Hoppa yfir valmynd
26. maí 2021 Utanríkisráðuneytið

Kynningarfundur um þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna á morgun

Norðurlandaskrifstofa Þróunarstofnunar SÞ (UNDP) og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, í samvinnu við utanríkisráðuneytið, bjóða til kynningar á þrítugustu þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna á morgun, fimmtudaginn 27. maí frá kl. 12:00 – 13:30. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar og settar í íslenskt samhengi. Fundurinn fer fram á Zoom.

Í kynningartexta um viðburðinn segir að í fyrsta sinn í 300 þúsund ára sambandi sé það mannkynið sem móti jörðina, í stað þess að plánetan móti mannkynið. Í þrítugustu þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna (Human Development Report, 2020) sé kannað hvernig mannkynið geti þrætt sig í gegnum nýja öld, þar sé krufið samband mannfólks og jarðar og hvert við stefnum til að marka nýjar leiðir að framförum mannkyns.

Camilla Brükner framkvæmdastjóri Norðurlandaskrifstofu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna opnar fundinn en Halldór Þorgeirsson formaður Loftslagsráðs flytur aðalerindið. Petro Conceicao, einn ritstjóra skýrslunnar kynnir helstu niðurstöður hennar, og þrír Íslendingar veita umsögn um skýrsluna, Geir Oddsson deildarstjóri á alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytsins, Lára Jóhannsdóttir prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Tinna Hallgrímsdóttir formaður ungra umhverfissinna (UU) og ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.

Skráning á viðburðinn er hér.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum