Hoppa yfir valmynd
3. ágúst 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrir janúar - júní 2016

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar - júní 2016 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Handbært fé frá rekstri batnaði verulega á milli ára og var jákvætt um 37,9 ma.kr. samanborið við neikvætt handbært fé upp á 30,3 ma.kr. 2015. Þetta skýrist að stærstum hluta með tekjum af stöðuleikaframlögum á árinu 2016 sem námu 68 ma.kr á fyrri helmingi ársins. Handbært fé lækkar um 79,5 ma.kr. samanborið við lækkun um 37,1 ma.kr. á árinu 2015 sem skýrist að stærstum hluta af afborgunum lána sem námu 124,9 ma.kr. á tímabilinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum