Hoppa yfir valmynd
2. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 437/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 437/2021

Föstudaginn 2. desember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. ágúst 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst 2021, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði greiðslur atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun árið 2020 samhliða minnkuðu starfshlutfalli hjá B. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir maímánuð 2020, að fjárhæð 126.823 kr., á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. ágúst 2021. Með bréfi, dags. 1. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 5. október 2021, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. október 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa fengið bréf með endurgreiðslukröfu að fjárhæð 126.823 kr. Hún hafi fengið þrjár greiðslur frá Vinnumálastofnun og hafi hvorki þá né nú haft neinar forsendur til að meta hvort greiðslur til hennar hafi verið réttar eða rangar. Kærandi telji að hún hafi sent inn rétt gögn. Af þeim sökum fari kærandi fram á að niðurstaða ákvörðunar verði útskýrð fyrir henni, það er hvaða vinnumánuðir séu að baki hverri greiðslu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi þann 31. mars 2020 sótt um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í rekstri vinnuveitanda í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 54/2006. Bráðabirgðaákvæðin feli í sér að laun sem greidd séu samhliða minnkuðu starfshlutfalli komi til skerðingar á atvinnuleysisbótum samkvæmt sérgreindum reglum og greiðslur frá Vinnumálastofnun nemi tekjutengdum atvinnuleysisbótum í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall.

Kærandi hafi þegið 75% hlutabætur á móti hinu skerta starfshlutfalli í maí 2020. Samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hafi kærandi fengið launagreiðslur frá fyrirtækinu B. Þegar kærandi hafi sótt um hlutabætur hafi hún skráð áætlaðar tekjur sínar fyrir það tímabil sem sótt hafi verið um inn á „Mínum síðum“. Við yfirferð á gögnum hjá Skattinum vegna maímánaðar hafi komið í ljós að tekjur kæranda frá B hafi ekki verið áætlaðar í samræmi við áætlun frá fyrirtækinu og hafi þær verið töluvert hærri en áætlun hafi gert ráð fyrir.

Áætlaðar tekjur vegna maímánaðar hafi verið 150.000 kr. og hafi kærandi fengið greiðslur frá Atvinnuleysistryggingasjóði í samræmi við það. Hins vegar hafi rauntekjur kæranda vegna maímánaðar verið 495.680 kr. og því hafi myndast skuld hjá stofnuninni, samtals 126.823 kr. Kæranda hafi verið tilkynnt um fjárhæð skuldar með greiðsluseðlum. Skuld kæranda við stofnunina nemi nú samtals 126.823 kr., án álags.

Þann 20. ágúst 2021 hafi kæranda verið sent innheimtubréf vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta vegna maímánaðar 2020. Skorað hafi verið á kæranda að greiða skuld sína innan 30 daga. Í bréfinu hafi verið tekið fram að ef skuld væri ekki að fullu greidd innan 30 daga yrði málið sent Innheimtumiðstöðinni á Blönduósi til frekari innheimtu.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Í 5. mgr. bráðabirgðaákvæðis XVI í lögum nr. 54/2006 sem fjalli um minnkað starfshlutfall komi fram:

„Greiðslur atvinnuleysisbóta skv. 1. mgr. skulu nema hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall. Laun frá vinnuveitanda og greiðslur atvinnuleysisbóta samanlagt geta þó aldrei numið hærri fjárhæð en 700.000 kr. á mánuði og skulu ekki nema hærri fjárhæð en 90% af meðaltali heildarlauna launamanns. Til að finna út meðaltal heildarlauna skal miða við þriggja mánaða tímabil áður en launamaður missti starf sitt að hluta. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990.“

Sökum þess að tekjuáætlun kæranda hafi ekki verið í samræmi við rauntekjur kæranda í maímánuði 2020 hafi hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur og myndaðist skuld í greiðslukerfi stofnunarinnar. Skuld kæranda nemi 126.823 kr. og krafa Vinnumálastofnunar um endurgreiðslu kæranda á ofgreiddum atvinnuleysisbótum á þeirri fjárhæð sé byggð á 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en ákvæðið hljóði svo:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt framangreindu ákvæði sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem ofgreiddar hafi verið. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð. Vinnumálastofnun bendi á niðurstöðu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í málum nr. 49/2010, 21/2011 og 43/2012 þessu til stuðnings.

Skuld þessi sé tilkomin vegna þess að tekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins hafi ekki komið fram fyrr en allnokkru eftir að þeirra hafi verið aflað. Þegar atvinnuleysisbætur séu reiknaðar út sé skerðing atvinnuleysisbóta vegna tekna reiknuð út í samræmi við áætlaðar tekjur, til að mynda í hlutastarfi, þar sem rauntekjur úr launagreiðendaskrá Skattsins berist ekki fyrr en í fyrsta lagi í mánuðinum á eftir.

Rauntekjur kæranda vegna maímánaðar hafi verið 495.680 kr. og greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna maímánaðar hafi numið 327.600 kr. Það geri samtals 823.280 kr. Þar sem laun frá vinnuveitanda og greiðslur atvinnuleysisbóta samanlagt geti aldrei numið hærri fjárhæð en 700.000 kr. á mánuði og megi ekki nema hærri fjárhæð en 90% af meðaltali heildarlauna launamanns, sbr. 5. mgr. bráðabirgðarákvæðis XVI í lögum um atvinnuleysistryggingar, hafi myndast skuld hjá stofnuninni, samtals 126.823 kr.

Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunnar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar um að hefja frekari innheimtuaðgerðir vegna skuldar kæranda líkt og henni hafi verið tilkynnt um með bréfi, dags. 20. ágúst 2021.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst 2021, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir maímánuð 2020, að fjárhæð 126.823 kr., vegna tekna sem kærandi fékk þann mánuð en hún þáði atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli.

Í 1. mgr. XIII. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sem var í gildi til 1. júní 2020, kemur fram að þegar atvinnuleysisbætur séu greiddar samhliða minnkuðu starfshlutfalli samkvæmt 17. gr. vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda skuli föst laun frá vinnuveitanda fyrir hið minnkaða starfshlutfall ekki koma til skerðingar á fjárhæð atvinnuleysisbóta samkvæmt 36. gr., enda hafi fyrra starfshlutfall lækkað um 20 prósentustig hið minnsta og launamaður haldið að lágmarki 25% starfshlutfalli. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins: 

„Greiðslur atvinnuleysisbóta skv. 1. mgr. skulu nema hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta í réttu hlutfalli við hið skerta starfshlutfall. Laun frá vinnuveitanda og greiðslur atvinnuleysisbóta samanlagt geta þó aldrei numið hærri fjárhæð en 700.000 kr. á mánuði og skulu ekki nema hærri fjárhæð en 90% af meðaltali heildarlauna launamanns. Til að finna út meðaltal heildarlauna skal miða við þriggja mánaða tímabil áður en launamaður missti starf sitt að hluta. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald.“

Samkvæmt gögnum málsins voru áætlaðar tekjur kæranda í maímánuði 2020 mun lægri en rauntekjur hennar. Vegna þessa fékk kærandi greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna er heimilt að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótum í hverjum mánuði. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem tekjuáætlun kæranda var ekki í samræmi við rauntekjur hennar fékk hún greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

 

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst 2021, í máli A um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum