Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 323/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 24. ágúst 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 323/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22060030

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. júní 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Jemen (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. maí 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd ásamt móður sinni og fjórum systkinum sínum og voru mál þeirra unnin samhliða. Fjallað er um umsóknir þeirra í úrskurðum kærunefndar nr. 319/2022, nr. 320/2022, nr. 321/2022 og nr. 322/2022.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar, aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en til vara á grundvelli 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 21. febrúar 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 25. febrúar 2022 kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Kýpur. Hinn 8. mars 2022 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda á Kýpur, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá kýpverskum yfirvöldum, dags. 11. apríl 2022, kom fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd 29. júní 2017 og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. 5. apríl 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 25. maí 2022 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 31. maí 2022 og kærði kærandi ákvörðunina 13. júní 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst 25. júní 2022.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Kýpur. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Kýpur ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Kýpur.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að kærandi hafi flúið frá Kýpur ásamt fjölskyldu sinni hingað til lands vegna ofsókna, hótana og ofbeldis af hálfu fyrrverandi eiginmanns systur kæranda. Þá hafi kærandi ekki haft nein réttindi þar í landi og ekki fengið að klára skólagöngu sína. Kærandi hafi neyðst til þess að vinna til að framfleyta fjölskyldu sinni þar sem þau hafi ekki fengið félagslegar bætur. Þá hafi verið erfitt að fá atvinnu og laun hafi verið lág þar í landi. Auk þess hafi kærandi ástæðuríkan ótta um að verða beittur ofbeldi eða tekin af lífi, verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða pyndingum þar í landi af hálfu fyrrum eiginmanns systur sinnar. Engin leið sé fyrir hann að leita verndar hjá lögreglunni þar sem hún vilji ekkert gera til þess að aðstoða þau.

Kærandi byggir á því að mál hans skuli tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, á Kýpur. Kærandi telur að þrátt fyrir að hann hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og falli því undir a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, mæli sérstakar ástæður með því að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi. Vísar kærandi til mansals sem systir hans hafi mátt þola á Kýpur og þeirra hótana og hættu sem að fjölskyldunni steðjar þar í landi af fyrrverandi eiginmanni systur hans. Þá fái fjölskyldan ekki vernd frá lögreglu eða yfirvöldum og líf þeirra sé í hættu. Þá vísar kærandi til þess að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð en ekki skyldu. Meginregla laganna sé því að taka skuli allar umsóknir til efnismeðferðar, nema rétt þyki að beita undantekningarreglu laganna, en í samræmi við almennar lögskýringarreglur skuli undantekningarreglur túlkaðar þröngt. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til athugasemda með frumvarpi því er varð að breytingarlögum nr. 115/2010, á þágildandi lögum um útlendinga, um sérstakar ástæður, og athugasemda við ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þessi viðbót leiði með skýrum hætti í ljós vilja löggjafans til að víkka út gildissvið 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda sé það í samræmi við meginreglu laganna um að umsóknir um alþjóðlega vernd skuli teknar til efnismeðferðar.

Kærandi telur ljóst að með endursendingu hans til Kýpur yrði brotið gegn meginreglu þjóðaréttar um bann við endursendingu (non-refoulement), sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Ekki verði um það deilt að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, þar sem hann teljist vera í verulega viðkvæmri stöðu og í slíkum tilvikum beri stjórnvöldum, með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, skylda til þess að taka umsókn til efnismeðferðar, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. sama ákvæðis. Af þeim sökum beri að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar og gera stofnuninni að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi einstæður karlmaður á [...] sem er staddur hér á landi ásamt fjölskyldu sinni. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hafa dvalið á Kýpur í sjö ár, hann hafi fengið alþjóðlega vernd þar í landi árið 2017 og dvalið til ársins 2022, þegar hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann óttist fyrrum eiginmann systur sinnar sem hafi starfað fyrir mafíuna og m.a. valdið því að hann hafi hætt í vinnunni sinni. Kærandi hafi starfað ólöglega sem […] þar sem hann hafi verið [...]. Þá hafi kærandi neyðst til að hætta í skóla til þess að framfleyta fjölskyldu sinni sem hafi ekki fengið fjárhags- eða félagslega aðstoð. Kærandi lýsti aðstæðum sínum á Kýpur og kvaðst hafa dvalið ásamt fjölskyldu sinni í flóttamannabúðum í þrjú ár en síðar hafi þau leigt íbúð. Kærandi hafi haft aðgang að heilbrigðiskerfinu en ekki leitað þangað þar sem hann hafi verið heilsuhraustur. Þá kvaðst kærandi hafa orðið fyrir fordómum vegna húðlitar síns. Kærandi hafi ekki leitað til lögreglu vegna aðstæðna sinna en systir hans hafi gert það og ekki fengið aðstoð. Kærandi hefur greint frá því að vera við góða andlega og líkamlega heilsu.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd á Kýpur 29. júní 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur á Kýpur virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður á Kýpur

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Kýpur, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2021 Country Report on Human Rights Practices – Cyprus (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • Asylum Information Database. Country Report: Cyprus (European Council on Refugees and Exiles, 8. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2021/22 Cyprus (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Freedom in the World 2022– Cyprus (Freedom House, 2022);
  • Trafficking in persons report (United States Department of State, júní 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu European Commission - Cyprus Overview (https://eacea.ec.europa.eu/national-policies/eurydice/content/cyprus_en, skoðað 24. ágúst 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu European Commission – Cyprus - Guaranteed minimum income benefit (https://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=1105&intPageId=5009&langId=en, skoðað 24. ágúst 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðiskerfis Kýpur (e. National Health System, (GESY)) (https://www.gesy.org.cy/launchpad.html, skoðað 24. ágúst 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu In-Cyprus (https://in-cyprus.philenews.com/news/local/stricter-sentences-for-dissemination-of-revenge-porn-in-cyprus/, sótt 24. ágúst 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins á Kýpur (http://www.moec.gov.cy/, skoðað 24. ágúst 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu UNHCR (https://help.unhcr.org/cyprus/refugees-rights-and-duties/refugee-rights/, skoðað 24. ágúst 2022);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 24. ágúst 2022) og
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 24. ágúst 2022).

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá apríl 2022 fá einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns útgefið dvalarleyfi á Kýpur með gildistíma til þriggja ára sem sé endurnýjanlegt. Einstaklingar með viðbótarvernd fái útgefið dvalarleyfi sem gildi í eitt ár og sé endurnýjanlegt til tveggja ára. Í reynd geti það tekið allt að fjóra til sex mánuði að fá dvalarleyfi útgefið. Umsækjendur um endurnýjun viðhaldi tilteknum réttindum sínum á meðan málsmeðferð standi með því að framvísa staðfestingu á að þeir hafi umsókn um endurnýjun dvalarleyfis til meðferðar. Aftur á móti geti verið erfitt að nálgast tiltekin réttindi, svo sem fullnægjandi heilbrigðisþjónustu eða að opna bankareikning á meðan á málsmeðferð standi. Á árinu 2020 hafi orðið enn frekari tafir við útgáfu dvalarleyfa vegna Covid-19 faraldursins þar í landi en snemma árs 2021 virðist sem málsmeðferðartíminn hafi styst aftur. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns og handhafar viðbótarverndar geti sótt um langtímadvalarleyfi eftir fimm ára löglega búsetu í landinu. Umsækjendur um langtímadvalarleyfi þurfi að uppfylla tiltekin skilyrði, s.s. sýna fram á fastar tekjur sem nægi til framfærslu, ráðningarsamning með gildistíma til a.m.k. 18 mánaða og vera með heilbrigðistryggingu. Handhafar alþjóðlegrar verndar hafi mætt hindrunum við að fá útgefið langtímadvalarleyfi þar sem þeim hafi reynst erfitt að uppfylla framangreind skilyrði.

Í framangreindri skýrslu ECRE og á vef GESY kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar hafi sama aðgang að heilbrigðiskerfinu á Kýpur og ríkisborgarar landsins. Frá 1. júní 2019 hafi orðið breytingar á heilbrigðiskerfinu en nú sé fyrsti viðkomustaður sjúklinga hjá heimilislæknum sem geti vísað einstaklingum til sérfræðinga. Helstu hindranir á aðgengi handahafa alþjóðlegrar verndar að heilbrigðisþjónustu á Kýpur hafi verið þegar einstaklingar sem hafi fengið alþjóðlega vernd bíði eftir útgáfu eða endurnýjun dvalarleyfis. Þá eigi einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur rétt á Covid-19 bólusetningu á næstu heilsugæslu en ekki sé þörf á að bóka tíma fyrirfram.

Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur rétt á að dvelja í móttökumiðstöðvum ótímabundið en séu þó hvattir til að aðlagast samfélaginu sem allra fyrst eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þá séu engin sérstök húsnæðisúrræði fyrir handhafa alþjóðlegrar verndar. Handhafar alþjóðlegrar verndar geti sótt um fjárhagsaðstoð hjá velferðarkerfi Kýpur (e. the national Guaranteed Minimum Income, GMI) en á árinu 2020 hafi yfirvöld veitt einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð, s.s. við leigu á húsnæði, til að auðvelda þeim aðgengi að samfélaginu. Samkvæmt framangreindri skýrslu hafi ekki komið upp tilfelli þar sem einstaklingum hafi verið vikið úr móttökumiðstöðvunum án þess að hafa aflað sér húsnæðis á eigin vegum. Einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur hafi aðgang að atvinnumarkaðnum þar í landi undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Þá sé ekki gerður greinarmunur á einstaklingum með réttarstöðu flóttamanns eða handhöfum viðbótarverndar. Handhafar alþjóðlegrar verndar geti leitað aðstoðar við atvinnuleit á skrifstofu atvinnumiðlunar (e. Public Employment Service, PES). Þá eigi handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á aðgengi að starfsþjálfun á vegum viðeigandi félagsþjónustu. Aftur á móti geti handhafar alþjóðlegrar verndar mætt hindrunum á aðgengi að slíkum námskeiðum, m.a. vegna tungumálakunnáttu. Í fyrrgreindri skýrslu og á vef UNHCR kemur fram að börn með alþjóðlega vernd á Kýpur eigi sama rétt til þess að ganga í skóla á öllum menntastigum þar í landi og ríkisborgarar þess. Menntunin sé endurgjaldslaus fyrir öll börn á aldrinum 5 til 18 ára. Þá kemur fram að hægt sé að sækja um pláss á leikskóla fyrir barn þegar það hefur náð tilteknum aldri.

Í framangreindri skýrslu ECRE kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar eigi rétt á að sækja um aðstoð frá velferðarkerfinu á Kýpur (GMI) undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Undir aðstoðina falli m.a. fjárhagsaðstoð til grunnframfærslu og húsaleigubætur að vissum skilyrðum uppfylltum en afgreiðsla umsóknar geti tafist í allt að tólf mánuði. Þó sé hægt að leggja fram umsókn um bráðabirgðabætur meðan beðið sé eftir afgreiðslu umsóknar en þær bætur séu þó töluvert lægri og afgreiðsla þeirra geti tekið um eina til tvær vikur. Umsóknina þurfi að endurnýja í hverjum mánuði þar til ákvörðun um endanlegar bætur liggi fyrir. Þá hafi handhafar alþjóðlegrar verndar staðið frammi fyrir vissum hindrunum á möguleikum þeirra til að nálgast grunnréttindi sín og að uppfylla skilyrði fyrir fyrrgreindri aðstoð.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk hafi orðið fyrir kynþáttafordómum og ofbeldi á Kýpur, þ. á m. af hálfu opinberra starfsmanna. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af kýpversku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Í framangreindri skýrslu kemur fram að sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Í skýrslu Freedom house fyrir árið 2021 kemur fram að mismunun á grundvelli kyns hafi verið vandamál á atvinnumarkaði í tengslum við ráðningar í störf, laun og kynferðislega áreitni. Þá kemur fram að lögum sem varði framangreint hafi ekki verið framfylgt með fullnægjandi hætti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal frá árinu 2021 kemur fram að árið 2019 hafi verið samþykkt lög á Kýpur sem hafi gert kynlífsmansal og mansal á vinnumarkaði refsivert, en með lögunum hafi refsingar við þessum brotum verið hækkaðar upp í 25 ára fangelsi. Þá hafi lögin hækkað refsingar fyrir slík brot þegar börn eigi í hlut úr 20 ára fangelsisvist í lífstíðarfangelsi. Þá bera heimildir með sér að stafrænt kynferðisofbeldi sé refsivert á Kýpur og við því geti legið fangelsisrefsing í allt að 16 ár. Jafnframt rannsaki lögreglan á Kýpur slíka glæpi en um 40 slík mál komi á borð lögreglunnar árlega.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...] sem er staddur hér á landi ásamt fjölskyldu sinni. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að andleg og líkamleg heilsa hans væri góð en hann einangri sig og vilji helst vera heima hjá sér. Í máli kæranda hefur aðeins verið lagt fram læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 23. mars 2022, þar sem kemur fram að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga nr. 19/1997.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 5. apríl 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 14. júní 2022, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af frásögn kæranda og þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Kýpur verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Kýpur að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Kýpur þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá hefur kærandi sjálfur greint frá því að hann hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu á Kýpur.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu á Kýpur og erfitt hafi verið að fá atvinnu. Þá hafi hann ekki haft aðgang að menntun þar í landi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Kýpur kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi aðgang að atvinnumarkaðinum, velferðarkerfinu og menntun undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Þá geti handhafar alþjóðlegrar verndar leitað aðstoðar við atvinnuleit á skrifstofu atvinnumiðlunar. Börn á Kýpur hafi rétt til þess að ganga í skóla á öllum menntunarstigum og menntun sé endurgjaldslaus frá fimm til átján ára aldurs. Þá standi þeim sem ekki hafa grísku að móðurmáli til boða tungumálastuðningur. Líkt og komið hefur fram hafa handhafar alþjóðlegrar verndar einnig rétt á fjárhagsaðstoð til grunnframfærslu og húsaleigubætum að vissum skilyrðum uppfylltum. Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þótt skýrslur um aðstæður á Kýpur bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Kýpur séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda á Kýpur.

Kærandi hefur jafnframt greint frá því að hafa orðið fyrir fordómum á Kýpur og að hann óttist fyrrum eiginmann systur sinnar sem hafi m.a. hótað fjölskyldu hans. Af framangreindum gögnum verður ráðið að löggæslan sé virk á Kýpur og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að þau vænst þess að staða hans, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar á Ítalíu hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 5. apríl 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 21. febrúar 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna kröfu um veitingu dvalarleyfis á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga

Í greinargerð krefst kærandi þess til þrautavara að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd bendir á að samkvæmt skýru orðalagi ákvæðisins skal ákvæðinu ekki beitt nema skorið hafi verið úr um með efnismeðferð að útlendingur uppfylli ekki skilyrði alþjóðlegrar verndar samkvæmt 37. og 39. gr. laga um útlendinga. Þar sem umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hefur verið synjað um efnismeðferð hér á landi þykir ljóst að ekki séu fyrir hendi forsendur til að taka kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga til skoðunar.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands 16. febrúar 2022 og sótti um alþjóðlega vernd 21. febrúar 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                             Gunnar Páll Baldvinsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum