Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2022 Utanríkisráðuneytið

Ísland tvöfaldar framlög til hnattræna jafnréttissjóðsins

Árlegt framlag Íslands til hnattræna jafnréttissjóðsins (Global Equality Fund, GEF) verður tvöfaldað með nýjum samningi sem utanríkisráðherra undirritaði á föstudag. Sjóðurinn beinir stuðningi sínum að mannréttindum hinsegin fólks um allan heim. 

Ísland hefur styrkt hnattræna jafnréttissjóðinn frá árinu 2020 og árleg framlög hafa verið hundrað þúsund Bandaríkjadalir. Nýi samningurinn gerir hins vegar ráð fyrir 200 þúsund dala framlagi til ársins 2025 eða því sem nemur um 26 milljónum króna. 

Ísland hefur á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á réttindi hinsegin fólks á vettvangi alþjóðastofnana, sérstaklega á þeim vettvangi þar sem Ísland hefur átt sæti, til dæmis í framkvæmdastjórn UNESCO og mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Þá styður Ísland einnig við átaksverkefnið „UN Free and Equal“ sem rekið er innan skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) og hefur að markmiði að berjast fyrir réttindum hinsegin fólks hvarvetna í heiminum.

Undirritunin fór fram á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra með Uzra Zeya, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna sem ber ábyrgð á málefnum mannréttinda og lýðræðis, og Jessicu Stern, sérlegs ráðgjafa Bandaríkjaforseta í málefnum hinsegin fólks.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum