Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2018 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menntastefna og færniþörf efnahagslífsins

Grein eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu 20. ágúst 2018.
Íslenska menntakerfið er gott en við viljum gera það ennþá betra. Vinna er hafin við mótun nýrrar menntastefnu til ársins 2030 sem mun setja í forgang þær áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir í mennta-, atvinnu- og velferðarmálum. Þetta verkefni er unnið í breiðu samráði og nú í haust fer af stað fundaröð, úti um allt land, þar menntakerfið okkar og ný menntastefna verður til umfjöllunar.

Menntamál snerta okkur öll og fólki er umhugað um menntakerfið sitt. Hagsæld framtíðarinnar grundvallast að miklu leyti á gæðum menntunar. Örar tækniframfarir eins og aukin nýting gervigreindar í atvinnulífinu krefjast þess að menntakerfið okkar geti tekist á við breytingar. Íslenskt samfélag er kjörið til þess að fást við þessar áskoranir, þar sem tæknibreytingar gagnast oft fámennum samfélögum þar sem tæknin hefur verið nýtt til að einfalda og auka skilvirkni mannaflsfrekra atvinnugreina. Til þess að nýta tækniframfarir verður þekkingargrunnurinn að vera öflugur og tilbúinn að takast á við breytta tíma.

Vinna er hafin við að meta færni- og menntunarþörf á Íslandi. Ekki er hægt að spá með mikilli nákvæmni um framtíðina en við getum hins vegar undirbúið okkur fyrir hana. Þessi vinna er okkur mikilvæg og getur kortlagt betur samspil atvinnulífs og menntakerfis og stuðlað að því að þau vinni betur saman. Sífellt fleiri ríki heims átta sig nú á mikilvægi þess að sýna aukna framsýni í stefnumótun ólíkra málaflokka. Afar brýnt er að mótun menntastefnu til ársins 2030 taki mið af færniþörf efnahagslífs framtíðarinnar.

Stjórnvöld hafa sannarlega metnað til að efla menntakerfið okkar. Við mótun nýrrar menntastefnu munum við rýna í þau gögn, rannsóknir og tölfræði sem fyrir liggja og einnig horfa til þess sem best hefur reynst í löndunum í kringum okkur. Það er brýnt að stefnumótun byggi ávallt á bestu þekkingu hverju sinni – þannig tryggjum við að menntakerfið sé samkeppnishæft og þjóni best þörfum nemenda sinna og samfélagsins í heild.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum