Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 50/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 17. febrúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 50/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19120029

 

Beiðni […] og barna hennar um endurupptöku

 

I.          Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 473/2019, dags. 7. nóvember 2019, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. júlí 2019, um að taka umsóknir […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir kærandi) og barna hennar, […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu og […], fd. […], ríkisborgara Nígeríu, um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. desember 2018 og f.h. barna sinna. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 11. nóvember 2019. Þann 18. nóvember 2019 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar og barst nefndinni greinargerð í málinu þann 25. nóvember s.á. Fallist var á beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa með úrskurði kærunefndar, dags. 23. desember 2019. Þann 13. desember 2019 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins.

Af endurupptökubeiðni kæranda má ætla að krafan byggi á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi óskar eftir því að kærunefndin endurupptaki mál hennar og barna hennar, felli ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi og geri stofnuninni að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

II.            Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem 12 mánuðir séu liðnir frá því að kærandi og börn hennar lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi og að tafir á meðferð umsóknanna séu ekki á ábyrgð þeirra. Því skuli taka umsóknir kæranda og barna hennar til efnismeðferðar á Íslandi.

III.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá telur kærunefnd að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn fari umsókn ekki í efnismeðferð af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber að einhverju leyti ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Líkt og áður hefur komið fram sóttu kærandi og börn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi þann 10. desember 2018 og hafa þau ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir um 14 mánuðir frá því að umsóknir kæranda og barna hennar bárust fyrst íslenskum stjórnvöldum.

Þann 14. janúar 2020 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar frá Útlendingastofnun barst samdægurs og var það mat stofnunarinnar að kærandi hafi ekki tafið mál sitt að nokkru leyti. Þann 16. janúar 2020 barst kærunefnd svar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra þar sem kom fram að mál kæranda hafi ekki komið á borð deildarinnar. Vegna þessa byggi stoðdeild ekki yfir upplýsingum í tengslum við mál kæranda.

Af upplýsingum sem kærunefnd bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutningi kæranda og barna hennar, má ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af völdum þeirra. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í málum þeirra og er að mati kærunefndar ekkert sem bendi til þess að þau verði talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsókna sinna, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda og barna hennar hér á landi síðan þau lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 10. desember 2018, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli þeirra á þann hátt að þau eigi rétt á endurupptöku mála sinna, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda og barna hennar um endurupptöku á málum þeirra.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda og barna hennar til efnismeðferðar.

 

The appellants request for re-examination of their case is granted.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant’s applications for international protection in Iceland.

 

Áslaug Magnúsdóttir                                                                                      Bjarnveig Eiríksdóttir

                                                                                               

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum