Hoppa yfir valmynd
2. mars 2007 Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnaðarbréfs

Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, afhenti fimmtudaginn 22. febrúar landstjóra Ástralíu, Michael Jeffery, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Ástralíu með aðsetur í Beijing.

Í samtölum við utanríkisráðuneyti Ástralíu var staðfestur stuðningur við framboð Íslands til Öryggisráðsins og rætt um kynningu framboðsins í Eyjaálfu. Jafnframt var ítrekaður áhugi Íslands á gerð tvísköttunarsamnings við Ástralíu.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum