Hoppa yfir valmynd
8. september 2008 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra heimsækir Lettland

ISG opnar verksmiðju
ISG opnar verksmiðju

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra gangsetti í dag, ásamt Raimonds Vejonis, umhverfisráðherra Lettlands, nýja endurvinnslu PET-Baltija í Riga í Lettlandi. Verksmiðjan, sem er að meirihluta í eigu Gámaþjónustunnar, er stærsta verksmiðja sinnar tegundar í Eystrasaltslöndunum en hún mun endurvinna plasflöskur. Gangsetning verksmiðjunnar var eitt embættisverka Ingibjargar Sólrúnar sem er í opinberri heimsókn í Lettlandi í dag og á morgun.

Við opnunina minnti utanríkisráðaherra á þann fjölda íslenskra fyrirtækja sem starfar nú í Lettlandi og sagði það enga tilviljun að svo mörg þeirra hefðu beint sjónum sínum þangað. “Það er gott að vera Íslendingur í Lettlandi og fyrirtækjum okkar hefur verið vel tekið. Íslendingar og Lettar vinna vel saman. Við eigum margt sameiginlegt, svo sem opna og kraftmikla markaði, duglegt og velmenntað starfsfólk og löngun til að takast á við nýja öld,” sagði ráðherra.

Fyrr í dag átti Ingibjörg Sólrún fund með lettneskum starfsbróður sínum, Maris Riekstins, og á morgun hittir hún forseta landsins, Valdis Zatlers. Þá er þáttur íslenskra fyrirtækja í heimsókninni töluverður, en á meðan henni stendur heimsækir utanríkisráðherra nokkur fyrirtæki sem eru að hluta eða öllu leyti í eign Íslendinga, m.a. flugfélagið Latcharter Airlines, Norvik Banka og SIA Hospital Organizer.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum