Hoppa yfir valmynd
23. mars 2021 Dómsmálaráðuneytið

Réttarvörslugátt tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna

Í flokki vefkerfa er stafræn réttarvörslugátt tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna.  Stafræn réttarvörslugátt er verkefni sem er leitt af Dómsmálaráðuneytinu og snýst um að útbúa stafrænan farveg fyrir örugga og hraða miðlun gagna og upplýsinga á milli aðila í réttarvörslukerfinu, m.a. lögreglu, ákæruvalds, dómstóla, fangelsa og lögmanna eða ytri aðila. Um er að ræða umbreytingar á öllum ferlum og samskiptum á milli aðila sem hafa fram til þessa verið að mestu leiti  pappírs- og skjalamiðaðir.

Réttarvörslugáttin mun nýtast til að einfalda allan málarekstur, t.d. vegna sakamála, rannsóknarheimilda lögreglu og einkamála. Saksóknurum, lögmönnum og öðrum aðilum mála, verður gert kleift að hefja mál og afhenda gögn rafrænt til dómstóla á Íslandi með einföldum og öruggum hætti. Með stafrænu aðgengi opnast m.a. möguleikar á að málsmeðferð geti, að minnsta kosti að hluta til, farið fram rafrænt, ásamt því að öll málsmeðferð og samskipti verða skilvirkari og öruggari.

Með stafrænum samskiptaleiðum fyrir lögreglu, dómstóla og aðrar stofnanir í réttarvörslukerfinu opnast auk þess möguleikar á mun betra aðgengi málsaðila og almennings í framtíðinni að sínum gögnum, í gegnum miðlæga þjónustugátt Island.is, en Stafrænt Ísland og hugbúnaðarhúsið Kolibrí eru samstarfsaðilar dómsmálaráðuneytisins í verkefninu. Sjá nánar um stafræna réttarvörslugátt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum