Hoppa yfir valmynd
12. október 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 145/2021 Endurupptökubeiðni Úrskurður 12. október 2021

Mál nr. 145/2021                  Endurupptökubeiðni

                                                Eiginnafn:     Rosemarie (kvk.)

 

Mannanafnanefnd hefur borist beiðni, dags. 5. október sl., þar sem óskað er eftir endurupptöku máls nr. 16/2020 Rosemarie.

Með úrskurði mannanafnanefndar frá 19. mars 2020 í máli nr. 16/2020 var umsókn um eiginnafnið Rosemarie (kvk.) hafnað. Niðurstaða nefndarinnar var að nafnið uppfyllti ekki skilyrði 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn, nr. 45/1996, sem kveður á um að ritháttur nýs eiginnafns skuli vera í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Í endurupptökubeiðninni er bent á að mannanafnanefnd hafi þann 1. júlí sl. samþykkt breytingar á vinnulagsreglum nefndarinnar og er óskað eftir að nefndin taki aftur fyrir umsókn um fyrrgreint nafn í ljósi breytinganna.

Þar sem ljóst er að umræddar breytingar á vinnulagsreglum mannanafnanefndar við túlkun á hefð hafa þýðingu í málinu fellst nefndin á að taka það upp á ný og fylgir nýr úrskurður í málinu hér á eftir sem fengið hefur málsnúmerið 145/2021.

Hinn 12. október 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 145/2021:

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Rosemarie (kvk.), borið fram Rósmarí, uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú þar sem rithátturinn Rosemarie er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls miðað við að framburður nafnsins sé Rósmarí. Er því aðeins hægt að fallast á ritháttinn Rosemarie að hann teljist hafa unnið sér hefð. Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð: 

  1.  Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
    2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
    5. Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera tvær konur, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, sbr. 2. lið þeirra, eiginnafnið Rosemarie. Sú eldri er fædd 1941. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Nafnið uppfyllir því ekki skilyrði 1. liðar vinnulagsreglnanna. Eiginnafnið Rosemarie er af erlendum uppruna og tíðkast einkum í enskumælandi löndum. Það er orðið til sem samsetning úr nöfnunum Rose og Mary/Marie og er ýmist ritað Rosemary eða Rosemarie í ensku. Rithátturinn Rosemarie telst því uppfylla skilyrði 4. liðar vinnulagsreglnanna.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Rosemarie (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum