Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2021 Utanríkisráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiðanna

Fráfarandi Ungmennaráð ásamt Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, og Tinnu Rós Steinsdóttur, sérfræðingi hjá umboðsmanni barna. - mynd

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra fer með skipun ráðsins en óskað er eftir börnum sem eru tilbúin að sitja í ráðinu í tvö ár, frá og með janúar 2022.

Átta meðlimir ungmennaráðsins verða kosnir á barnaþingi umboðsmanns barna sem haldið verður í Hörpu dagana 18.-19. nóvember. Þar verða saman komin um 150 börn allstaðar að af landinu og munu þau hljóta kjörlista með upplýsingum um hvern frambjóðenda og persónuupplýsingum. Fjórir meðlimir ráðsins verða svo valdir í kjölfarið, af valnefnd á vegum forsætisráðuneytisins. Val á þeim einstaklingum miðast við að tryggja fjölbreytileika barnanna í ráðinu.

Í ungmennaráðinu sitja tólf börn og skulu þau vera 13-18 ára á meðan á skipunartímabilinu stendur. Öll börnin í ráðinu skulu því vera fædd á árunum 2006-2009. Leitast er eftir því að hafa fjölbreyttan hóp barna í ráðinu, þá sér í lagi með tilliti til kynjahlutfalls og búsetu en áhersla hefur verið lögð á að vera með fulltrúa úr öllum landshlutum. Ráðið heldur að meðaltali einn netfund í mánuði, og hittist í persónu á lengri fundum 3-4 sinnum yfir árið. Forsætisráðuneytið stendur undir öllum kostnaði við ferðalög og fundarhöld og því ekki reiknað með að börn beri kostnað af setu í ráðinu.

Hlutverk ungmennaráðs heimsmarkmiðanna er fyrst og fremst að vinna með málefni tengd heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, og vinna að því að koma sjónarmiðum barna á framfæri. Þetta er eina ungmennaráðið sem starfar innan stjórnsýslunnar og gefur það sínar ráðleggingar til ráðuneyta og ýmissa stofnanna eftir óskum. Einnig hefur ráðið greiðan aðgang að ráðuneytunum til að koma sínum málefnum á framfæri og funda til að mynda árlega með ríkisstjórn.  

Ungmennaráðið heldur á lofti ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þá sér í lagi hvað varðar áhrif barna á ákvarðanatöku og rétt þeirra til að láta í ljós skoðanir sínar.

Hægt verður að gefa kost á sér í ráðið hér, en lokað verður fyrir umsóknir klukkan 23.59, mánudaginn 15. nóvember. Öllum frambjóðendum verður tilkynnt um niðurstöður kosninga og valnefndar fyrir 10. desember.

Uppfært: Barnaþingi, sem halda átti í Hörpu dagana 18.-19. nóvember, hefur verið frestað í ljósi aðstæðna. Umsóknarfrestur til þátttöku í ungmennaráði heimsmarmiðanna hefur jafnframt verið lengdur til 3. desember 2021. Vonir standa til um að hægt verði að kjósa um meðlimi ungmennaráðsins á barnaþingi í janúar 2022.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum