Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Ný tilfelli ebólu greinast í Afríkuríkjum

Ljósmynd: UNICEF/UNMEER Martine Perret - mynd

Ebóla hefur á nýjan leik greinst í Afríku. Staðfest smit eru að minnsta kosti í tveimur ríkjum, Gíneu og Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Grunur er um smit í Síerra Leone. Ebólufaraldur geisaði í þremur Vestur-Afríkuríkjum á árunum 2013 og 2016, Líberíu, Sierra Leóne og Gíneu, og leiddi þá til rúmlega ellefu þúsund dauðsfalla. Þjóðir í þessum heimshluta eru á sama tíma að glíma við aðra bylgju COVID-19 en sjúkdómarnir eru að því leyti ólíkir að dánartíðni af völdum ebólu er miklu hærri.

Heilbrigðisstarfsfólk segir fréttirnar minna hræðilega mikið á fyrri faraldurinn sem einnig átti upptök í Gíneu. Í byrjun vikunnar var greint frá tólf óstaðfestum tilvikum ebólu í suðausturhluta Gíneu, í grennd við landamæri Fílabeinsstrandarinnar, Líberíu og Síerra Leone.

Heilbrigðisyfirvöld hafa brugðist við með aðgerðum til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins, meðal annars með smitrakningarteymum sem hafa sett 300 manns í sóttkví í Kongó og 150 manns í Gíneu í sóttkví. Stjórnvöld í Gíneu hafa enn fremur bannað fjölsótta markaði og aðrar samkomur eins og jarðarfarir. Stjórnvöld í nágrannaríkjum hafa aukið eftirlit á landamærum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum