Hoppa yfir valmynd
31. október 2017 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2018

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2018.

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts 2018

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2018, sbr. reglugerð, nr. 80/2001 með síðari breytingum. Á grundvelli áætlunar um tekjur sjóðsins á árinu 2018 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna 4.744,7 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlög fyrirfram sem nema 60% af áætluðum framlögum ársins eða um 2.846,8 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní.

Uppgjör framlaganna á árinu 2018 fer fram mánuðina, júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2017, upplýsinga um álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2018 og upplýsinga um veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2018. 

Útgjaldajöfnunarframlög

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun A-hluta útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2018, sbr. 13. gr. reglugerðar, nr. 960/2010, að fjárhæð 8.650 m.kr.  

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2018 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2018 og endanlegs álagningarstofns útsvars fyrir árið 2016.

Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega en 10% er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2018.

Ráðherra hefur jafnframt samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2018, sbr. 13. gr. reglugerðar, nr. 960/2010, að fjárhæð 575 m.kr. en 175 m.kr. í lok árs 2018 á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum, sbr. b-lið 3. gr. vinnureglna frá 8. desember 2010 vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2018 umfram tekjur.    

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2018, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 8.260 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2016.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2018 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2018, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2016 og  endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2018.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar. 

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2018, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð 2.140,4 m.kr. Þar af nemur framlag til Reykjavíkurborgar vegna reksturs sérskóla og sérdeilda 1.330,2 m.kr. Jafnframt er gert ráð fyrir 367 m.kr. framlagi vegna óafgreiddra greininga. Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2018.

Framlögin eru greidd mánaðarlega með jöfnum greiðslum. 

Framlög vegna nýbúafræðslu

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna nýbúafræðslu á árinu 2018, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 351/2022, að fjárhæð 314,5 m.kr.  að viðbættum 6,5 m.kr. vegna áætlunar í tengslum við síðbúnar umsóknir vegna 50 nemenda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum