Hoppa yfir valmynd
14. september 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Fjölbreytni lífs í nútíð og framtíð – málþing um líffræðilega fjölbreytni

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið standa sameiginlega að málþingi um líffræðilega fjölbreytni í samstarfi við Stofnun Sæmundar fróða, sem haldið verður í beinu streymi föstudaginn 17. september..

Málþingið er hluti af undirbúningi stefnumótunar og framkvæmdaáætlunar fyrir líffræðilega fjölbreytni hér á landi, sem jafnframt á að styðja við framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um sama efni. Fyrri hluta árs 2020 skipaði umhverfis- og auðlindaráðherra stýrihóp sem vinnur að stefnumótun og framkvæmdaáætlun fyrir líffræðilega fjölbreytni.

Markmið málþingsins er annars vegar að varpa ljósi á stöðu og þróun lífríkis lands og hafs. Hins vegar er markmiðið að draga fram ýmsar hliðar líffræðilegrar fjölbreytni sem ekki endilega blasa við, s.s. tengsl við lýðheilsu, náttúruvernd og endurheimt vistkerfa, loftslagsbreytingar, miðlun þekkingar og hvernig líffræðileg fjölbreytni er grundvöllur atvinnugreina eins og sjávarútvegs og landbúnaðar en einnig ýmiskonar líf- og erfðatækni og nýsköpunar á ýmsum sviðum.

Verður umræða málþingsins notuð í vinnu stýrihópsins við mótun stefnu til næstu ára.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum