Hoppa yfir valmynd
29. september 2023 Matvælaráðuneytið

Hækkun lágmarksverðs mjólkur

Hækkun lágmarksverðs mjólkur - myndiStock/naturalbox

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli.

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. október 2023:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 2,82%, úr 126,20 kr./ltr í 129,76 kr./ltr.

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 9. október 2023:

  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar almennt um 2,30%.

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun í júní 2023 og geymdrar hækkunar fjármagnskostnaðar sem hefur hingað til ekki verið reiknað með í gjaldaliðum verðlagsgrundvallar.

Frá síðustu verðákvörðun til september 2023 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 0,86% en samanlagt hækkar verðlagsgrundvöllur um 2,82% með tilliti til hækkunar fjármagnskostnaðar. Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur kostnaðarhækkun á mjólk frá bændum og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar.

Sjá nánar: Verðlagsnefnd búvara

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum