð, móttökuskilyrði og viðmið veitingar alþjóðlegrar verndar. Kærunefnd fellst því ekki á það með kæranda að framangreindir dómar Evrópudómstólsins hafi fordæmisgildi fyrir íslenskan rétt.

Engu að síður er hafið yfir vafa að sú vernd sem felst í 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu á við alla einstaklinga sem fluttir eru frá aðildarríki sáttmálans til annarra landa, hvort sem grundvöllurinn er brottvísun, frávísun, framsal, eða flutningur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Tilvísuð ummæli dóms Evrópudómstólsins í sem m.a. koma fram í dómi hans í máli Ibrahim o.fl. er því ekki nýmæli heldur í samræmi við þau viðmið sem nefndin hefur stuðst við. Hins vegar er ljóst, eins og fjallað hefur verið um að ofan, að aðstæður kæranda, sem er handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi, eru ekki af því alvarleikastigi að þær nái þeim háa þröskuldi sem dómar Mannréttindadómstól Evrópu og Evrópudómstólsins hafa sett fyrir broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstólsins í Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og vísað var til hér að framan og ummæli í dómum Evrópudómstólsins í málum Jawo og Ibrahim sem talsmaður kæranda vísaði sjálfur til. Kærunefnd telur að aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd sem sendir eru aftur til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi séu almennt ekki sambærilegar þrátt fyrir staðhæfingar talsmanns kæranda um annað. Við það mat vísar kærunefnd til fyrri umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi en þar kemur fram að þeir hafi hlotið rétt til dvalar í Grikklandi og njóta því, ólíkt þeim sem eru í umsóknarferli, sambærilegra réttinda og ríkisborgarar Grikklands, einkum hvað varðar aðgengi að atvinnumarkaði, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu.

Kærunefnd áréttar sérstaklega í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar á grundvelli 2. eða 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hvert mál er því skoðað í ljósi þeirra viðmiða sem nefndinni ber að fara eftir, hvort sem þau viðmið eiga stoð í íslenskum lögum eða alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins. Í þessu sambandi bendir kærunefnd á að nefndin hefur aldrei fengið til umfjöllunar ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem einstaklingur sem sótt hefur um vernd í Grikklandi er endursendur þangað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Nefndin hefur því ekki fjallað um hvort slík endursending sé ósamrýmanleg 2. eða 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins. Séu aðstæður sambærilegar, eins og talsmaður kæranda heldur fram, kann að vera ástæða fyrir Útlendingastofnun, að undangenginni ítarlegri skoðun á aðstæðum í Grikklandi, að endurmeta þá stefnu að senda ekki umsækjendur þangað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Nefndin minnir jafnframt á að nokkur önnur aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa á síðustu árum endursent umsækjendur þangað á grundvelli nefndrar reglugerðar.

Með greinargerð kæranda fylgdi skjal sem í greinargerð er kallað „Umfjöllun Rauða krossins á Íslandi um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi“ og er frá september 2020. Skjalið ber með sér að vera útbúið af Rauða krossi Íslands, þeirri stofnun sem hefur með höndum talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í greinargerð er vísað til skjalsins eins og það sé sjálfstæð og hlutlæg heimild um aðbúnað flóttamanna í Grikklandi og lýsi staðreyndum en ekki röksemdum. Skjalið innheldur m.a. umfjöllun um aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi og er að því leyti villandi og óviðkomandi því máli sem hér er til umfjöllunar sem fjallar um umsækjanda sem er með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Þá er í upphafi skjalsins vísað á villandi hátt til hollensks dóms sem felldi úr gildi ákvörðun um endursendingu mæðgna til Grikklands. Skjalið er einnig haldið öðrum annmörkum sem rýra gildi þess. Í skjalinu er vísað til nokkurra áreiðanlegra heimilda alþjóðastofnanna og til ECRE, sem kærunefnd hefur einnig vísað til í sínum úrskurðum, en einnig til hagsmunasamtaka sem berjast fyrir auknum réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Þrátt fyrir að skjalið kunni að formi til að stafa frá samtökum sem telja sig hlutlaus og óháð, ber innihald skjalsins ekki með sér að vera hlutlæg umfjöllun um aðstæður í viðtökuríki heldur hluti af röksemdafærslu kæranda fyrir því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar hér á landi. Þýðing skjalsins fyrir málið tekur því mið af því.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 26. júní 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið í þessu máli.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                      Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum