Hoppa yfir valmynd
12. maí 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tryggir félagslegan stuðning við bændur

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.  - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Bændasamtökunum styrk sem ætlað er að nota til sértækra aðgerða til að tryggja þjónustu og stuðning við viðkvæma hópa í kjölfar Covid-19 faraldursins. Ráðherra og Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka, Íslands undirrituðu samninginn í dag.

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands ályktaði um nauðsyn þess að til kæmi aukinn félagslegur stuðningur við bændur með það að markmiði að tryggja bændum aðgang að fræðslu og leiðbeiningum er varða forvarnir gegn andlegum sjúkdómum og viðbrögð við áföllum. Nauðsynlegt er að bændur og aðstandendur hafi og þekki greiðar leiðir til sjálfsbjargar. Þá er einnig mikilvægt að vitundavakning um þessi mál eigi sér stað meðal bænda.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að bændur um heim allan eru útsettari fyrir atvinnutengdum sjúkdómum, bæði líkamlegum og andlegum, en aðrar starfsstéttir. Fjölmargir þættir hafa áhrif á heilsu fólks og full þörf er á að auka fræðslu og forvarnir um andlega og líkamlega heilsu þeirra sem starfa í landbúnaði. Langvarandi streita, heimsfaraldur og versnandi afkoma hafa reynt mjög á bændur undanfarin ár en það getur leitt til kulnunar og andlegra veikinda.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra: „Við höfum frá upphafi faraldursins lagt sérstaka áherslu á stuðning við viðkvæma hópa og við vitum að það hefur reynt mikið á bændur síðustu árin, en þeir eru mjög útsettir fyrir atvinnutengdum kvillum. Það er því er einstakt ánægjuefni að geta stutt við þetta mikilvæga verkefni Bændasamtakanna.“

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands: „Það er mikið áhyggjuefni að bændur leita síður hjálpar vegna geðheilsu sinnar. Vinnuumhverfi bænda er erfitt og krefjandi og það er afar brýnt að efla forvarnir og auka þekkingu á því hvernig megi bæta vinnuumhverfi þeirra. Bændur þekkja ekki styttingu vinnuvikunnar eða helgarfrí. Lífsstíll og heimilislíf bænda er samtvinnað vinnu þeirra með löngum og óreglulegum vinnustundum. Margir bændur búa líka lengra frá heilsugæslustöðvum og annarri sérfræðiþjónustu en aðrir. Þetta er lýðheilsumál sem við verðum að fara að ræða því kulnun og andleg vanlíðan á sér einnig stað innan þessarar starfsgreinar eins og annarra.“ 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum