Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 591/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 591/2021

Fimmtudaginn 3. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. október 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 24. mars 2021 og var umsókn hans samþykkt 17. maí 2021. Þann 6. september 2021 var kærandi boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna. Kærandi boðaði forföll samdægurs. Þann 7. september 2021 var kærandi boðaður á ný á fund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Kærandi boðaði forföll á ný samdægurs. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 15. september 2021, var meðal annars óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda fyrir því að hafa ekki mætt í boðað viðtal þann 7. september 2021. Skýringar bárust frá kæranda 29. september 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. október 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá stofnuninni. 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 6. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 9. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 10. desember 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. desember 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar er ekki að finna sérstakan rökstuðning fyrir kæru en af kærunni má ráða að kærandi sé ósáttur við þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að þann 6. september 2021 hafi borist símtal frá einstaklingi sem hafi ekki viljað láta nafns síns getið þar sem hann vildi upplýsa Vinnumálastofnun um að kærandi væri staddur erlendis og hafi verið það síðastliðna tvo mánuði. Eftir nánari athugun hafi kæranda þann sama dag verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma hans frá stofnuninni kl. 10:09 þar sem hann hafi verið boðaður á fund hjá stofnuninni þann 7. september 2021 klukkan 11:00. Boðið hafi verið sent á ensku. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þann 6. september 2021 hafi kærandi boðað forföll og gefið þær skýringar að hann væri í ferðalagi úti á landi og gæti því ekki mætt á fund á boðuðum tíma. Með erindi, dags. 7. september 2021, hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma hans frá stofnuninni kl. 09:48 þar sem hann hafi verið boðaður á fund hjá stofnuninni þann 8. september 2021 klukkan 11:00. Boðið hafi verið sent á ensku. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þann 7. september 2021 hafi kærandi boðað forföll að nýju þar sem hann væri enn á ferð um landið og gæti því ekki mætt á boðuðum tíma. Kæranda hafi þá verið leiðbeint um að hann gæti komið við á þeirri þjónustuskrifstofu sem væri næst honum og hann minntur á að hafa skilríki meðferðis. Þá hafi kæranda einnig verið sendur tengill á heimasíðu stofnunarinnar þar sem fram kæmu upplýsingar um staðsetningar allra þjónustuskrifstofa á landinu. Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki mætt í boðað viðtal á sinni þjónustuskrifstofu 8. september 2021 né mætt á einhverja af öðrum þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar á landinu.

Með erindi þann 15. september 2021 hafi stofnunin óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna ótilkynntrar dvalar erlendis, auk skýringa á ástæðum þess að hafa ekki sinnt boðun í viðtal á þjónustuskrifstofu. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á 13. og 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringarbréf kæranda hafi borist þann 29. september 2021. Kærandi hafi borið það fyrir sig að hann hefði ekki getað skilað skýringum fyrr af þeirri ástæðu að greiðslur bóta til hans hefðu verið stöðvaðar og hann því ekki getað greitt fyrir síma og gagnamagn. Kærandi hefði verið staddur á Íslandi, bíllinn hans væri bilaður og hann því fastur á B og af þeirri ástæðu hafi hann ekki getað mætt á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar. Þá hafi kærandi upplýst að hann væri kominn með húsnæði og vinnu á C á B. Þann 5. október 2021 hafi Vinnumálastofnun fjallað um fjarveru kæranda á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Með erindi, dags 18. október 2021, hafi kærandi verið upplýstur um að það væri mat stofnunarinnar að skýringar hans teldust ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að bótaréttur væri því felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir.

Þann 21. október 2021 hafi borist viðbótarskýringar frá kæranda þar sem segi að síminn hans hafi verið batterýslaus og að hann hefði ekki getað haft samband við neinn. Á ferð sinni um landið hefði hann hitt vin sinn sem hafi aðstoðað hann við að finna húsnæði og vinnu á B sem hann hefði þegið. Þá segi í erindi kæranda að bíllinn hans væri bilaður og því komist hann ekki ferða sinna. Með erindi kæranda hafi einnig verið skjáskot af færsluyfirliti frá 6. til 13. september 2021 þar sem kærandi hafi viljað sýna fram á að hafa verið staddur á Íslandi. Þann 2. nóvember 2021 hafi Vinnumálastofnun fjallað um beiðni kæranda um að fjallað yrði um mál hans að nýju með tilliti til nýrra gagna. Með erindi, dags. 3. nóvember 2021, hafi kærandi verið upplýstur um að það væri mat stofnunarinnar að beiðni gæfi ekki tilefni til endurupptöku þar sem ekki hefðu komið fram upplýsingar er þýðingu gætu haft í málinu. Beiðni um endurupptöku hafi því verið hafnað.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Fyrir hafi legið afstaða kæranda en skýringar hans ekki metnar gildar.

Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi í 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar:

„Vinnumálastofnun er heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunna að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum. Skal hinn tryggði þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi svo:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaða fundi á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 7. og 8. september 2021 en honum hafi verið send boðun í tölvupósti og í uppgefið símanúmer þann 6. og 7. september 2021. Kærandi hafi boðað forföll og gefið þær skýringar að hann væri á ferðalagi og gæti því ekki mætt. Kæranda hafi þann 7. september 2021 verið leiðbeint um að hann gæti komið við á einhverri af þjónustuskrifstofum stofnunarinnar á landsbyggðinni ásamt því að honum hafi verið sendar upplýsingar um staðsetningu allra þjónustuskrifstofa. Kærandi hafi ekki mætt á boðuðum tíma á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar þann 8. september 2021 og ekki gefið frekari skýringar á fjarveru sinni fyrr en kallað hafi verið eftir þeim. Kærandi hafi gefið þær skýringar að hann hefði ekki efni á að greiða fyrir síma og gagnamagn og því hefði hann ekki getað skilað skýringum fyrr. Þá væri hann bíllaus og kæmist ekki ferða sinna en væri nú búinn að finna vinnu og húsnæði á B.

Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að mæta ekki á fund á einhverja af þjónustuskrifstofum stofnunarinnar hafi hann brugðist skyldum sínum og beri að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta samkvæmt 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í samræmi við framangreint hafi bótaréttur kæranda verið felldur niður í tvo mánuði. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta niðurfellingu bótaréttar á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr.,  3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi tvívegis boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun og í bæði skiptin boðaði hann forföll með vísan til þess að hann væri á ferðalagi um landið. Kæranda var þá bent á að Vinnumálastofnun væri með þjónustuskrifstofur víða um landið og að hann gæti mætt á þá sem væri næst honum. Fyrir liggur að kærandi brást ekki við þeim skilaboðum og mætti ekki á boðaðan fund.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram gildar skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. október 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum