Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2021 Innviðaráðuneytið

Tólf milljónum úthlutað til verslunar í strjálbýli

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Að þessu sinni var 12 milljónum króna úthlutað til verslunar í strjálbýli fyrir árið 2021. Samningar vegna styrkjanna verða undirritaðir á næstu dögum.

Markmið með framlögunum er að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustukjörnum, þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. Framlögin eiga að bæta rekstur verslana og skjóta frekari stoðum undir hann, til dæmis með samspili við aðra þjónustu, breyttri uppsetningu í verslunum og bættri aðkomu.

Alls bárust fimm umsóknir og var sótt um samtals kr. 34.818.000,- fyrir árið 2021

Verkefnin sem hljóta styrk eru:

  • Hríseyjarbúðin. Verslunin hlýtur styrk að upphæð 1 m.kr.
  • Verslun á Reykhólum. Stofnkostnaður vegna opnunar og reksturs verslunar. Verslunin hlýtur styrk að upphæð 5,8 m.kr.
  • Kauptún, Vopnafirði. Verslunin hlýtur styrk að upphæð 5,2 m.kr.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknirnar og gerði tillögur til ráðherra. Í valnefndinni sátu þau Elín Gróa Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Magnús Karel Hannesson, fv. sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, sem er formaður nefndarinnar. Með valnefnd störfuðu Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Sigríður K. Þorgrímsdóttir sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum