Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 450/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 2. nóvember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 450/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100034

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. október 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Srí Lanka (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. október 2022, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi er ríkisborgari Srí Lanka en með tímabundið dvalarleyfi í Bretlandi. Með umsókn, dags. 30. september 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í þrjá mánuði en hann hafi ætlað að dvelja hér á landi í tvo daga og í Noregi í tvo daga. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. október 2022. Hinn 14. október 2022 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III.      Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi telji ákvörðun Útlendingastofnunar hafa verið ranga m.a. í ljósi þess að hann hafi skýrt frá tilgangi fyrirhugaðrar ferðar sinnar hingað til lands. Hann hafi greint frá því að ætla skoða Geysi en hann skilji þó efasemdir Útlendingastofnunar um tilgang ferðarinnar enda hafi hann einungis ætlað að heimsækja Ísland í hálfan sólarhring. Hann hafi viljað koma á laugardagsmorgni og fara heim á sunnudagskvöldi en það hafi verið dýrara. Hann hafi ekki tök á því að dvelja lengur á Íslandi þar sem hann þurfi að mæta í vinnu á virkum dögum. Hann geri sér grein fyrir því að svo stuttar ferðir séu óvenjulegar en hann geri þetta reglulega. Hann hafi t.d. ferðast mikið um Bretland síðustu þrjá mánuði. Hann hafi nú þegar bókað flug og hótel og langi mikið að heimsækja Ísland.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda einkum lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Srí Lanka þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a – h-liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru, er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10 og 11 vegna synjunar á umsókn hans, þ.e. að upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hefðu ekki verið áreiðanlegar, sem og réttmæti þeirra upplýsinga sem veittar hafi verið um ferðaáætlun kæranda hér á landi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Fyrirtækið Visa Facilitation Services Global (VFS) tekur á móti umsóknum um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Bretlandi fyrir hönd sendiráðs Íslands þar í landi. Umsóknir eru í framhaldinu afhentar sendiráði Íslands sem fer yfir þær í samræmi við 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 4. gr. reglugerðar um útlendinga og framangreinda reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 810/2009. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar. Komist Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að umsókn uppfylli ekki skilyrði fyrir veitingu vegabréfsáritunar sem sett eru fram í lögum um útlendinga, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 810/2009, er umsókninni synjað.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð hans hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi fyrst sótt um vegabréfsáritun vegna dvalar hér á landi í tvo daga. Hann hafi svo breytt umsókn sinni í ,,multiple‘‘ en hann hafði einnig ætlað sér að ferðast til Noregs í sólarhring í febrúar. Jafnframt kemur fram að kærandi hafi aldrei ferðast innan Schengen-svæðisins. Hann hafi ætlað að koma hingað til lands í hálfan dag, hann hafi frétt að Ísland væri fallegt en hafði ekki ástæðu fyrir ferð sinni til Noregs. Hann hafi ætlað að leigja bíl á Íslandi og sjá Geysi. Hann hafi ekki vitað neitt meira um Ísland eða Noreg. Taldi fulltrúi sendiráðsins ólíklegt að kærandi væri sannarlega að ferðast til Íslands heldur frekar að stunda svokallað ,,visa shopping‘‘. Í símaviðtali hafi kærandi verið spurður út í ferðasögu sína og kvaðst hann ætla að dvelja hér á landi yfir helgi, hann yrði þó einungis í hálfan dag á landinu enda hafi flugmiðarnir deginum áður verið helmingi dýrari. Þá kvaðst kærandi ekki eiga vini eða ættingja í Evrópu. Það var mat fulltrúa sendiráðsins, í ljósi framangreinds, að umsókn kæranda skyldi synjað í samræmi við ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi hugðist dvelja hér á landi í hálfan sólarhring, á þeim tíma ætlaði kærandi að leigja bíl, sjá Geysi og gista á farfuglaheimili í Reykjavík. Þá gat kærandi ekki gefið upp ástæðu ferðar sinnar til Oslóar en hann hugðist dvelja þar í sólarhring í febrúar. Getur framangreind ferðaáætlun kæranda hvorki talist vel ígrundið né raunhæf og er að mati kærunefndar ótrúverðug.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii.-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum