Hoppa yfir valmynd
21. september 2020 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 65/2020 Úrskurður 21. september 2020

Mál nr. 65/2020                     Eiginnafn:      Dyljá (kvk.)

 

 

Hinn 21. september 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 71/2020 en erindið barst nefndinni 29. júlí. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 17. ágúst en afgreiðslu þess frestað.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í þessu máli reynir á skilyrði nr. 3 hér að ofan. Í fyrsta lagi geta ritmyndir rótgróinna íslenskra nafna sem stríða gegn hefð varðandi ritun þeirra ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Í öðru lagi er rittáknið y ekki ritað í íslensku nema það styðjist við uppruna. Nafnið sem hér um ræðir er íslensk aðlögun á nafninu Delia og því getur ritun þess með y ekki talist styðjast við uppruna. Þess vegna er einungis hægt að fallast á ritháttinn Dyljá sem ritmynd kvenmannsnafnsins Diljá ef þessi ritháttur telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber enginn sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglnanna eiginnafnið Dyljá. Aftur á móti kemur nafnið fyrir í manntalinu 1920. Þá hafa nefndinni borist gögn sem sýna að nafn konu fæddrar 1928 var skráð „Dyljá“ í kirkjubók við fæðingu dóttur hennar árið 1949. Konan lést 2005 og mun ávallt hafa ritað nafn sitt Dyljá. Þótt skilyrði vinnulagsreglna nefndarinnar um hefð séu strangt til tekið ekki uppfyllt í þessu máli telur nefndin þó að nafnið Dyljá sé svo nálægt því að uppfylla skilyrði 1.d að rétt sé að fallast á að það hafi unnið sér hefð í íslensku.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dyljá (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd nafnsins Diljá (kvk.).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum