Hoppa yfir valmynd
28. mars 2019 Utanríkisráðuneytið

Nýr nemendahópur við Landgræðsluskólann

Nemendahópurinn sem sestur er á skólabekk í Landgræðsluskólanum. Ljósmynd: UNU-LRT - mynd

Nýr hópur nema hefur hafið nám við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og hýstur af Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við Landgræðsluna. Í ár eru nemarnir alls 21, 10 karlar og 11 konur, og koma frá 10 löndum í Afríku og Asíu. Nemarnir eru allir starfandi sérfræðingar í sínum heimalöndum og hafa fengið leyfi frá störfum til að sækja sex mánaða nám Landgræðsluskólans um landhnignun og afleiðingar hennar, sjálfbæra landnýtingu og landgræðslu.

Nemarnir koma frá Gana, Malaví, Úganda, Níger, Lesótó og Eþíópíu í Afríku og frá Mongólíu, Tadsíkistan, Kirgistan og Úsbekistan í Asíu. Í heimalöndum sínum starfa þau á sviði landnýtingar og landverndarmála, ýmist við rannsókna- og eftirlitsstofnanir, héraðsstjórnir, ráðuneyti eða háskóla, auk frjálsra félagasamtaka. Að loknu námi við Landgræðsluskólann fara þau aftur til starfa sinna, þar sem námið mun nýtast þeim í þeim áskorunum sem þau þurfa að takast á við í vinnu sinni.

Skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSÞ) hafa um áratugaskeið verið mikilvægur þáttur í þróunarsamvinnu Íslendinga, enda er innan þeirra hagnýtt sú sér- og tækniþekking sem til staðar er á Íslandi og henni miðlað til íbúa þróunarlandanna. Hlutverk Landgræðsluskólans er að vinna að vernd, endurheimt og sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, sjálfbærri stjórnun skógarauðlinda, baráttu gegn eyðimerkurmyndun, stöðvun jarðvegseyðingar, endurheimt landgæða og mótspyrnu við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum