Hoppa yfir valmynd
19. október 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 297/2022 - Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 297/2022

Miðvikudaginn 19. október 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 8. júní 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 609.134 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. júní 2022. Með bréfi, dags. 13. júní 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 1. júlí 2022, var farið fram á frávísun málsins á þeim grundvelli að stofnunin hefði tekið málið upp að nýju. Frávísunarkrafan var kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. júlí 2022. Með tölvupósti kæranda 11. ágúst 2022 hafnaði hann frávísunarkröfu stofnunarinnar. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. ágúst 2022, óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir efnislegri greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins. Með bréfi, dags. 1. september 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettri sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Enginn rökstuðningur kemur fram í kæru en henni fylgdi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022, um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2021.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í kjölfar kæru hafi Tryggingastofnun yfirfarið endurreikning og uppgjör ársins 2021. Miðað við fyrirliggjandi gögn virðist líklegt að eingreiðsla, sem kærandi hafi fengið í september 2021, sé að miklu leyti tilkomin vegna tímabils sem kærandi hafi ekki verið á greiðslu lífeyris frá stofnuninni, þ.e. áður en hann hafi byrjað töku örorkulífeyris. Sé það rétt þá sé Tryggingastofnun heimilt að taka tillit til þess við endurreikninginn, sbr. 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Tryggingastofnun hafi því sent kæranda bréf og óskað eftir að hann myndi breyta skattframtali sínu hjá Skattinum og skila inn gögnum frá lífeyrissjóðnum þar sem fram kæmi fyrir hvaða mánuði eingreiðslan hafi verið á árinu 2021 svo að hægt væri að setja greiðslur á rétta mánuði á því ári.

Þar sem Tryggingastofnun hafi nú tekið málið upp að nýju óski stofnunin eftir að úrskurðarnefndin vísi fyrirliggjandi kæru frá. Fallist úrskurðarnefndin ekki á frávísunarkröfu þessa áskilji stofnunin sér rétt til að leggja fram efnislega greinargerð vegna málsins.

Í greinargerð Tryggingastofnunar, dags. 1. september 2022, er greint frá því að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Tryggingastofnun hafi óskað eftir frávísun málsins þar sem ákveðið hafi verið að rannsaka málið nánar og óska eftir nánari upplýsingum og gögnum frá kæranda. Engin gögn hafi borist frá kæranda og úrskurðarnefndin hafi óskað eftir efnislegri greinargerð vegna málsins.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljast tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé Tryggingastofnun ríkisins heimilt, þegar einstaklingur leggi inn nýja umsókn um bætur frá stofnuninni, að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað sé að aflað verði eftir að bótaréttur stofnast. Unnt sé að beita heimild þessari bæði um nýja umsókn um örorkubætur/endurhæfingarlífeyri og um nýja umsókn um ellilífeyri hjá sama einstaklingi, enda sé ekki um samfellt bótatímabil að ræða. Heimildinni verði þó eingöngu beitt einu sinni um útreikning ellilífeyris. Þegar um endurhæfingar- eða örorkulífeyrisþega sé að ræða teljist umsókn vera ný ef liðin séu meira en tvö ár frá því að síðasta örorkumat hafi runnið út eða viðkomandi einstaklingur hafi verið í virkri endurhæfingu og/eða hafi fengið greiðslur frá Tryggingastofnun.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá 1. ágúst og út árið. Í samræmi við ákvæði 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hafi allar tekjur kæranda á tímabilinu 1. ágúst 2021 til 31. desember 2021 áhrif á réttindi kæranda. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 609.134 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu og áður myndaðrar skuldar. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Tryggingastofnun hafi borist umsókn kæranda um örorkulífeyri þann 10. ágúst 2021. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 14. september 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um afgreiðslu umsóknar um örorkulífeyri frá 1. ágúst 2021. Í bréfinu hafi komið fram að miðað yrði við að einu tekjur kæranda væru 15.060 kr. vextir af innistæðum og hafi honum verið greitt samkvæmt þessari tekjuáætlun út nóvember 2021.

Við reglulegt eftirlit Tryggingastofnunar í nóvember hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá RSK. Tryggingastofnun hafi búið til nýja tillögu að tekjuáætlun á grundvelli þeirra upplýsinga og hafi í henni verið gert ráð fyrir að kærandi hefði 4.641.982 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sömu vaxtatekjur. Í bréfi stofnunarinnar, dags. 11. nóvember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um hina nýju tillögu að tekjuáætlun og í því sama bréfi hafi honum verið tilkynnt að búið væri að áætla kröfu að fjárhæð 609.144 kr. þegar tekið hefði verið tillit til staðgreiðslu skatta. Auk þess hafi komið fram að þessi áætlaða skuld yrði ekki innheimt fyrr en uppgjör hefði farið fram.

Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að frá 1. ágúst og til með 31. desember 2021 hafi kærandi verið með 3.754.507 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 872 kr. í vexti og verðbætur. Tekjuáætlun Tryggingastofnunar frá því í nóvember 2021 hafði gert ráð fyrir að á því tímabili hefði kærandi haft 4.641.982 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 6.275 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafði fengið greiddar 1.144.042 kr. á árinu en hefði átt að fá greiddar 255.440 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 609.134 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu og áður myndaðrar kröfu. Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá hafi lífeyrissjóðstekjur kæranda verið 2.903.356 kr. í september 2021.

Í 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 segi að við endurreikning bóta til þeirra sem hafi fengið greiðslur hluta úr bótagreiðsluári gildi að byggja skuli á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um sé að ræða tekjur sem séu staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu beri að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur hafi verið fyrir hendi í. 

Tryggingastofnun beri að reikna bætur út frá þeim tekjum sem aflað sé frá þeim tíma sem bótaréttur hafi stofnast. Samkvæmt gögnum málsins og staðgreiðsluskrá hafi kærandi fengið greiddar umræddar lífeyrissjóðstekjur í september 2021. Kærandi hafi byrjað á örorkulífeyri þann 1. ágúst 2021. Með vísan til framangreindra laga- og reglugerðarákvæða beri Tryggingastofnun því að telja umræddar lífeyrissjóðstekjur til tekna við útreikning lífeyris til kæranda.

Eins og komið hafi fram í frávísunarbeiðni Tryggingastofnunar þá virðist líklegt að framangreind eingreiðsla sé að miklu leyti tilkomin vegna tímabils sem kærandi hafi ekki verið á greiðslu lífeyris frá stofnuninni, þ.e. áður en hann hafi byrjað á örorkulífeyri. Til þess að Tryggingastofnun geti tekið tillit til þess geti kærandi enn skilað inn gögnum frá lífeyrissjóðnum þar sem komi fram fyrir hvaða mánuði eingreiðslan sé á árinu svo að hægt sé að setja greiðslur á rétta mánuði á því ári.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021 að svo stöddu.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Kærandi fékk greiddan örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins frá 1. ágúst 2021 og út árið. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. þeirra laga ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags

Í 6. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli hafa eftirlit með því að áætlaðar tekjur séu í samræmi við upplýsingar sem stofnunin afli úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda eða frá öðrum þeim aðilum sem getið sé um í 40. gr. laganna. Í 1. málsl. 1. mgr. 45. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli reglubundið sannreyna réttmæti bóta, greiðslna og upplýsinga sem ákvörðun um réttindi byggist á. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er Tryggingastofnun heimilt að endurskoða grundvöll bótaréttar hvenær sem er og samræma bætur þeim breytingum sem hafi orðið á aðstæðum greiðsluþega.

Í 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skuli leggja 1/12 af áætluðum tekjum bótagreiðsluársins og að bótagreiðsluár sé almanaksár, en sé um nýja umsókn að ræða skuli bótaréttur reiknaður út frá þeim tekjum umsækjanda sem aflað er frá þeim tíma sem bótaréttur stofnaðist.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 skal Tryggingastofnun við endurreikning bóta til þeirra sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári, byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í. Í 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 er meðal annars greint frá því að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt, þegar einstaklingur leggi inn nýja umsókn um bætur, að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað sé að aflað verði eftir að bótaréttur stofnast.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins útbjó Tryggingastofnun tekjuáætlun, dags. 14. september 2021, vegna fyrirhugaðrar töku örorkulífeyris frá 1. ágúst 2021, byggðar á upplýsingum frá skattyfirvöldum þar sem gert var ráð fyrir 15.060 kr. í fjármagnstekjur á árinu. Kærandi gerði engar athugasemdir við þá áætlun. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá í nóvember 2021 kom í ljós að kærandi var með lífeyrissjóðstekjur á árinu. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun, dags. 11. nóvember 2021, þar sem gert var ráð fyrir 4.641.982 kr. í lífeyrissjóðstekjur og óbreyttum fjármagnstekjum. Í framangreindu bréfi var kærandi upplýstur um áætlaða kröfu að fjárhæð 609.144 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu fyrir framangreint tímabil. Bótaréttindi voru því reiknuð og bætur greiddar út miðað við þær forsendur út árið 2021.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 reyndust tekjur kæranda frá 1. ágúst 2021 til 31. desember 2021 hafa verið 3.754.507 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 872 kr. í fjármagnstekjur. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna síðustu fimm mánaða ársins leiddi í ljós að kærandi hafði fengið ofgreitt í bótaflokkunum grunnlífeyri, aldurstengdri örorkuuppbót, tekjutryggingu og sérstakri uppbót, samtals að fjárhæð 609.134 kr., að teknu tillit til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að lífeyrissjóðstekjur voru vanáætlaðar í tekjuáætlun. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Ágreiningur málsins varðar þann tekjulið í skattframtali kæranda þar sem fram koma upplýsingar um lífeyrissjóðstekjur. Af gögnum málsins má ráða að kærandi geri athugasemdir við að stofnunin hafi ekki tekið tillit til þess að umræddar tekjur hafi verið vegna tímabils fyrir töku örorkulífeyris. Fyrir liggur að kærandi fékk lífeyrissjóðsgreiðslur í september 2021, eftir töku örorkulífeyris. Í bréfi Tryggingastofnunar, dags. 1. júlí 2022, er kæranda leiðbeint á þá leið að hann geti óskað eftir breytingu á skattframtali þannig að eingreiðslunni verði dreift á þau ár sem hún var greidd vegna. Í kjölfarið geti stofnunin tekið tillit til þess ef kærandi leggi fram gögn frá lífeyrissjóðnum með upplýsingum um fyrir hvaða mánuði eingreiðslan sé á árinu 2021.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst að kærandi hafi fengið greiðslur frá lífeyrissjóði eftir töku örorkulífeyris og svo virðist sem hluti þeirra sé vegna fyrra tímabils. Úrskurðarnefndin horfir til þess að umræddar tekjur kæranda á árinu 2021 voru greiddar eftir töku örorkulífeyris. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 skal Tryggingastofnun við endurreikning bóta til þeirra, sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári, byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í. Þá er Tryggingastofnun ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtast á framtali bótaþega, enda kveður 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar skýrt á um að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli stofnunin endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt þessari grein.

Athygli kæranda er vakin á því að Tryggingastofnun hefur nú þegar leiðbeint honum um þann möguleika að óska eftir skattbreytingu vegna eingreiðslu frá lífeyrissjóði og leggja fram gögn frá lífeyrissjóðnum með upplýsingum um fyrir hvaða mánuði eingreiðslan sé á árinu 2021 og að þá geti stofnunin tekið upp endurreikning og uppgjör ársins.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum