Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Desemberuppbót atvinnuleitenda 2018

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur sett reglugerð um greiðslur desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót er 81.000 kr. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka uppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem hafa verið að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2018 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en nemur 20.250 kr.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum 4% af óskertri desemberuppbót sem eru 3.200 kr. fyrir hvert barn.

Desemberuppbót atvinnuleitenda verður greidd út eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum