Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Eftirfylgni með stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017–2021

Að loknum fyrsta fundi starfshópsins - myndVelferðarráðuneytið

Alþingi samþykkti 31. maí 2017 þingsályktunartillögu félags- og jafnréttismálaráðherra um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017–2021. Framkvæmdaáætlunin tekur við af fyrri þingsályktun sem unnið var eftir árin 2012–2017. Í nýju áætluninni eru tilgreind 39 verkefni á sjö málasviðum sem lúta að aðgengi, atvinnu, heilsu, ímynd og fræðslu, menntun, sjálfstæðu lífi og þróun þjónustu.

Meginmarkmið framkvæmdaáætlunarinnar sem unnin var í víðtæku samráði við samtök fatlaðs fólks, þjónustuaðila, stofnanir og sérfræðinga, eru að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði innleiddur í alla lagaumgjörð og framkvæmd. Þannig megi stuðla að því að fatlað fólk, börn jafnt sem fullorðnir, geti lifað sjálfstæðu lífi og njóti mannréttinda til jafns við aðra.

Starfshópurinn sem félags- og jafnréttismálaráðherra skipaði og hóf störf í dag mun m.a. vinna að stöðumati í upphafi tímabils framkvæmdaáætlunarinnar og endurmati í lok tímabilsins. Auk þess er gert ráð fyrir að hópurinn leggi fram tillögur fyrir ráðherra að forgangsröðun verkefna eigi síðan en í febrúar ár hvert og skili samhliða greinargerð um framgang verkefna liðins árs. 

Starfshópurinn er þannig skipaður:

  • Rósa Guðrún Bergþórsdóttir, án tilnefningar, formaður
  • Bryndís Snæbjörnsdóttir, tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp
  • Elísabet Gísladóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneytinu
  • Gústav Aron Gústavsson, tilnefndur af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
  • Halldór Sævar Guðbergsson, tilnefndur af Öryrkjabandalagi Íslands
  • Tryggvi Þórhallsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Tillögur eða ábendingar varðandi framkvæmd áætlunarinnar óskast sendar á [email protected]. Bent er á vefsvæði þingsályktunarinnar þar sem finna má nánari upplýsingar um vinnu starfshópsins og annað er lýtur að eftirfylgni stefnu og framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum