Hoppa yfir valmynd
18. mars 2019 Matvælaráðuneytið

Fiskveiðisamkomulag Íslands og Færeyja

Fiskveiðisamkomulag Íslands og Færeyja - myndSigurður Ólafsson / NordenOrg

Kristján Þór Júlíusson og Högni Hoydal sjávarútvegsráðherrar Íslands og Færeyja hafa náð samkomulagi um fiskveiðisamning á milli Íslands og Færeyja. Samningurinn felur í sér endurnýjun á samningi frá 2018 sem veitir Íslandi aðgang að lögsögu Færeyja til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld og samhliða fá Færeyjar aðgang að lögsögu Íslands fyrir sömu tegundir. Ísland fær 1.300 tonn af makríl frá Færeyjum og Færeyjar fá 5.600 tonn af bolfiski og allt að 30 þúsund tonn af loðnu frá Íslandi háð því að loðna finnist í veiðanlegu magni í lögsögu Íslands. Samkomulagið  gildir fyrir árin 2019 og 2020.

Jafnframt sammæltust ráðherrarnir um að halda áfram vinnu að gerð rammasamnings um fiskveiðisamstarf þjóðanna og tilnefna hvor um sig sérfræðinga til að meta verðmæti aflaheimilda og aðgangs sem nýtist við gerð fiskveiðisamnings þjóðanna. Gert er ráð fyrir að þessari vinnu verði lokið um mitt ár 2020.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum