Hoppa yfir valmynd
23. desember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

20 milljónum króna úthlutað til hjálparsamtaka fyrir jólin

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, mun fyrir jólin úthluta samtals 20 milljónum króna í styrki til hjálparsamtaka sem styðja við viðkvæma hópa í samfélaginu um land allt, einkum með matarúthlutunum og ráðgjöf. Alls níu hjálparsamtök fá styrk til þess að geta stutt enn betur við sína skjólstæðinga en styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins og er beint sérstaklega að þeim sem búa við fátækt. Þau hjálparsamtök sem fá styrk eru Hjálpræðisherinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndir í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri og Akranesi, Fjölskylduhjálp Íslands og Kaffistofa Samhjálpar.

Samkvæmt upplýsingum frá forsvarsmönnum framangreindra hjálparsamtaka hefur orðið mikil aukning á beiðnum um efnislega aðstoð á árinu í kjölfar faraldursins og ekki síst nú þegar jólahátíðin er að ganga í garð. Jólaaðstoðin er ávallt umfangsmikil hjá öllum hjálparsamtökum ár hvert og búa þau sig nú undir að mæta enn meira álagi fyrir komandi jól vegna áhrifa Covid-19 faraldursins. Auk þess að búa við fátækt þá eru margir í þessum hópi sem búa einnig við mikla félagslega einangrun.  Bæði Hjálpræðisherinn og Kaffistofa Samhjálpar hafa undanfarin ár boðið upp á jólamáltíðir sem hægt er að njóta í samveru við aðra, en þó upp að því marki sem leyfilegt er á þessum tímum.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Í stað gleði og tilhlökkunar í aðdraganda jóla þá er það einmitt þessi tími sem veldur hvað mestum kvíða, áhyggjum og einsemd hjá okkar viðkvæmasta hópi í samfélaginu. Það er bæði mikilvægt og ánægjulegt að geta stutt einstaklinga og fjölskyldur sem á þurfa að halda með þessum hætti.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum