Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 80/2016 Úrskurður 14. október 2016

Mál nr. 80/2016                     Millinafn:       Reyðfjörð

 


Hinn 14. október 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 80/2016 en erindið barst nefndinni 4. október:

Millinafnið Reyðfjörð er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Reyfjörð uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Reyðfjörð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum