Hoppa yfir valmynd
15. júní 2017 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 340/2017 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 15. júní 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 340/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17050016

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. maí 2017 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. apríl 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Noregs.Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 2. mgr. 36. gr. sömu laga.Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 5. janúar 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 13. janúar 2017, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Noregi. Þann 24. janúar 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Noregi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 30. janúar 2017 barst svar frá norskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 25. apríl 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Noregs. Kærandi kærði ákvörðunina þann 9. maí 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 18. maí 2017. Þá bárust nefndinni viðbótargögn frá kæranda þann 12. júní sl.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Noregs. Lagt var til grundvallar að Noregur virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Noregs ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Noregs, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fram kom í ákvörðun Útlendingastofnunar að af rannsókn stofnunarinnar að dæma hafi umsækjendur um alþjóðlega vernd í Noregi möguleika á því að bera mál sitt undir dómstóla eða óska eftir endurupptöku hafi þeir fengið synjun á báðum stjórnsýslustigum. Þá geti umsækjendur borið mál sitt undir norska dómstóla sé endurupptökubeiðni þeirra synjað. Jafnframt eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans. Þau gögn sem Útlendingastofnun kynnti sér bendi eindregið til þess að málsmeðferð norskra stjórnvalda sé nægilega vönduð og veiti umsækjendum viðunandi úrræði til að tryggja að réttur sé ekki á þeim brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Þá sé ekkert sem bendi til annars en að kærandi hafi fengið vandaða málsmeðferð og að einstaklingsbundið mat hafi legið að baki ákvörðun í máli hans.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að í viðtali við kæranda hafi hann kveðið að hann sé illa haldinn andlega eftir illa meðferð stjórnvalda á sér og samlöndum sínum og hann hafi margoft verið beittur líkamlegu ofbeldi af hálfu yfirvalda í heimaríki sínu. Útlendingastofnun dró ekki í efa að kærandi hafi upplifað framangreint og annað sem kom fram í greinargerð hans. Var það því mat Útlendingastofnunar að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í þeim gögnum og skýrslum sem Útlendingastofnun kynnti sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Noregi komi fram að umsækjendum sé tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu í norskum lögum. Umsækjendur sem fái synjun í máli sínu en dvelja enn í Noregi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Það sé því mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í Noregi. Þrátt fyrir að kærandi þjáist af andlegum veikindum þá séu engin gögn í málinu sem beri með sér að heilsufar hans sé með þeim hætti að framkvæmd synjunar á efnismeðferð umsóknar hans hafi í för með sér verulegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir heilsufar hans. Í ljósi aðstæðna í Noregi og að teknu tilliti til viðkvæmrar stöðu kæranda sé það mat Útlendingastofnunar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að sérstakar ástæður mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá hafi Útlendingastofnun lagt mat á framlögð gögn í málinu og telji stofnunin að þau hafi ekki þýðingu fyrir niðurstöðu málsins.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Fram kemur í greinargerð kæranda að í viðtali hans hjá Útlendingastofnun þann 7. febrúar sl. hafi hann kveðið að hann vilji ekki fara aftur til Noregs. Þar í landi hafi ekki verið komið fram við hann eins og manneskju, yfirvöld hafi ekki sýnt aðstæðum hans neinn skilning né hafi þær verið sérstaklega rannsakaðar. Hann hafi farið frá […] til Noregs vegna þeirrar þjáningar sem hann hafi upplifað í heimaríki og hafi haldið að í Noregi myndi hann lifa við betri aðstæður, gæti sótt menntun og unnið. Greindi kærandi frá því að á meðan hann var með umsókn til meðferðar hjá norskum stjórnvöldum hafi hann haft aðgang að húsnæði og fengið vasapening á tveggja vikna fresti. Hann hafi hins vegar dottið út úr kerfinu eftir að hafa fengið synjun í tvígang og þá hafi hann ekki átt rétt á neinni þjónustu. Kærandi hafi reynt að safna flöskum til að fjármagna lögfræðiaðstoð til að geta farið með mál sitt fyrir dómstóla. Á endanum hafi hann hins vegar gefist upp á því. Aðspurður um hvenær hann hafi fengið lokaniðurstöðu í máli sínu hafi hann greint frá því að fyrri höfnunin hafi komið á tímabilinu 2012 til 2013 en lokaniðurstaðan, eftir endurupptöku málsins, hafi legið fyrir í desember 2016.

Þá hafi kærandi verið virkur þátttakandi í félagi í Noregi sem berjist gegn stjórnvöldum í […]. Meðal gagna málsins sé félagsskírteini og bréf frá samtökum sem heiti […]. Þá hafi kærandi einnig lagt fram blaðagrein þar sem fjallað sé um mótmæli […] í Noregi gegn stjórnvöldum í heimalandinu og ljósmyndir frá slíkum mótmælum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi verið spurður út í meðferð stjórnvalda á honum í heimaríki og ör sem hann beri á líkama sínum í tengslum við þá meðferð. Hafi kærandi greint frá því að stjórnvöld í […] fremji endurtekin mannréttindabrot á íbúum landsins og hann beri merki þess víðsvegar um líkamann. Líkamlegu örin séu þó ekki eins slæm og andlegu örin sem hann muni þurfa að burðast með allt til æviloka. Kærandi kvað að ofbeldi yfirvalda sé búið að vera hluti af lífi hans alla tíð og hann hafi verið beittur ofbeldi á götum úti allt frá unga aldri. Þetta eigi ekki einungis við um hann heldur alla þjóðina.

Þá kvað kærandi í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann þjáist af […]. […]. Hann hafi hitt augnlækni í Noregi vegna þessa en hafi ekki fengið neina meðferð. Hvað andlegt heilsufar kæranda varði kvað kærandi að hann þjáist af áhyggjum, vanlíðan og svefnleysi sem geri það að verkum að hann upplifi sig veikburða og eigi erfitt með ákvarðanatöku. Hann hafi ekki notið aðstoðar sálfræðinga eða geðlækna í Noregi, einungis fengið lyf. […].

Í greinargerð kæranda er vísað til c-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og lögskýringargagna að baki þeim. Vísað er til þess að ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu og að 2. mgr. ákvæðisins geri kröfu um að mat fari fram í hverju tilviki fyrir sig varðandi hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn verði tekin til efnismeðferðar. Kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga með vísan til andlegs heilsufars hans, ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir, málsmeðferðar í Noregi, tilrauna [...] og ótta hans við endursendingu til […]. Byggt sé á því að fyrir hendi séu slíkar sérstakar ástæður sem skyldi íslensk stjórnvöld til að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Byggt er á því í greinargerð að kærandi njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, þá sérstaklega 2. mgr. sem kveði á um bann við endursendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að umsækjandi verði ekki áframsendur til svæðis þar sem útlendingur hafi ástæðu til að óttast ofsóknir eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Fyrir liggi að kærandi hafi fengið lokasynjun í Noregi og standi frammi fyrir flutningi til […] verði hann endursendur til Noregs. Ljóst sé að íslensk stjórnvöld séu meðvituð um nauðsyn þess að meta umsókn einstaklings um alþjóðlega vernd á einstaklingsgrundvelli og mikilvægi reglunnar um non-refoulement. Það fái stoð í greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, frá desember 2015. Meðal gagna í máli kæranda sé tilkynning frá lögreglunni í Noregi um brottvísun úr landinu, dagsett 26. maí 2016. Því liggi fyrir að með endursendingu íslenskra stjórnvalda á kæranda til Noregs muni þau greiða leið norskra stjórnvalda til að senda einstaklinga til […] með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Þá kemur fram í greinargerð kæranda að nýlega hafi orðið breytingar á stefnu Noregs í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafi leitt til þess að umsóknum um alþjóðlega vernd hafi fækkað mikið þar í landi. Fjöldi umsókna í Noregi árið 2016 hafi ekki verið lægri síðan árið 1997. Á síðasta ári hafi norska þingið samþykkt ný lög sem hafi hert innflytjendalöggjöfina og landamæragæslu í Noregi. Hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Amnesty International gert fjölmargar athugasemdir við breytingar Noregs á löggjöf í þessum málaflokki. Kærandi bendi á að langstærstur hluti ríkisborgara frá […] sem sæki um vernd í Noregi fái umsókn sína samþykkta enda sé ástandið þar í landi martröð líkast og vísar kærandi í skýrslu Amnesty International frá [...] 2017 máli sínu til stuðnings varðandi ástandið í […]. Í Noregi hafi staða umsækjenda um alþjóðlega vernd frá […] verið til umræðu í fjölmiðlum ásamt ótryggu ástandi í […]. Kærandi sé meðlimur í áðurnefndu félagi í Noregi sem berjist gegn stjórnvöldum í […], vinni að aðlögun og fræðslu fyrir hælisleitendur og flóttafólk ásamt upplýsingagjöf um réttarstöðu þeirra. Ljóst sé að kærandi sé virkur meðlimur í samtökunum, hann hafi komið fram opinberlega og gagnrýnt stjórnvöld í […], þar af leiðandi sé kærandi í sérstaklega mikilli hættu á að sæta pyndingum og verða fyrir vanvirðandi meðferð verði hann endursendur til […] líkt og norsk stjórnvöld hyggist gera.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að norsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Noregs er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi.

Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli. Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Noregi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Norway 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017)
  • Freedom in the World 2016 – Norway (Freedom House, 12. ágúst 2016)
  • Amnesty Interantional Report 2016-2017 – Norway (Amnesty International, 22. febrúar 2017)
  • Information for asylum seekers in Norway (Norwegian Organisation for Asylum Seekers, 2011)
  • Information Note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (European Council on Refugees and Exiles, október 2015)
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees: For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: NORWAY (UNHCR, september 2013)
  • UNHCR Observations on the proposed amendments to the Norwegian Immigration Act and Regulation: Høring – Endringer i utlendingslovgivningen (Innstramninger II) (UNHCR, 12. febrúar 2016)
  • UNHCR proposals to address current and future arrivals of asylum-seekers, refugees and migrants by sea to Europe (UNHCR, mars 2015)
  • Guidelines on international protection: "Internal Flight or Relocation Alternative" within the Context of Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees (23. júlí 2003)
  • Upplýsingar af vefsíðum landinfo (www.landinfo.no), norsku útlendingastofnunarinnar (www.udi.no), norsku kærunefndar útlendingamála (www.une.no), norskra dómstóla (www.domstol.no), norskra stjórnvalda (www.regjeringen.no), norska heilbrigðisráðuneytisins (www.legemiddelverket.no), um heilbrigðiskerfið í Noregi (www.helsenorge.no), norskra hjálparsamtaka fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd (www.noas.no og www.seif.no) og norskra laganema (www.jussbuss.no, www.jusshjelpa.no og www.jussformidlingen.no).

Af framangreindum skýrslum og gögnum má ráða að á meðan umsókn um alþjóðlega vernd er til meðferðar hjá norskum stjórnvöldum geta umsækjendur lagt fram gögn í málinu sem styðja við umsóknina. Þá er hægt að óska þess að mál séu tekin upp að nýju á grundvelli nýrra gagna. Útlendingastofnun Noregs (n. Utlendingsdirektoratet) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd þar í landi. Neikvæða ákvörðun útlendingastofnunar er þá hægt að kæra til sérstakrar kærunefndar útlendingamála (n. Utlendingsnemnda). Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd í Noregi synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða kærunefnd á hann möguleika á því að bera málið undir dómstóla eða leggja fram beiðni um endurupptöku á máli sínu hjá kærunefndinni. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða ef verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði endurupptöku verið uppfyllt. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd borið mál sitt undir norska dómstóla sé endurupptökubeiðni þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Noregi geta fengið ákveðinn fjölda klukkustunda í lögfræðiþjónustu ef umsókn þeirra um vernd hefur verið synjað af útlendingastofnun Noregs. Umsækjendur eiga því rétt á lögfræðiaðstoð sér að kostnaðarlausu við meðferð máls á kærustigi og hafa þeir nokkurt val um hvaða lögfræðingur sinni þeirra máli. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd leitað til mannúðarsamtaka og laganema sem veita lögfræðiþjónustu.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Noregi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Noregs brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Noregi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Noregs á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Noregi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. 73. gr. norskra laga um útlendinga (n. lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her). Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð norskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur sé ekki á þeim brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Í því sambandi tekur kærunefnd jafnframt fram að gögn sem kærandi hefur lagt fram varðandi mál sitt hjá norskum yfirvöldum benda eindregið til þess að farið hafi fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum hans hjá norskum stjórnvöldum. Gögn sem kærandi hefur lagt fram eru að þessu leyti í samræmi við skýrslur sem kærunefnd hefur kynnt sér sem benda eindregið til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð raunhæf úrræði til að leita réttar síns í Noregi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga teljast einstaklingar vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu ef þeir, vegna tiltekinna persónulegra eiginleika eða aðstæðna hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls eða þeir geta ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum þessum án aðstoðar eða sérstaks tillits. Sem dæmi um einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu nefnir ákvæðið fólk með geðraskanir eða geðfötlun, alvarlega veika einstaklinga og einstaklinga sem hafa orðið fyrir pyndingum. Kærandi, sem er ungur […] karlmaður, kveðst alla jafna vera við ágæta líkamlega heilsu. Hann greindi þó frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 7. febrúar 2017 að hann þjáist af […] . Hvað andlega heilsu varðar þá greindi kærandi frá því í viðtali við Útlendingastofnun að hann hafi orðið fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi af hálfu yfirvalda í […] og beri þess merki bæði á líkama og sál. Hann sé áhyggjufullur, haldinn vanlíðan og […]. Þá eigi hann erfitt með svefn. Í ljósi framangreinds er það mat kærunefndar að ekki verði annað lagt til grundvallar með hliðsjón af gögnum málsins en að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Í fyrrgreindum skýrslum og gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Noregi kemur fram að umsækjendum er tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu í norskum lögum hvort sem það er á spítala eða heilsugæslu. Þar kemur fram að umsækjandi um alþjóðlega vernd á rétt á heilbrigðisþjónustu vegna líkamlegra eða andlegra vandamála ásamt tannlæknaþjónustu sem og aðstoð vegna fíknivanda. Sveitarfélagið þar sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Greiða þarf komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda um alþjóðlega vernd að kostnaðarlausu. Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hafa fengið synjun í máli sínu í Noregi en dvelja enn þar í landi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu gegn greiðslu en ef umsækjandi um alþjóðlega vernd getur ekki greitt fyrir slíka þjónustu er kostnaðurinn greiddur af sveitarfélaginu eða opinberum aðilum. Í ljósi aðstæðna í Noregi og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, meðal annars sérstaklega viðkvæmrar stöðu kæranda, er það því mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að sérstakar ástæður mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 7. febrúar 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 5. janúar 2017.

Í máli þessu hafa norsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Noregs með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Anna Tryggvadóttir                                        Erna Kristín Blöndal

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum