Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2011 Dómsmálaráðuneytið

Þrjú embætti hæstaréttardómara laus til umsóknar

Innanríkisráðuneytið hefur auglýst laus til umsóknar þrjú embætti dómara við Hæstarétt Íslands í samræmi við lög nr. 12/2011 þar sem m.a. er veitt heimild til að fjölga dómurum tímabundið um þrjá.
Hæstiréttur Íslands
Hæstiréttur Íslands

Þannig verði dómarar við Hæstarétt tólf talsins til að bregðast við því aukna álagi sem orðið hefur hjá dómstólum. Umsóknirnar verða sendar dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti og verður skipað  í embættin hið fyrsta eftir að nefndin hefur skilað mati sínu.

Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Skuggasundi, 150 Reykjavík og á netfangið [email protected] eigi síðar en 14. mars nk.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum