Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2020 Innviðaráðuneytið

Vegagerðinni falið að skoða tvo kosti um legu Sundabrautar

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur falið Vegagerðinni að leiða vinnu starfshóps til að endurmeta og skoða tvo fýsilega kosti um legu Sundabrautar og gera tillögu að framtíðarlausn sem fest yrði í skipulagi. Í hópnum munu sitja fulltrúar Reykjavíkurborgar, SSH og Faxaflóahafnar auk Vegagerðarinnar.

Verkefnið felst í að endurmeta þá tvo kosti sem starfshópur um Sundabraut á vegum ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) taldi fýsilegasta í skýrslu sinni sem kynnt var í júlí í fyrra. Það eru jarðgöng yfir í Gufunes og lágbrú sem þverar hafnarsvæðið við Kleppsvík. Fyrri kosturinn er framkvæmanlegur án þess að hafa áhrif á starfsemi Sundahafnar . Fram kom í skýrslunni að reynist mögulegt að færa starfsemi Sundahafnar væri lágbrú ódýrasti kosturinn og sá sem hentaði flestum ferðamátum.

Í báðum tilvikum lagði starfshópurinn til að þessir valkostir yrðu endurmetnir og útfærðir til hlítar með tillit til breyttra forsenda um legu þessara samgöngutenginga. Leitað verði leiða til að lækka framkvæmdakostnað við göngin, endurskoða tengingar þeirra við hafnarsvæðið, og við Sæbraut og Gufunes til að hámarka þann fjölda sem myndi aka göngin í stað annarra leiða. Samhliða verði hugmyndir um lágbrú endurskoðaðar, mismunandi útfærslur á brú skoðaðar sem líklegt er að sátt náist um og hægt að hrinda í framkvæmd á viðunandi tíma.

Markmiðið að undirbúa ákvörðun

Markmið verkefnisins nú er að undirbúa ákvörðun um það hvaða leið verði farin við uppbyggingu Sundabrautar og eiga samráð við helstu hagsmunaaðila og fyrirtæki á svæðinu. Starfshópurinn á að skila niðurstöðum sínum fyrir lok ágústmánaðar og þá eiga liggja fyrir nauðsynlegar upplýsingar til þess að taka ákvörðun um legu Sundabrautar frá Sæbraut að Vesturlandsvegi í Kollafirði, sem fest yrði í skipulagi.

Verkefni hópsins verða einkum tvíþætt:

  1. Endurmeta hönnun og legu Sundabrautar og gera nýtt kostnaðarmat fyrir báða valkosti. Leggja skal fram ný frumdrög fyrir báðar framkvæmdir og taka mið af uppbyggingaráformum í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
  2. Greina valkosti fyrir breytt skipulag Sundahafnar ef lágbrú yrði fyrir valinu. Vinna þarf mat á áhrifum á umferð, umhverfisþætt, nærumhverfi, atvinnustarfsemi og þróunarmöguleika Sundahafnar.

Starfshópurinn á að skila niðurstöðum sínum fyrir 31. ágúst 2020.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum