Hoppa yfir valmynd
7. desember 2015 Heilbrigðisráðuneytið

Nýtt hjúkrunarheimili tekið ínotkun í Bolungarvík

Undirritun samningsins
Undirritun samningsins

„Það er stór dagur í lífi bæjarfélags þegar nýtt hjúkrunarheimili er tekið í notkun, enda skiptir miklu máli í hverju samfélagi að vel sé búið að öldruðum sem þarfnast umönnunar“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sem flutti ávarp við vígsluathöfnina í gær, þar sem margt var um manninn.

Hjúkrunarheimilið er byggt fyrir tíu íbúa og leysir af hólmi elda heimili sem komið var til ára sinna. Það er byggt í samræmi við kröfur hins opinbera um stærð, aðbúnað og gæði til að stuðla að sem bestri þjónustu við íbúana.

Húsið sjálft er eign sveitarfélagsins en rekstur hjúkrunarrýmanna verður á hendi Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Kristján Þór, heilbrigðisráðherra, Elías Jónatansson bæjarstjóri í Bolungarvík og Þröstur Óskarsson, forstjóri heilbrigðisstofnunarinnar undirrituðu samning um reksturinn við vígsluathöfnina í gær.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum