Hoppa yfir valmynd
5. desember 2018 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra á fundi Atlantshafsbandalagsins

Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsríkjanna á fundinum í Brussel - myndNATO

Samstarfið yfir Atlantshafið, staða mála í Úkraínu, afvopnunarmál og málefni vestanverðs Balkanskaga voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk nú undir hádegi. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sat fundinn.

Rætt var um stöðu afvopnunarmála og vopnatakmarkana í tengslum við langvarandi brot Rússlands á INF-samningnum um meðaldrægar kjarnaflaugar. „Bakgrunnur INF-samningsins er leiðtogafundur Sovétríkjanna og Bandaríkjanna í Höfða árið 1986 og samningurinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki í að stuðla að og viðhalda öryggi. Það er því er mikið áhyggjuefni ef ekki er borin virðing fyrir alþjóðlegum skuldbindingum og samhljómur á meðal bandalagsríkja að gera lokatilraun til þess að fá Rússlandsstjórn til að gera hreint fyrir sínum dyrum og uppfylla ákvæði samningsins,“ segir Guðlaugur Þór, en utanríkisráðherrarnir samþykktu yfirlýsingu vegna brota Rússlands á INF-samningnum. 

Utanríkisráðherrarnir funduðu einnig með starfsbræðrum sínum frá Úkraínu og Georgíu um öryggismál á Svartahafi og stöðuna á Kertssundi í ljósi nýlegra atburða. Þá ræddu ráðherrarnir um þær ógnir sem stafa af ófriði og óstöðugleika sunnan landamæra bandalagsins, meðal annars uppgang öfgahópa og þátttöku bandalagsins í vörnum gegn hryðjuverkum.

Málefni vestanverðs Balkanskaga voru sömuleiðis til umræðu á fundi utanríkisráðherranna og var samþykkt að bjóða Bosníu og Hersegóvínu að leggja fram sína fyrstu ársáætlun sem markar skref til aðlögunar og framtíðaraðildar landsins að bandalaginu. Jafnframt var fundað með ríkjum sem taka þátt í verkefnum Atlantshafsbandalagsins í Afganistan.   

Samhliða utanríkisráðherrafundinum í Brussel átti Guðlaugur Þór fund með Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, þar sem tvíhliða samskipti Íslands og Þýskalands voru til umfjöllunar, sem og Evrópumál, öryggismál og málefni norðurslóða. 

„Samskipti þjóðanna eru afar náin og hefur Þýskaland sýnt norrænu samstarfi og málefnum norðurslóða aukinn áhuga á umliðnum árum. Þá deilum við skoðunum og áherslum í mörgum málum á alþjóðavettvangi og ávallt gott að finna góðvild Þjóðverja í garð okkar Íslendinga – sem endurspeglaðist á þessum fundi,“ sagði Guðlaugur Þór.

  • Guðlaugur Þór Þórðarson og Heiko Maas - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum