Hoppa yfir valmynd
13. maí 2012

Yfirlýsing forsætisráðherra vegna ummæla forseta Íslands

Yfirlýsing frá forsætisráðherra

Vegna fyrirspurna frá fjölmiðlum í kjölfar viðtals við forseta Íslands, hr. Ólaf Ragnar Grímsson, vill forsætisráðherra taka fram eftirfarandi:

  "Forsætisráðherra mun ekki blanda sér í kosningabaráttu vegna væntanlegs kjörs til embættis forseta Íslands og mun því ekki bregðast við ummælum sem fram komu í útvarpsviðtali við forsetann í dag. 

Mikilvægt er að sú barátta fari vel og málefnalega fram og umdeildum málum á vettvangi stjórnmálanna sé haldið aðgreindum frá forsetakosningum. Hverjum og einum frambjóðanda er auðvitað í sjálfsvald sett hvernig hann eða hún kýs að tjá sig um slík mál eftir atvikum.

Í samskiptum sínum við núverandi forseta hefur ríkisstjórnin í einu og öllu fylgt stjórnarskrá og mótuðum stjórnskipunarhefðum. Er því óhjákvæmilegt að vísa á bug öllum ásökunum um að annað hafi átt við í samskiptum ríkisstjórnarinnar eða forystumanna hennar og núverandi forseta."

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum