Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2020 Utanríkisráðuneytið

Óttast að tvöfalt fleiri verði við hungurmörk í árslok

Ljósmynd: WFP/ Rafael Campos - mynd

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) varaði í dag við gífurlegri fjölgun hungraðra í heiminum vegna COVID-19 farsóttarinnar. Verði ekki þegar gripið til aðgerða segir stofnunin að tvöfalt fleiri verði við hungurmörk í árslok frá því sem nú er. Þeim geti fjölgað milli ára úr 135 milljónum í 265 milljónir. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá WFP og 15 samstarfsstofnunum um fæðuóöryggi í heiminum sem birt var í dag.

„Fyrir þær milljónir manna, sem fyrir áttu vart til hnífs og skeiðar, er COVID-19 faraldurinn skelfilegur og rothögg fyrir aðrar milljónir manna sem þurfa tekjur til þess að eiga fyrir mat. Í mörgum tilvikum þarf aðeins eitt áfall til viðbótar – eins og COVID-19 – til þess að ýta fólki fram af bjargbrúninni,“ segir Arif Husain yfirhagfræðingur WFP og bætir við að takmarkanir á ferðum fólks og efnahagslegur samdráttur hafi þegar haft alvarlegar afleiðingar.

Í nýju skýrslunni - Global Report on Food Crises – kemur fram að á síðasta ári hafi flestir þeirra sem lifðu við hungurmörk búið á átakasvæðum, 77 milljónir. Loftslagsbreytingar áttu mestan þátt í matvælaskorti hjá 34 milljónum og 24 milljónir liðu matarskort vegna efnahagsþrenginga.

Þær tíu þjóðir sem matarskortur var mestur á síðasta ári voru Jemen, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Afganistan, Venesúela, Eþíópía, Suður-Súdan, Sýrland, Súdan, Nígería og Haítí.

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna er ein helsta samstarfsstofnun Íslands í neyðar- og mannúðarmálum.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum