Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 423/2019 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 423/2019

Miðvikudaginn 13. nóvember 2019

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Jón Baldursson læknir.

Með rafrænni kæru, móttekinni 7. október 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. júní 2019 þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri og tengdar greiðslur en henni metinn örorkustyrkur tímabundið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um örorkulífeyri og tengdar greiðslur með umsókn, dags. 17. maí 2019. Með örorkumati, dags. 13. júní 2019, var umsókn kæranda synjað en hún var talin uppfylla skilyrði örorkustyrks frá X 2019 til X 2021. Farið var fram á rökstuðning fyrir ákvörðun Tryggingastofnunar og var hann veittur með bréfi, dags. 25. júní 2019.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 7. október 2019.

II. Sjónarmið kæranda

Óskað er endurskoðunar á synjun Tryggingastofnunar um 75% örorkumat.

Í kæru er beðist velvirðingar á því hve kæran hafi borist seint en ástæðan sé sú að beðið hafi verið eftir gögnum frá heimilislækni og félagsráðgjafa. Meðfylgjandi kæru var læknisvottorð B, dags. X 2019, og bréf C félagsráðgjafa, dags. X 2019.

III. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. júní 2019, þar sem kæranda var synjað um örorkulífeyri og tengdar greiðslur en henni veittur tímabundinn örorkustyrkur.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Í 3. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir að þegar aðili máls fari fram á rökstuðning hefjist kærufrestur ekki fyrr en rökstuðningur hafi verið tilkynntur honum.

Samkvæmt gögnum málsins liðu rúmlega þrír mánuðir frá því að kæranda var birtur rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 25. júní 2019, þar til kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. október 2019. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar, sbr. 3. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga, var því liðinn þegar kæran barst nefndinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

  1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
  2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun frá 13. júní 2019 og í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni frá 25. júní 2019 var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Í kæru kemur fram að kærandi hafi verið að bíða eftir gögnum frá heimilislækni og félagsráðgjafa og því hafi ákvörðunin ekki verið kærð fyrr. Ekki verður ráðið af framangreindu að kærandi hafi ekki getað lagt fram kæru innan þriggja mánaða með þeim fyrirvara að frekari gögn kæmu síðar. Það er því mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé afsakanlegt að kæra hafi ekki borist fyrr. Þá verður ekki heldur séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, enda virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að kærandi geti sótt um örorkulífeyri á ný.

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum