Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 9/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 9/2017

Miðvikudaginn 26. apríl 2017

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 9. janúar 2017, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 7. október 2016, á beiðni um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 25. ágúst 2016, fór kærandi fram á niðurfellingu Tryggingastofnunar ríkisins á skuld hennar við stofnunina sem myndast hafði við endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta áranna 2013 og 2015. Þann 6. september 2016 óskaði Tryggingastofnun ríkisins eftir frávísun málsins á grundvelli 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem að krafa kæranda um niðurfellingu kröfu hafi fyrst borist með framangreindri kæru. Tryggingastofnun tók beiðni kæranda til afgreiðslu og kærandi afturkallaði kæruna í kjölfarið. Með bréfi, dags. 7. október 2016, tilkynnti Tryggingastofnun ríkisins kæranda að umsókn hennar um niðurfellingu endurgreiðslukröfu hafi verið synjað á þeim grundvelli að kröfurnar væru réttmætar og að skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um alveg sérstakar aðstæður væru ekki talin vera fyrir hendi. Þann 22. nóvember 2016 fór kærandi munnlega fram á rökstuðning fyrir ákvörðun Tryggingastofnunar og var hann veittur með bréfi stofnunarinnar, dags. 13. desember 2016.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 9. janúar 2017. Með bréfi, dags. 10. janúar 2017, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 31. janúar 2017, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. febrúar 2017. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Í upprunalegri kæru kemur fram ósk kæranda um að kröfur Tryggingastofnunar ríkisins á hendur henni verði felldar niður vegna fjárhagslegra aðstæðna.

Í kærunni segir að kærandi hafi staðið við allar greiðslur til Tryggingastofnunar. Allir þeir peningar sem þau hjónin eigi að eiga séu ekki til þar sem söluhagnaðurinn hafi farið til Landsbankans og Íbúðalánasjóðs. Maðurinn hennar sé X ára gamall og hafi aldrei þegið ellilífeyri og þá séu hennar greiðslur komnar í 143.137 kr. á mánuði.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé ákvörðun samráðsnefndar Tryggingastofnunar um meðferð ofgreiðslna, dags. 7. október 2016. Nefndin synjaði kæranda um niðurfellingu á eftirstöðvum ofgreiðslukröfu vegna uppgjörs áranna 2013 og 2015.

Vakin sé sérstaklega athygli á að kærandi hafi hvorki andmælt né kært endurreikning vegna þessara ára heldur sé eingöngu verið að kæra synjun Tryggingastofnunar á umsókn um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu.

Þá segir að kærandi hafi fengið örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá 1. janúar 2012 og hafi notið greiðslna þeirra allt árið 2013 og árið 2015. Útistandandi ofgreiðslukröfur á hendur kæranda séu vegna endurreikninga greiðslna áranna 2013 og 2015.

Í upphafi árs 2013 hafi kærandi fengið senda tillögu að tekjuáætlun ársins ásamt greiðsluáætlun. Þar hafi verið vakin athygli kæranda á ábyrgð hennar að upplýsa Tryggingastofnun um réttar tekjur. Kærandi hafi ekki gert neinar athugasemdir við áætlunina og hafi þegið bætur allt árið á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga.

Niðurstaða endurreiknings greiðslna kæranda á árinu 2013 hafi verið ofgreiðsla til innheimtu að fjárhæð 1.679.320 kr. Ástæða ofgreiðslunnar hafi verið röng tekjuáætlun. Í tekjuáætlun ársins hafi eingöngu verið gert ráð fyrir 1.423.836 kr. í launatekjur ásamt 9.528 kr. í sameiginlegum vaxtatekjum kæranda og maka hennar. Samkvæmt skattframtali hafi tekjur kæranda á árinu 2013 hins vegar verið laun að fjárhæð 1.101.700 kr., hagnaður af sölu hlutabréfa samtals hjá kæranda og maka hennar að fjárhæð 52.855.768 kr., leiga af íbúðarhúsnæði samtals 1.050.000 kr. ásamt vaxtatekjum að fjárhæð 13.771 kr.

Í upphafi árs 2015 hafi kærandi fengið senda tillögu að tekjuáætlun ársins ásamt greiðsluáætlun. Þar hafi verið vakin athygli kæranda á ábyrgð hennar að upplýsa Tryggingastofnun um réttar tekjur. Í upphaflegri tekjuáætlun ársins hafi verið gert ráð fyrir 785.885 kr. í launatekjur, sameiginlegum leigutekjum að fjárhæð 1.050.000 kr. ásamt sameiginlegum vaxtatekjum kæranda og maka hennar að fjárhæð 13.771 kr. Kærandi hafi fengið greitt samkvæmt þeirri tekjuáætlun frá 1. janúar til 30. apríl 2015.

Kærandi hafi sent inn nýja tekjuáætlun þann 7. apríl 2015 og þar sem hún hafi tekið út allar tekjur. Kærandi hafi fengið greitt samkvæmt þeirri áætlun frá 1. maí til 31. desember 2015. Þeir mánuðir sem hún hafði áður fengið greidda hafi einnig verið endurreiknaðir í samræmi við tekjuáætlunina og hún fengið greidda inneign.

Niðurstaða endurreiknings greiðslna kæranda á árinu 2015 hafi verið ofgreiðsla til innheimtu að fjárhæð 2.098.283 kr. Ástæða ofgreiðslunnar hafi verið röng tekjuáætlun. Þegar árið 2015 hafi verið gert upp hafi komið í ljós að samkvæmt skattframtali hafi sameiginlegar tekjur kæranda og maka hennar á árinu 2015 verið hagnaður af sölu hlutabréfa að fjárhæð 35.016.466 kr. ásamt vaxtatekjum að fjárhæð 47.464 kr.

Kærandi hafi sent inn kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála dags. 25. ágúst 2016, mál nr. 320/2016. Þar sem að erindið hafði ekki áður borist Tryggingastofnun hafi stofnunin tekið málið til efnislegrar meðferðar og farið fram á frávísun þess frá úrskurðarnefnd. Þann 7. september 2016 hafi stofnuninni verið tilkynnt að kærandi hefði fallið frá þeirri kæru.

Með bréfi Tryggingastofnunar, dagsettu 21. sama mánaðar, hafi verið óskað eftir viðbótarupplýsingum frá kæranda. Svar hafi borist þann 4. október 2016. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 7. október 2016, hafi beiðni kæranda um niðurfellingu verið synjað.

Tryggingastofnun hafi borist munnleg beiðni um rökstuðning þann 22. nóvember 2016 og henni verið svarað með bréfi stofnunarinnar þann 13. desember 2016.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Helmingur fjármagnstekna hjóna hafi áhrif á útreikning hjá hvoru fyrir sig, sbr. a-lið 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga. Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna.

Á skýran hátt sé tekið fram í lögum um almannatryggingar og reglugerð nr. 598/2009 að meginreglan sé að Tryggingastofnun skuli innheimta ofgreiddar bætur, sbr. meðal annars 55. gr. laga um almannatryggingar sem sé svohljóðandi: „Hafi Tryggingastofnun ríkisins eða umboð hennar eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin ofgreitt bótaþega bætur samkvæmt lögum þessum skal stofnunin draga ofgreiddar bætur frá bótum sem bótaþegi síðar kann að öðlast rétt til, sbr. þó 2. mgr. Einnig á Tryggingastofnun eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin endurkörfurétt á hendur bótaþega eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum.“

Undantekningu frá þessari meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 varðandi þær kröfur sem myndist við uppgjör tekjutengdra bóta lífeyristrygginga. Þar segi: “Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.”

Við afgreiðslu á beiðni kæranda hafi verið ásamt fyrirliggjandi gögnum, skoðaðar ástæður ofgreiðslunnar, upplýsingar frá skattyfirvöldum um tekjur og eignir. Einnig hafi verið skoðaðar upplýsingar sem aflað hafi verið úr tölvukerfum stofnunarinnar.

Ákvæði 55. gr. laga um almannatryggingar fjalli um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðið sé ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt samkvæmt almennum lögskýringarreglum. Í þessu ákvæði felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Aðstæður þurfi að vera sérstakar svo að undanþáguheimild 11. gr. reglugerðarinnar eigi við.

Umræddar kröfur hafi orðið til við endurreikninga áranna 2013 og 2015. Eins og gögn beri með sér þá sé ljóst að ástæða ofgreiðslna hafi verið rangar tekjuáætlanir kæranda. Kröfurnar séu réttmætar. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur hvers árs. Skilyrði reglugerðarinnar um góða trú verði að skoða í ljósi ábyrgðar lífeyrisþega á því að gefa réttar tekjuupplýsingar hverju sinni. Bótaþegi beri skýra ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur hans og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki. Þessi skylda bótaþega eigi ekki bara við þegar tekjuáætlun sé gerð heldur alltaf þegar einstaklingur fái bætur frá Tryggingastofnun. Kærandi hafi verið upplýst um þessa skyldu sína.

Samráðsnefnd líti til þess að tekjur hafi áhrif á lífeyri almannatrygginga til lækkunar og að greiðsluþegar séu upplýstir um tekjutenginguna, meðal annars við upphaf lífeyristöku. Greiðsluþegum sé gert að upplýsa um réttar tekjur sínar og maka ef við eigi í tekjuáætlun og sérstaklega gert að breyta henni ef tilefni sé til, sbr. 39. gr. laga um almannatryggingar. Ábyrgðin á því að gefa upp réttar tekjuupplýsingar hvíli því á greiðsluþegum. Skilyrði reglugerðarinnar um góða trú verði að skoða í ljósi ábyrgðar lífeyrisþega á því að gefa réttar tekjuupplýsingar hverju sinni. Af fyrirliggjandi gögnum verði ekki séð að skilyrðið um góða trú sé uppfyllt í máli kæranda og sé þar sérstaklega vakin athygli á því að kærandi hafi skilað inn nýrri tekjuáætlun í aprílmánuði 2015 þar sem hún hafi gert ráð fyrir tekjuleysi sínu á árinu.

Samráðsnefnd hafi metið fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda á grundvelli upplýsinga sem stofnunin hafi aðgang að og á grundvelli innsendra gagna. Við skoðun þeirra hafi það verið mat nefndarinnar að þær aðstæður kæranda séu ekki nægilega sérstakar að tilefni hafi verið til að fella niður kröfurnar. Einkum hafi verið horft til þess að eignastaða kæranda og maka hennar hafi þótt góð miðað við skuldastöðu. Ákveðið hafi verið með bréfi, dags. 11. nóvember 2016, að dreifa endurgreiðslu þannig að 20% verði dregin af greiðslum kæranda mánaðarlega upp í kröfurnar til að auðvelda mánaðarlega greiðslubyrði, þó með þeim fyrirvara að ef greiðslur kæranda eða aðrar aðstæður breytist geti þurft að breyta endurgreiðslunni. Þar með hafi verið komið verulega til móts við kæranda.

Í erindi kæranda til Tryggingastofnunar hafi því sérstaklega verið haldið fram að tekjur kæranda hefðu farið í að borga niður skuldir. Það sé ekki, að minnsta kosti ekki í sjálfu sér, fullnægjandi ástæða til að fella niður skuld, sbr. meðal annars fordæmi úrskurðarnefndar í málum nr. 353 og 354 frá 2013 og fleiri sambærilegum málum.

Þá segi í greinargerð Tryggingastofnunar að rétt sé að vekja sérstaklega athygli á því í ljósi þess sem fram hafi komið um eignir kæranda að Tryggingastofnun hafi óskað sérstaklega eftir upplýsingum um eignastöðu kæranda í bréfi stofnunarinnar, dags. 21. september 2016. Í þeim gögnum sem kærandi hafi skilað inn í kjölfarið hafi hún vísað afdráttarlaust til upplýsinga úr skattframtali ársins 2016 vegna ársins 2015.

Þegar þessi greinargerð sé rituð standi kröfur Tryggingastofnunar á hendur kæranda samtals í 2.897.373 kr.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta áranna 2013 og 2015.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er greiðsluþega skylt að veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra og þá er honum einnig skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Tryggingastofnun er heimilt, að fengnu samþykki viðkomandi, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og greiðsluþega hjá skattyfirvöldum og fleirum, sbr. 40. gr. laga um almannatryggingar. Á árinu 2013 var sambærilegt ákvæði í 2. mgr. 52. gr. laga um almannatryggingar.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 7. mgr. 16. gr. laganna segir að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt greininni.

Tryggingastofnun tilkynnti kæranda um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2013 með bréfi, dags. 21. júlí 2014. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur til hennar hefðu verið ofgreiddar á árinu, samtals að fjárhæð 1.679.320 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi rekja til rangra tekjuáætlana kæranda vegna ársins 2013. Þá tilkynnti Tryggingastofnun kæranda um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2015 með bréfi, dags. 27. júlí 2016. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur til hennar hefðu verið ofgreiddar, samtals að fjárhæð 2.098.283 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi rekja til rangra tekjuáætlana kæranda vegna ársins 2015. Kærandi andmælti ekki framangreindum endurreikningum og uppgjörum þessara ára.

Tryggingastofnun ber lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreind 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni beri að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn.“

Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hann tók við hinum ofgreiddu bótum. Tryggingastofnun ríkisins hefur hafnað því að heimild tilvitnaðs reglugerðarákvæðis eigi við í tilviki kæranda.

Í máli þessu er ekki deilt um réttmæti endurkröfunnar eða fjárhæðir heldur lýtur ágreiningurinn að synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu á eftirstöðvum endurgreiðslukröfu sem höfðu myndast vegna ofgreiddra bóta áranna 2013 og 2015.

Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að örorkulífeyrir og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 39. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem bætur þiggur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið upplýstur um þessa skyldu sína. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefnd velferðarmála að kæranda hefði mátt vera kunnugt um áhrif teknanna á bótagreiðslur. Kærandi hefur ekki andmælt því að hún hafi ekki verið í góðri trú, en vísar til erfiðra fjárhagslegra aðstæðna og þess að hún hafi staðið við allar greiðslur til Tryggingstofnunar sem rök fyrir niðurfellingu krafnanna.

Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar. Meðaltekjur kæranda síðustu sex mánuði áður en Tryggingastofnun tók niðurfellingarbeiðni kæranda til skoðunar voru samkvæmt staðgreiðsluskrá 216.843 kr. á mánuði. Af gögnum málsins verður ráðið að skuldir kæranda séu óverulegar miðað við eignastöðu. Þá horfir nefndin til þess að Tryggingastofnun hafi ákveðið að dreifa endurgreiðslu þannig að 20% verði dregin af greiðslum hennar mánaðarlega upp í kröfurnar til að auðvelda mánaðarlega greiðslubyrði. Með hliðsjón af þessu telur nefndin að geta til endurgreiðslu sé fyrir hendi. Þá verður ekki ráðið af gögnum málsins að kærandi búi við erfiðar félagslegar aðstæður. Úrskurðarnefndin lítur einnig til þess að samkvæmt meginreglu 55. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarreglum. Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum um fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé tilefni til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar.

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta áranna 2013 og 2015 er því staðfest.



Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni A, um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta áranna 2013 og 2015 er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum