Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2011 Innviðaráðuneytið

Ný ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Innanríkisráðherra hefur með tilvísun til 15. gr. laga, nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, skipað ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem starfa skal fram að næstu sveitarstjórnarkosningum.

Í nefndinni sitja fimm menn, einn skipaður af ráðherra án tilnefningar og fjórir samkvæmt tilnefningu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Formaður nefndarinnar er Guðmundur Bjarnason, fyrrv. bæjarstjóri í Fjarðabyggð og varaformaður skipaður með sama hætti er Jórunn Einarsdóttir, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjabæ.

Af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga eru eftirtaldin skipuð í nefndina:

Aðalmenn: Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarmaður í Sveitarfélaginu Skagafirði,

                    Björk Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ,      

                    Hermann Jón Tómasson, bæjarfulltrúi í Akureyrarkaupstað,

                    Þórunn Egilsdóttir, sveitarstjórnarmaður í Vopnafjarðarhreppi.

Varamenn: Halla Sigríður Steinólfsdóttir, sveitarstjórnarmaður í Dalabyggð,

                    Bryndís Haraldsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ,

                    Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði,

                    Albertína Elíasdóttir, bæjarfulltrú í Ísafjarðarbæ.

Nefndin kom saman til fyrsta fundar síðastliðinn föstudag, 18. febrúar.

Ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs á fyrsta fundi.

Á myndinni eru frá vinstri: Elín Pálsdóttir, forstöðumaður Jöfnunarsjóðs, nefndarfulltrúarnir Björk Þorsteinsdóttir, Bjarni Jónsson, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og nefndarfulltrúarnir Þórunn Egilsdóttir, Guðmundur Bjarnason og Hermann Jón Tómasson.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum