Hoppa yfir valmynd
1. desember 2021 Utanríkisráðuneytið

UNICEF stefnir í metár í sölu „Sannra gjafa“

Ljósmynd: UNICEF - mynd

UNICEF á Íslandi setur stefnuna á enn eitt metárið í sölu „Sannra gjafa“ en það eru gjafir sem geta tryggt ótal nauðstöddum börnum um allan heim lífsnauðsynlega hjálp. Um er að ræða gjafir eins og jarðhnetumauk gegn vannæringu, bóluefni, vetrarfatnað og vatnshreinsitöflur. Á síðasta ári voru keyptar „Sannar gjafir“ fyrir tæpar 33 milljónir króna.

Vinsælasta gjöfin í fyrra voru 100 pakkar af jarðhnetumauki en alls tryggðu landsmenn börnum í neyð 137.200 slíka pakka á síðasta ári með þeirri gjöf. „Í flestum tilfellum þarf vannært barn aðeins þrjá slíka á dag í nokkrar vikur til að hljóta fullan bata. Það voru því ansi mörg líf sem gjafirnar björguðu það árið,“ segir í frétt á vef UNICEF.

„Tugir þúsunda barna hafa notið góðs af Sönnum gjöfum frá Íslandi í gegnum tíðina og hafa þessar hentugu, umhverfisvænu og fallegu gjafir sem skipta svo miklu máli aldrei verið vinsælli. Þetta eru gjafir sem koma að miklu gagni fyrir þau börn og fjölskyldur sem njóta góðs af og munu ekki gleymast. Sannar gjafir endurspegla því að okkar mati hinn sanna anda jólanna,“ segir UNICEF.

Samtökin eru einnig með til sölu sérstök jólakort og gjafamerkimiða, hvort tveggja með myndum af íslensku jólasveinunum eftir Brian Pilkington. Hvert kort og merkimiði er ígildi mismunandi hjálpargagna sem bjarga og bæta líf barna í neyð. Einnig er hægt að kaupa möndlugjöf sem er ígildi tveggja hlýrra teppa, 50 skammta af næringarríku jarðhnetumauki og eins fótbolta.

Á árinu tók UNICEF í gagnið nýja og endurbætta heimasíðu „Sannra gjafa“ þar sem fólk getur skrifað persónulega kveðju til viðtakanda, hlaðið upp mynd að eigin vali til að skreyta gjafabréfið og ýmist valið að láta senda þér það útprentað í pósti eða fengið sent í tölvupósti.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum