Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

ASÍ kannar verð á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum

Kristján Þór og Auður Alfa undirrita samninginn - mynd

Alþýðusamband Íslands mun á næstunni gera verðkönnun á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum og skila niðurstöðum sínum til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Þjónustusamningur þessa efnis var undirritaður í dag milli Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,  og Auðar Ölfu Ólafsdóttur, hjá ASÍ.

 

Verðkönnunin er gerð í tengslum við m.a. breytingar á lagaumhverfi um úthlutun tollkvóta fyrir landbúnaðarvörur sem gerðar voru í desember sl. Samkvæmt þeim var ávinningur sem skapast með þeim takmörkuðu gæðum sem tollkvótar eru færður í meira mæli til neytenda í formi lægra vöruverðs.  

 

„Við höfum einfaldað lagaumhverfið um úthlutun tollkvóta og gert breytingar til að auka fyrirsjáanleika sem eiga að skila sér til hagsbóta fyrir neytendur, dreifingaraðila og framleiðendur.  Nú þarf að fylgja því eftir enda er mikilvægt að stuðla að því að lækkaðar álögur á vörur skili sér í lægra verði til neytenda,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

 

Mánaðarlegar verðkannanir

Tilgangur verkefnisins er að styrkja eftirlit á markaði með því að fylgjast sérstaklega með samkeppni og verðþróun á dagvörumarkaði.  ASÍ mun gera mánaðarlegar verðkannanir í verslununum og skila ráðuneytinu skýrslu 1. október 2020. Hlutverk þeirra verður að safna upplýsingum um verð á innfluttum og innlendum landbúnaðarvörum í verslunum í hvert sinn.

 

Samningsaðilar eru sammála um það markmið að eftir gildistíma samnings þessa verði verkefninu haldið áfram og um það verði sérstaklega samið síðar.

 

Öflugt verðlagseftirlit ASÍ
ASÍ hefur verið með öflugt verðlagseftirlit um árabil, sérstaklega á matvörumarkaði, en markmið þess er annars vegar að auka upplýsingastreymi til neytenda og efla þannig neytendavitund og hins vegar að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald, enda er aðgengi að traustum upplýsingum um verðlag á markaði forsenda þess að neytendur geti tekið upplýstar og ígrundaðar ákvarðanir.  Með þessu verkefni mun sjónum vera beint að innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum