Hoppa yfir valmynd
8. desember 2023

Global Strategy Group (GSG) í OECD

Í dag og í gær kom Global Strategy Group (GSG) saman í höfuðstöðvum OECD í París en á þeim vettvangi gefst fulltrúum aðildarríkja tækifæri til að ræða geópólitískt landslag, hlutverk OECD og opinberrar stefnumótunar í ljósi þeirra ógna og áskorana sem jarðarbúa standa frammi fyrir. Á fundinum í ár var sérstök áhersla lögð á hlutverk opinberrar fjármálastefnu í viðbrögðum við því geópólitíska landslagi sem við sjáum í heiminum í dag.

GSG er strategískur fundur sem haldinn er árlega og setur tóninn fyrir það sem koma skal á árlegum ráðherrafundi OECD ríkja í maí á næsta ári. Grikkland var í forsvari fyrir GSG í ár og Niki Kerameaus, innanríkisráðherra Grikklands settur formaður fundarins. Fyrir Íslands hönd sótti Ragnar G. Kristjánsson skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins fundinn, ásamt Unni Orradóttur fastafulltrúa Íslands gagnvart OECD og Pétri Skúlasyni Waldorff varafastafulltrúa.

Á fundinum var strategískri framtíðarsýn beitt og fundargestir tóku fyrir fjórar mismunandi sviðsmyndir, misdökkar, og veltu fyrir sér þeim viðbrögðum sem OECD og aðildarríki stofnunarinnar þyrftu að taka inn í sína stefnumótun.

Var sjónum einkum beint að áhrifum loftslagsbreytinga, aukinnar einangrunarstefnu, pólaríseringar og óvissu í alþjóðakerfinu og bakslagi í heimsmarkmiðunum. Þá var rætt um mikilvægi alþjóðaviðskipta, sameiginlegra staðla og virkra aðfanga- og virðiskeðja. Heimsmarkmiðin, tækniframfarir í atvinnulífinu og sjálfbærir framleiðslu- og neysluhættir kalla á miklar fjárfestingar af hálfu hins opinbera og einkageirans, nýjar lausnir og árangursríks samtals á milli þjóða.
  • Global Strategy Group (GSG) í OECD  - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum