Hoppa yfir valmynd
26. ágúst 2022 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2022

Mánudaginn 15. ágúst sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 301/2022 fyrir tímabilið 1. september til 31. desember 2022. Útboðsverð tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 25 gild tilboð í tollkvótann.

Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 978.050 kg. á meðalverðinu 326 kr./kg.  Hæsta boð var 1.000 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 232.000 kg. á jafnvægisverðinu 551 kr./kg.

Svínakjöt í vörulið 0203. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 943.400 kg. á meðalverðinu 296 kr./kg.  Hæsta boð var 700 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 234.000 kg. á jafnvægisverðinu 500 kr./kg.

Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Sextán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 1.453.024 kg á meðalverðinu 383 kr./kg.  Hæsta boð var 1.000 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 286.000 kg á jafnvægisverðinu 587 kr./kg. 

Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 271.000 kg á meðalverðinu 211 kr./kg.  Hæsta boð var 422 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 66.000 kg á jafnvægisverðinu 401 kr./kg.

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 107.860 kg. á meðalverðinu 211 kr./kg. Hæsta boð var 501 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 34.000 kg. á jafnvægisverðinu 250 kr./kg.

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 380.800 kg. á meðalverðinu 474 kr./kg. Hæsta boð var 852 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 126.000 kg. á jafnvægisverðinu 760 kr./kg.

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Þrettán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 436.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 301/2022 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 76.000 kg., til átta fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Fjórtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 327.040 kg. á meðalverðinu 118 kr./kg.  Hæsta boð var 500 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 84.000 kg. á jafnvægisverðinu 250 kr./kg.

Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Sextán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 739.500 kg. á meðalverðinu 283 kr./kg.  Hæsta boð var 850 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 134.000 kg. á jafnvægisverðinu 600 kr./kg.

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

130.000

Ekran ehf.

7.000

Garri ehf.

50.000

Innnes ehf.

5.000

Kjötmarkaðurinn ehf.

40.000

Stjörnugrís hf.

 

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

74.000

Mata hf

160.000

Stjörnugrís hf.

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

47.000

Innnes ehf

5.000

Krónan ehf.

144.000

Mata hf.

10.000

OJK – ÍSAM ehf.

80.000

Stjörnugrís hf.

Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

39.000

Ekran ehf

3.000

Krónan ehf

24.000

Mata ehf

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

3.000

Ekran ehf.

3.000

Innnes ehf.

6.000

Krónan ehf.

21.340

Stjörnugrís ehf

660

Svanur ehf

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

8.500

Aðföng

4.500

Danól ehf

3.000

Garri ehf.

30.000

Innnes ehf.

15.000

Krónan ehf.

10.000

Mjólkursamsalan

55.000

Nathan & Olsen ehf.

Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 301/2022

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Aðföng

11.400

Danól ehf.

11.400

Innnes ehf.

7.000

Mata hf.

11.400

Mjólkursamsalan ehf.

11.400

Natan & Olsen ehf.

2.000

Nautica ehf.

11.400

Stjörnugrís ehf.

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

7.000

Aðföng

2.024

Danól ehf

6.000

Ekran ehf.

1.500

Innnes ehf.

2.000

Krónan ehf

25.000

Market ehf.

30.000

Mini market ehf.

1.647

OJK – ÍSAM ehf

8.489

Stjörnugrís ehf.

340

Svanur ehf.

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

6.888

Aðföng

3.061

Danól ehf

2.500

Ekran ehf.

80.000

Innnes ehf.

12.551

KFC ehf.

10.000

Krónan ehf

10.000

Mini Market ehf.

9.000

Stjarnan ehf.

 

Reykjavík, 24. ágúst 2022

Matvælaráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum