Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2025 Atvinnuvegaráðuneytið

Innanlandsvog 2026

Innanlandsvog 2026 - myndistock/george mkheidze

Atvinnuvegaráðuneytið hefur gefið út innanlandsvog í samræmi við 5. gr. reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt nr. 144/2022. Hlutverk innanlandsvogar er að skilgreina þarfir og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti, m.a. með það að markmiði að álagsgreiðslur vegna gæðastýringar skiptist á þann hluta heildarframleiðslunnar sem ætluð er fyrir innanlandsmarkað.

Til grundvallar útreikningum á innanlandsvog liggja upplýsingar um sölu kindakjöts eftir skrokkhlutum síðastliðna 24 mánuði og spá um líklega söluþróun. Innanlandsvog er birt í tvennu lagi, þ.e. annars vegar fyrir dilkakjöt og hins vegar fyrir kjöt af fullorðnu fé. Á grundvelli þessa líkans liggur áætlun framleiðsluársins 2025 – 2026 nú fyrir.

Samhliða innanlandsvoginni hefur atvinnuvegaráðuneytið gert spá um framleiðslu sem byggir á fjölda vetrarfóðraðra kinda og framleiðslu pr vetrarfóðraða kind sl. 4 ár. Með því er einnig hægt að áætla um útflutningsþörf á komandi framleiðsluári.

Dilkakjöt

Innanlandsvog fyrir dilkakjöt framleiðsluárið 2025 – 2026 er 6.120 tonn. Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta eftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum, þ.e. frampörtum, hryggjum, lærum og slögum. Það er eftirspurn eftir lærum sem ræður magninu en til þess að fullnægja henni er umframframleiðsla/útflutningsþörf á frampörtum, hryggjum og slögum, alls 581 tonn.

Áætluð heildarframleiðsla á dilkakjöti er 6.783 tonn og miðað við hana er útflutningsþörf alls 1.244 tonn.

Innanlandsvog 2026

Dilkakjöt                                                                                        Tonn

Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands

6.120

Áætluð heildarframleiðsla

6.783

Útflutningsþörf

1.244

 

Kjöt af fullorðnu

Innanlandsvog fyrir kjöt af fullorðnu fé framleiðsluárið 2025 – 2026 er 1.025 tonn. Það er sú framleiðsla sem þarf til að mæta innanlandseftirspurn eftir heilum skrokkum og skrokkhlutum. Eftirspurn eftir frampörtum ræður framleiðsluþörfinni fyrir innanlandsmarkað. Spá um heildarframleiðslu er 1.113 tonn og heildarútflutningsþörf 170 tonn.

Innanlandsvog 2026

Fullorðið fé                                                                                       Tonn

Framleiðsla vegna eftirspurnar innanlands

1.025

Áætluð heildarframleiðsla

1.113

Útflutningsþörf

170

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta